Hæstiréttur íslands
Mál nr. 477/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 25. ágúst 2009. |
|
|
Nr. 477/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Stefán Eiríksson, lögreglustjóri) gegn X (Jón Höskuldsson hrl.) |
|
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. ágúst 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. ágúst 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. sama mánaðar kl. 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði látinn sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst varnaraðili þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og verði gæsluvarðhaldsvist án takmarkana.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, föstudaginn 21. ágúst 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt [...], til að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. ágúst nk. kl. 16. Þá er þess einnig krafist að tilhögun gæsluvarðhalsins verði samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að hinn 13. ágúst sl., um kl. 12:35, hafi kærði verið handtekinn, ásamt sambýliskonu sinni, A, við verslunina Y að [...] í Reykjavík. Í fórum A hafi fundist skartgripir sem stolið hafi verið i í íbúðarhúsnæði að Z í Reykjavík þann 8. ágúst sl.
Í framhaldi hafi lögreglan gert húsleit á heimili kærða að Þ í Kópavogi, þar sem hald hafi verið lagt á mikið magn skartgripa, myndavéla og annarra muna sem lögreglan telji víst að sé þýfi (sjá nánar meðfylgjandi húsleitarskýrslu og myndir).
Á meðal þeirra muna sem fundust á heimili kærða var þýfi sem rekja megi til eftirfarandi þjófnaðarmála:
i) innbrot í íbúðarhúsnæði að Æ í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48965, sem framið var 12. ágúst sl.
ii) innbrot í íbúðarhúsnæði að Ö í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-15507, sem framið var 14. mars sl.
iii) innbrot í bifreið sem stóð við hús nr. [...] að Holtagerði í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-44660, sem framið var 21. júlí sl.
iv) innbrot í íbúðarhúsnæði að U í Garðabæ, sjá mál nr. 007-2009-46547, sem framið var 31. júlí sl.
v) innbrot í í bifreið sem stóð við Ú í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-50155, sem framið var um 15. júlí sl.
vi) innbrot í bifreið sem stóð við Kársnesbraut [...] í Kópavogi, sjá mál nr. 007-2009-50033, sem framið var 15. júlí sl.
Kærði hafi hjá lögreglu neitað aðild sinni að ofangreindum málum og sagst hafa keypt umrædda muni af manni að nafni B. Jafnframt hafi hann sagt sig gruna að hluti munanna væri þýfi.
Í gærkvöld hafi lögreglan gert húsleit að R í Kópavogi, en þar búi C og D, sem báðir sæti nú gæsluvarðhaldi, grunaðir um stórfelld þjófnaðarbrot og að tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Við húsleitina hafi fundist mikið þýfi.
Meðal þeirra muna sem lagt hafi verið hald á hafi verið þýfi úr innbroti að R í Reykjavík (mál 007-2009-48170) og innbroti í U í Garðabæ (mál 007-2009-46547). Það sé því ljóst að kærði, X, tengist umræddum C.
Hér sé um að ræða umfangsmikla rannsókn á fjölmörgum innbrotum, víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum dögum og vikum. Lögreglan hafi lagt hald á gífurlegt magn muna, sem ætla megi að séu þýfi, og vinni nú hörðum höndum að því að rekja slóð hins meinta þýfis. En eins og kunnugt sé hafi lögreglu borist fjölmargar tilkynningar um innbrot inn á heimili fólks að undanförnu. Þá liggi fyrir að lögreglan leiti ofangreinds B. Jafnframt hafi lögreglan hafið kannanir á póstsendingum frá Íslandi, sem kunni að tengjast málinu. Fyrir liggi að kærði hafi fyrri skömmu sent pakka til Póllands sem lögreglu gruni að hafi haft innihaldið þýfi.
Umræddur B sé talin tengjast hópi manna sem séu virkir aðilar í innbrotum hér á höfuðborgarsvæðinu og lögregla hafi kortlagt, sjá nánar meðfylgjandi skýringarmynd.
Í haldi lögreglu séu nú fimm einstaklingar, sem allir séu grunaðir um sameiginlega aðild að skipulögðum innbrotum inn á heimili fólks. Í málinu liggi m.a. fyrir upplýsingar frá Interpol um að kærði sé þar á skrá um að hafa tekið við og varslað þýfi þar í landi.
Fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið verknað sem varðar allt að 6 ára fangelsisrefsingu. Rannsókn máls þessa sé á viðkvæmu stigi og ljóst að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en meðal annars eigi eftir að yfirheyra sakborninga frekar eftir því sem rannsókn málanna miði áfram og þau skýrist frekar, svo og að hafa upp á öðrum sakborningum og rekja slóð hins meinta þýfis.
Rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi og því afar brýnt að kærði fái ekki tækifæri til að torvelda henni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a liðar 1. mgr. 95. gr.. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Það er mat dómsins að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði kunna að verða uppvís að broti er varðar gæti allt að sex ára fangelsi, ef sannast.
Umfangmikil rannsókn lögreglu á fjölmörgum innbrotum er á viðkvæmu stigi. Þegar litið er til alls framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. 88/2008 til að verða við kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald og er hún tekin til greina eins og hún er sett fram. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b lið 1. mgr. 99. gr. laganna.
Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. ágúst nk. kl. 16.00
Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.