Hæstiréttur íslands

Mál nr. 122/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 3. mars 2010.

Nr. 122/2010.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir  saksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. mars 2010. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. febrúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. mars 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. febrúar 2010.

Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...],[...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. mars 2010 kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að snemma á árinu 2009 hafi kærða verið til rannsóknar hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um innflutning fíkniefna, mansal og hagnýtingu vændis. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness í málinu nr. S-676/2009, uppkveðnum 1. desember 2009, hafi henni verið gert að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis. Kærða hafi áfrýjað dóminum til Hæstaréttar.

Í október 2009, á meðan ofangreint mál hafi verið til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness, hafi rannsókn hafist gegn kærðu að nýju vegna gruns um mansal og hagnýtingu vændis, sbr. mál lögreglu nr. 007-2009-64256. Lögregla hafi haft rökstuddan grun um að kærða flytti stúlkur til landsins, gerði þær út til vændis og tæki a.m.k. helming hagnaðarins af þeim. Kærða hafi verið handtekin vegna málsins 3. desember 2009 og sætt gæsluvarðhaldi síðan 4. desember 2009, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna og síðar til þess að hindra frekari brotastarfsemi.

Við rannsókn málsins hafi konur borið um að hafa stundað vændi hér á landi á vegum kærðu og að þær hafi komið til landsins í því skyni að starfa við vændi á vegum kærðu. Konunum beri saman um að kærða hafi verið umráðamanneskja þess húsnæðis þar sem þær dvöldu og vændið verið stundað. Hún hafi haft alla milligöngu við þá sem keypt hafi vændisþjónustu þeirra og tekið við greiðslu og haldið eftir verulegum hluta þess sem greitt var. Framkomnir vitnisburðir bendi einnig til þess að kærða hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum þeirra kvenna sem um ræði, með því að beita ótilhlýðilegri aðferð, ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu. Fjármál kærðu hafi verið til skoðunar hjá lögreglunni samhliða og í tilefni af framangreindri rannsókn. Auk framburða brotaþola og vitna, styðji símagögn og önnur gögn meint sakarefni á hendur kærðu. Hafi komið í ljós að helsta tekjulind kærðu hafi verið sú brotastarfsemi sem hafi verið til rannsóknar. Í byrjun janúar hafi lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu svo borist upplýsingar um að kærða hafi boðið samfanga sínum, ungri konu, að starfa fyrir sig sem vændiskona fyrir 500.000 krónur á mánuði þegar hún væri laus úr fangelsi. Lögreglan hefði yfirheyrt konuna og hún staðfest þetta auk þess sem tekin hafi verið skýrsla af öðrum fanga sem hefði verið vitni að ofangreindu samtali. Lögreglan hafi einnig lokið rannsókn í málum 007-2008-92653 og 007-2010-5923 sem varði ætlað brot kærðu gegn 106. gr. og 217. gr. almennra hegningarlaga. Framangreind mál kærðu hefðu borist embætti ríkissaksóknara til meðferðar 1. febrúar sl. og teljist rannsókn þeirra lokið. Ákvörðun hafi verið tekin um saksókn og ákæra ríkissaksóknara ásamt rannsóknargögnum send dóminum í dag. Kærðu sé gefið að sök mansal, hagnýting vændis, hótanir, frelsissvipting, ólögmæt nauðung, líkamsárás og brot gegn valdstjórninni.

Kærða hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 4. desember 2009 og sé vísað til úrskurða Héraðsdóms Reykjaness í málum nr. R-676, 695, 721/2009, 20/2010 og 86/2010 sem og dóma Hæstaréttar í málum nr. 695/2009, 766/2009 og 23/2010 þar sem fallist hafi verið á að þörf væri á að kærða sætti síbrotagæsluvarðhaldi vegna brota sinna.

Með vísan til þess sem að framan greini telji ríkissaksóknari ljóst að kærða hafi ekki látið af brotastarfsemi sinni þrátt fyrir að hafa sætt lögreglurannsóknum, gæsluvarðhaldi og verið ákærð og dæmd fyrir sambærileg brot, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-676/2009. Þá líti ríkissaksóknari það alvarlegum augum að kærða leitist enn á ný, á meðan hún sæti gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal og hagnýtingu vændis, við að fá konur til að starfa fyrir sig í vændi. Loks sé það mat ríkissaksóknara að framangreind mál og rannsókn á fjármunum kærðu bendi til þess að hún framfleyti sér með afbrotum. Ætla megi að kærða muni halda áfram brotum gangi hún laus á meðan málum hennar sé ekki lokið, sbr. c-lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2009. Þess sé því krafist að krafan nái fram að ganga svo unnt verði að ljúka málum hennar.

Sakarefni málanna varði við 106. gr., 206. gr., 217. gr., 225. gr., 226. gr., 1. tl. 1. mgr. 227. gr. a., og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn ákvæðunum geti mest varðað allt að 8 árum. Krafa um gæsluvarðhald sé byggð á c-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Eins og rakið hefur verið hefur kærða sætt gæsluvarðhaldi frá 4. desember 2009, fyrst á grundvelli rannsóknar­hagsmuna en svo með vísan til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Rannsókn málsins er lokið og fyrr í dag var þingfest mál á hendur henni fyrir ýmis brot sem geta varðað fangelsisrefsingu, m.a. vændi. Með vísan til alls framangreinds og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 26. mars 2010 kl. 16:00.