Hæstiréttur íslands

Mál nr. 484/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 11. júlí 2014.

Nr. 484/2014.

Ákæruvaldið

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

X var gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar til dómur gengi í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins á hendur honum.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Þorgeir Örlygsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. júlí 2014, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 9. júlí 2014, þar sem varnaraðila var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur Hæstaréttar gengur í máli ákæruvaldsins á hendur honum, þó ekki lengur en til mánudagsins 3. nóvember 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili kærði úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti 9. júlí 2014. Hann krefst þess aðallega að varnaraðila verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í Hæstarétti í máli hans, þó ekki lengur en til mánudagsins 22. desember 2014 klukkan 16. Til vara krefst hann staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest niðurstaða hans um að skilyrði séu til að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi. Í ljósi atvika málsins eru ekki efni til annars en að gæsluvarðhaldinu verði markaður tími eins og sóknaraðili hefur krafist, svo sem nánar greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins á hendur honum, þó ekki lengur en til mánudagsins 22. desember 2014 klukkan 16.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 9. júlí 2014.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, meðan dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli S-206/2014 er til meðferðar fyrir Hæstarétti uns dómur er þar upp kveðinn, þó eigi lengur en til mánudagsins 22. desember 2014 kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að dómfelldi hafi verið handtekinn 18. mars 2014 vegna gruns um líkamsárás, sbr. mál lögreglu nr. 007-2014-14097, og hafi næsta dag, 19. mars, verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness hafi dómfelldi sætt gæsluvarðhaldi samfleytt til dagsins í dag. Fyrri úrskurðir séu nr. R-99/2014, kært til Hæstaréttar sem hafi staðfest úrskurðinn með dómi í máli nr. 208/2014, R-134/2014, R-160/2014 og R-193/2014. Síðastnefndi úrskurðurinn hafi einnig verið kærður til Hæstaréttar sem hafi staðfest hann 19. júní sl. með dómi í máli nr. 418/2014.

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi gefið út tvær ákærur á dómfellda vegna fjölda auðgunarbrota, tveggja líkamsárása og sérrefsilagabrota, dagsett 15. apríl sl., og vegna skjalabrots, dagsett 5. maí 2014. Ríkissaksóknari hafi einnig gefið út ákæru, dagsett 30. apríl sl., vegna sérstaklegrar hættulegrar líkamsárásar 10. janúar sl. þar sem skotið hafi verið úr loftbyssu í andlit brotaþola. Ákærur þessar hafi verið sameinaðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness undir málsnúmeri S-206/2014.

Dómur hafi verið kveðinn upp í máli nr. S-206/2014 hinn 11. júní 2014. Þar hafi dómfelldi verið dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi að frádregnu gæsluvarðhaldi. Dómfelldi hafi nú lýst yfir áfrýjun til Hæstaréttar.

Dómfelldi eigi langan brotaferil og hafi, að frátöldum dómnum sem dómfelldi hafi nú áfrýjað, áður verið dæmdur sex sinnum til fangelsisrefsingar og hlotið alls 13 dóma frá árinu 2006. Dómfelldi hafi hlotið dóm fyrir fíkniefnalagabrot hinn 14. nóvember og hinn 12. apríl 2013 hafi hann hlotið sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni, þjófnað og annað með dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-581/2013. Dómfelldi hafi lokið afplánun síðastnefnds dóms í júlí 2013. Brot þau sem hann hafi nú hlotið dóm fyrir í máli nr. S-206/2014 hafi hafist fljótlega eftir að afplánun hans lauk og séu ítrekun við fyrri dóma. Dómfelldi hafi nú verið dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með vopni, tvær aðrar líkamsárásir auk nokkurra auðgunarbrota og sérrefsilagabrota. Þykir að mati lögreglu ljóst að dómfelldi hafi einbeittan brotavilja og ekkert lát virðist vera á brotastarfsemi hans með vísan til fjölda tilfella, alvarleika brotanna, dóms í máli nr. S-206/2014 og sakaferils dómfellda.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, dóms í máli nr. S-206/2014 og ferils dómfellda telur lögregla yfirgnæfandi líkur á því að hann muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að dómfelldi sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir æðri dómi.

Sakarefni málanna eru talin varða við 1. mgr. 155. gr., 217. gr., 2. mgr. 218. gr., 244. gr., og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, en brot gegn ákvæðunum geti varðað fangelsi allt að 16 árum ef sök sannast. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. og 3. mgr. 97. gr., laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, framlagðra krafna, fyrri úrskurða auk tveggja dóma Hæstaréttar vegna gæsluvarðhalds dómfellda, dóms í máli nr. S-206/2014, c-liðar 1. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr. laga um meðferð sakamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

                Eins og rakið hefur verið var dómfelldi dæmdur í tveggja ára fangelsi, með dómi Héraðsdóms Reykjaness 11. júní 2014, fyrir mörg brot sem framin voru á tímabilinu frá september 2013 fram í mars 2014. Dómfelldi hefur lýst yfir áfrýjun til Hæstaréttar. Að þessu virtu og þar sem hann hefur allt frá árinu 2006 margsinnis verið dæmdur til refsingar vegna ýmiss konar brota er fullnægt skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að ætla megi að dómfelldi haldi áfram brotum meðan á áfrýjunarfresti stendur. Samkvæmt framansögðu og með vísan til 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 er fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en ástæða er til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. 

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Dómfelldi, X, skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, meðan dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli S-206/2014 er til meðferðar fyrir Hæstarétti eða uns dómur er þar upp kveðinn, þó eigi lengur en til mánudagsins 3. nóvember  2014 kl. 16:00.