Hæstiréttur íslands
Mál nr. 167/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 2. maí 2000. |
|
Nr. 167/2000. |
Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Júlíus Kristófer Eggertsson (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að J skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. apríl 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2000.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess, að Júlíusi Kristófer Eggertssyni, kt. 271072-5119, Leifsgötu 3, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.
Með ákærum ríkissaksóknara 17. og 18. þ.m. voru höfðuð opinber mál á hendur ákærða o.fl., þar sem honum er gefinn að sök stórfelldur innflutningur fíkniefna. Í ákæru, dagsettri 17. þ.m., er ákærða gefið að sök að hafa á tímabilinu desember 1997 og til september 1999 í um 6 skipti, með milligöngu meðákærðu Andrésar Ingibergssonar og Guðmundar Ragnarssonar, móttekið frá meðákærðu Gunnlaugi Ingibergssyni og Herbirni Sigmarssyni samtals um 39 kg af kannabis og selt hérlendis. Í síðari ákærunni er ákærða m.a. gefið að sök að hafa, ásamt meðákærðu Sverri Þór Gunnarssyni og Rúnari Ben Maitsland, staðið að kaupum á samtals 43 kg af hassi, 17 kg af marihuana og 2 kg af kókaíni í Amsterdam, sem þeir ætluðu til söludreifingar hérlendis. Í sömu ákæru er ákærða gefið að sök að hafa í Reykjavík, á tímabilinu júlí til ágúst 1999, í tvö skipti keypt samtals 2 kg af hassi af meðákærða Ólafi Ágústi Ægissyni. Eru brot ákærða talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Fyrir liggur sterkur grunur um, að ákærði hafi framið brot, sem varðað getur hann allt að 10 ára fangelsi. Um er að ræða stórfellt fíkniefnamisferli og er brot það, sem ákærða er gefið að sök, þess eðlis að telja má gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Með vísan til framanskráðs, framlagðra gagna, hæstaréttardóma í málum ákærða frá 29. nóvember og 20. mars sl. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, er fallist á kröfu ríkissaksóknara, eins og hún er fram sett.
Helgi I. Jónsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, Júlíus Kristófer Eggertsson, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.