Hæstiréttur íslands
Mál nr. 430/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 29. október 2004. |
|
Nr. 430/2004. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X(Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni Kolbeinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. október 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. október 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 8. desember 2004 kl. 16.00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. október 2004
Ár 2004, miðvikudaginn 27. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en miðvikudagsins 8. desember 2004, kl. 16:00.
[...]
Kærði hefur ekki viðurkennt að hafa framið það brot sem hann er sakaður um. Ber hann við minnisleysi um atburði svo sem fram kemur í skýrslum hans hjá lögreglu og fyrir dómi.
Eins og fram kemur í gögnum málsins og hér að framan er rakið verður að telja að fyrir liggi sterkur og rökstuddur grunur um að kærði hafi veitt A alvarlegan áverka á hálsi með eggvopni aðfaranótt 27. júlí sl. Samkvæmt læknisvottorði sérfræðings á slysa- og bráðadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss Fossvogi sama dag reyndist A vera með langan, skáskorinn skurð vinstra megin á hálsi sem var allt að 4 5 cm að dýpt.
Brot þetta getur varðað allt að 16 ára fangelsi ef sök sannast, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Fallist er á að almannahagsmunir krefjist þess að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi.
Með vísan til þessa og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 eru uppfyllt skilyrði til að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ber því að fallast á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald kærða svo sem greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en miðvikudagsins 8. desember 2004, kl. 16:00.