Hæstiréttur íslands
Mál nr. 257/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Nauðungarvistun
- Frávísun frá Hæstarétti
- Lögvarðir hagsmunir
|
|
Miðvikudaginn 23. apríl 2014. |
|
Nr. 257/2014.
|
A (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) gegn velferðarsviði Reykjavíkur (Kristbjörg Stephensen hrl.) |
Kærumál. Nauðungarvistun. Frávísun máls frá Hæstarétti. Lögvarðir hagsmunir.
Kærður var úrskurðar þar sem hafnað var kröfu A um að ákvörðun innanríkisráðuneytisins um nauðungarvistun A í 21 sólahring yrði felld úr gildi. Kærunni var vísað frá Hæstarétti enda var sá tími liðinn og skorti A því lögvarða hagsmuni af því að fá úrskurðinum hnekkt.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. apríl 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2014, þar sem hafnað var kröfu sóknaraðila um að felld yrði úr gildi ákvörðun innanríkisráðuneytisins 27. mars 2014 um vistun hans á sjúkrahúsi. Kæruheimild er í 1. mgr. 16. gr. lögræðislaga nr. 71/1997. Sóknaraðili krefst þess að framangreind ákvörðun innanríkisráðuneytisins verði felld úr gildi og þóknunar til handa skipuðum talsmanni sínum vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti.
Varnaraðili krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá Hæstarétti en til vara að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með hinum kærða úrskurði var hafnað kröfu sóknaraðila um niðurfellingu 21 sólarhrings nauðungarvistunar hans á sjúkrahúsi sem samþykkt var af hálfu innanríkisráðuneytisins 27. mars 2013 með stoð í 3. mgr., sbr. 2. mgr., 19. gr. lögræðislaga. Sá tími er nú liðinn og hefur sóknaraðili því ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá hnekkt hinum kærða úrskurði um nauðungarvistunina. Málinu verður því vísað frá Hæstarétti.
Samkvæmt 4. mgr. 31. gr., sbr. 1. mgr. 17. gr., lögræðislaga greiðist úr ríkissjóði þóknun talsmanns sóknaraðila fyrir Hæstarétti, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Þóknun skipaðs talsmanns sóknaraðila, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti, 125.500 krónur greiðist úr ríkissjóði.