Hæstiréttur íslands
Mál nr. 558/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
- Útlendingur
|
|
Þriðjudaginn 21. ágúst 2012. |
|
Nr. 558/2012. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Úlfar Guðmundsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. Útlendingar.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. 18. gr. laga nr. 86/2008, og a. og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason og Þorgeir Örlygsson og Helgi I. Jónsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. ágúst 2012, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. ágúst 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. ágúst 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með skírskotun til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. ágúst 2012.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fd. [...] í Pakistan, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. ágúst 2012 kl. 16.00. Krafan er sett fram með vísan til a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga.
Kærði mótmælir kröfunni. Krefst kærði þess aðallega að kröfunni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Í greinargerð Lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að kærði hafi verið stöðvaður við vegabréfaskoðun 18. ágúst sl. 2012. Hafi kærði verið á leið í flug til Toronto í Kanada. Kærði hafi framvísað við lögreglu bresku vegabréfi með númerinu [...], nafni X og fæðingardegi [...]. Við nánari skoðun lögreglu á vegabréfinu hafi vaknað grunur um að vegabréfið kynni að vera breytifalsað. Skoðun sérfræðinga lögreglustjóra á vegabréfinu hafi leitt í ljós að allar líkur séu á að vegabréfið kunni að vera breytifalsað. Í kjölfar afskipta af kærða hafi lögregla leitað í farangri kærða, en ekkert hafi fundist sem varpað geti ljósi á það hver kærði sé og vinni lögregla nú að því að reyna að upplýsa hver kærði sé.
Sé vísað nánar til meðfylgjandi gagna málsins.
Rannsókn þessa máls sé á frumstigi. Meðal þess sem þurfi að rannsaka sé aðdragandi ferðar kærða til landsins og frá því. Þá hafi lögregla tekið fingraför af kærða en beðið sé eftir staðfestingu frá erlendum löggæsluyfirvöldum um hvort kærði sé þekktur í gagnagrunnum erlendra löggæsluyfirvalda og hvort unnt sé að staðreyna hver kærði sé í raun og veru. Að svo stöddu telji lögregla sig ekki hafa nægjanlegar upplýsingar til að ætla hver kærði sé. Af þeim sökum telji lögregla að kærði skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til rannsóknar hjá lögreglu. Vísist í þessu skyni m.a. til dóms Hæstaréttar Íslands frá 3. ágúst sl. í máli nr. 529/2012.
Lögregla telji að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi í blekkingarskyni framvísað við lögreglu breytifölsuðu vegabréfi því skyni að komast til Kanada. Sé brot kærða talið varðar við 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og liggi við því allt að átta ára fangelsi. Þess sé krafist að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt a. og b. liðum 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 telji lögreglustjóri að kærða skuli gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. ágúst 2012 kl. 16.00.
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði, sem er erlendur ríkisborgari, undir rökstuddum grun um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Þykir lögregla hafa sýnt fram á að uppfyllt séu skilyrði laga til að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan máli hans er ekki lokið. Er skilyrðum a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. ágúst 2012 kl. 16.00.