Hæstiréttur íslands

Mál nr. 505/2017

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
X (Þorgils Þorgilsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. ágúst 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. ágúst 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. september 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanni verði beitt í stað gæsluvarðhalds.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Eins og greinir í hinum kærða úrskurði hefur varnaraðili sætt gæsluvarðhaldi frá 28. apríl 2017, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, en með stoð í 2. mgr. sömu lagagreinar frá 19. maí sama ár. Ákæra var gefin út í málinu 10. júlí 2017, þar sem varnaraðila og öðrum manni er gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að þeir hafi staðið saman að innflutningi á 2.963,64 g af MDMA, sem hafði að meðaltali 80% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Með dómum Hæstaréttar 24. maí 2017 í máli nr. 323/2017 og 21. júní 2017 í máli nr. 394/2017 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum til þess að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Í málinu er ekkert fram komið sem haggar þeirri niðurstöðu. Samkvæmt framansögðu verður hinn kærði úrskurður staðfestur, en þar sem varnaraðili sætir gæsluvarðhaldi er brýnt að málinu verði hraðað eins og kostur er, sbr. 1. mgr. 171. gr. laga nr. 88/2008, 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. samnings um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu.

                                             Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.         

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 10. ágúst 2017

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að X, fd. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi áfram, allt til fimmtudagsins 7. september nk., klukkan 16.

                Í greinargerð lögreglustjóra segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar mál er varði innflutning fíkniefna hingað til lands. Lögreglu hafi borist upplýsingar þess efnis að til stæði að flytja inn mikið magn af sterkum fíkniefnum hingað til lands með ferjunni Norrænu. Lögreglan hafi því verið með eftirlit á tollsvæðinu á Seyðisfirði þegar ferjan hafi komið hingað til lands 25. apríl sl. Bifreiðin [...] hafi vakið athygli lögreglu og tollvarða og verið tekin til frekari skoðunar. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið Y og hafi afskipti lögreglu og tollvarða af honum og bifreiðinni leitt til þess að grunsemdir hafi vaknað um að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. Lögreglan hafi í framhaldinu fengið heimild héraðsdóms Reykjaness til að koma fyrir eftirfararbúnaði og hljóðupptöku í bifreiðinni sem og í farsíma Y.

                Bifreiðinni hafi síðan verið fylgt eftir til Reykjavíkur og hafi henni verið ekið sem leið liggur til Keflavíkur þar sem Y hafi sótt kærða X á flugvöllinn. Þeir hafi síðan ekið að gistiheimilinu [...] fyrir austan þar sem þeir hafi átt pantað herbergi.

                Hinn 27. apríl sl. hafi þeir Y og X ekið í verslunina [...] og keypt þar topplyklasett, sexkanta, nælonhanska, skrúfjárn og vigt. Hafi lögregla talið að ætlunin væri að nota þessi verkfæri til að ná fíkniefnum úr bifreiðinni. Y og X hafi verið handteknir síðdegis 27. apríl sl. á gistiheimilinu [...] með rúmlega eitt kg af MDMA. Þegar þeir hafi verið handteknir hafði kærði X sett um helming efnanna inn á vasa á yfirhöfn sinni. Við leit í bifreiðinni [...] hafi fundist um tvö kg af MDMA, en þau fíkniefni hafi verið í eins pakkningum og fíkniefnin sem áður höfðu fundist í herberginu á gistiheimilinu. Það sé ætlun lögreglu að kærðu hafi ætlað að afhenda efnin einhverjum óþekktum aðila.

Samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði sé um mjög sterkt efni að ræða, en styrkur fíkniefnisins MDMA í sýninu hafi verið 80-81%, sem samsvari 95-96% af MDMA-klóríði.

                Y og X hafi báðir neitað sök. Rannsókn lögreglu sé nú lokið og hafi ákæra verið gefin út í málinu 10. júlí sl. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá 28. apríl sl. og hafi úrskurður héraðsdóms þess efnis verið staðfestur í Hæstarétti, sbr. dóm nr. 291/2017. Kærði hafi nú sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála frá 19. maí sl. og hafi sá úrskurður verið staðfestur í Hæstarétti, sbr. dóma í málum nr. 323/2017 og 394/2017

                Í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að kærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að kærða verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómi.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

Eins og að framan greinir hefur kærði sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 28. apríl sl., fyrst vegna rannsóknarhagsmuna, en frá 19. maí sl. á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóma Hæstaréttar 24. maí 2017 í máli nr. 323/2017 og 21. júní sl. í máli nr. 394/2017. Í dómum þessum hefur Hæstiréttur slegið því föstu að kærði sé undir sterkum grun um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geti fangelsi allt að 12 árum. Þá hefur Hæstiréttur fallist á að nauðsynlegt sé með tilliti til almannahagsmuna að kærði sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Ákæra var gefin út í málinu 10. júlí sl. og bárust málsgögn héraðsdómi 13. sama mánaðar. Verður málinu úthlutað til dómara á næstu dögum. Ekki er fallist á með kærða að verulegur dráttur hafi orðið á meðferð málsins fyrir dómi. Með vísan til framangreinds þykir ekkert fram komið í málinu sem breytir áðurgreindu mati Hæstaréttar og er því fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærði sæti gæsluvarðhaldi áfram á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, allt eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kærði, X, fæddur [...], sæti gæsluvarðhaldi áfram, allt til fimmtudagsins 7. september nk., klukkan 16.