Hæstiréttur íslands
Mál nr. 80/2012
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
- Gjafsókn
|
|
Fimmtudaginn 27. september 2012. |
|
Nr. 80/2012.
|
Lidija Blazeviciene (Stefán Geir Þórisson hrl.) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Hákon Árnason hrl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.
Mál L gegn V hf. var fellt niður fyrir Hæstarétti að ósk L en að kröfu aðila gekk dómur um málskostnað og gjafsóknarkostnað L
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason settur hæstaréttardómari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 6. febrúar 2012. Með bréfi 19. september sama ár féll áfrýjandi frá áfrýjun sinni. Jafnframt óskuðu aðilarnir eftir því að dómur gengi um málskostnað og gjafsóknarkostnað. Þeir krefjast hvor um sig málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi hins, en áfrýjandi gerir þá kröfu fyrir sitt leyti án tillits til gjafsóknar sem honum hefur verið veitt fyrir réttinum.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er málið fellt niður.
Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.
Um gjafsóknarkostnað áfrýjanda fer eftir því sem segir í dómsorði.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, Lidija Blazeviciene, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar, 300.000 krónur.