Hæstiréttur íslands

Mál nr. 597/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Flýtimeðferð


Fimmtudaginn 23

 

Fimmtudaginn 23. nóvember 2006.

Nr. 597/2006.

Dóra Dröfn Skúladóttir

(Gísli Guðni Hall hdl.)

gegn

Landspítala-háskólasjúkrahúsi

(enginn)

 

Kærumál. Flýtimeðferð.

Úrskurður héraðsdóms um að ekki væri fullnægt skilyrðum 1. mgr. 123. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til útgáfu stefnu til flýtimeðferðar á máli, sem D hugðist höfða á hendur Landspítala-háskólasjúkrahúsi, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. nóvember 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. nóvember 2006, þar sem synjað var beiðni sóknaraðila um útgáfu stefnu til flýtimeðferðar á máli, sem hún hyggst höfða á hendur Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Kæruheimild er í n. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að gefa út stefnu til flýtimeðferðar á málinu.

Eins og rakið er í héraðsdómi hyggst sóknaraðili, sem er hjúkrunarfræðingur á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, höfða mál til ógildingar á tilfærslu milli deilda á geðsviði sjúkrahússins, sem henni hefur verið gert að hlíta. Ráða má af rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun að hún sé ekki byggð á því að ávirðingar, sem á sóknaraðila hafa verið bornar af samstarfsmanni hennar, séu á rökum reistar, heldur hafi verið talið að ágreiningur þeirra myndi valda röskun á starfsemi viðkomandi deildar og að við því hafi þurft að bregðast. Ákvörðunin felur ekki í sér starfslok sóknaraðila á geðsviði sjúkrahússins. Hins vegar er það háð viðbrögðum hennar hvort tilfærslan geti leitt til þess að hún hætti þar störfum. Með þessum athugasemdum og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur um synjun á útgáfu stefnu til flýtimeðferðar á máli sem sóknaraðili, Dóra Dröfn Skúladóttir, hyggst höfða á hendur Landspítala-háskólasjúkrahúsi.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur  16. nóvember 2006.

Með bréfi Gísla Guðna Hall hdl., dags. 7. nóvember sl., var óskað eftir flýtimeðferð vegna fyrirhugaðrar málshöfðunar Dóru Drafnar Skúladóttur, Hraunbæ 56, Reykjavík, á hendur Landspítala-háskólasjúkrahúsi, þar sem gerð verður krafa um ógildingu þeirrar ákvörðunar sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði LSH að flytja hana til í starfi af deild 33-C á Landspítalanum við Hringbraut yfir á deild 15 á Kleppi, sem henni var tilkynnt með bréfi, dags. 17. október 2006.

Með bréfi dags. 9. nóvember sl. hafnaði dómstjórinn í Reykjavík framangreindri beiðni og synjaði um útgáfu stefnu.  Með bréfi dags. 15. nóvember sl. var þess krafist, í samræmi við 3. mgr. 123. gr. laga nr. 91/1991, að kveðinn yrði upp úrskurður um synjunina.

Í beiðninni kemur fram að Dóra Dröfn Skúladóttir unir ekki ákvörðuninni og telur sér óskylt að hlíta henni. Ákvörðunin sé íþyngjandi í hennar garð. Standi ákvörðunin óhögguð kunni hún að leiða til uppsagnar. Fram kemur í stefnu að hún sé hjúkrunarfræðingur að mennt, hafi starfað hjá Landspítala-háskólasjúkrahúsi (LSH) frá árinu 1999 og allt frá árinu 2001 hafi hún starfað á deild 33-C á Landspítalanum við Hringbraut, sem er bráðageðdeild. Með bréfi sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði LSH, dags. 17. október 2006, var henni tilkynnt um flutning á milli deilda á geðsviði LSH og að hin nýja deild yrði deild 15 á Kleppi. Þar skyldi hún mæta til vinnu að morgni 23. október 2006.  Um ástæðu þessa segir svo í bréfinu:

Í kjölfar atviks sem gerðist á milli tveggja hjúkrunarfrœðinga, á móttökudeild 33-C á geðsviði LSH, á heimili annars þeirra aðfaranótt 30. september sl. var sú ákvörðun tekin af deildarstjóra móttökugeðdeildar 33-C og sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði LSH að óheppilegt væri að áðurnefndir hjúkrunarfræðingar ynnu báðir á sömu deild á geðsviði. Lýsing á atviki frá báðum aðilum, leiðir líkum að því að farsœlast sé að hjúkrunarfrœðingar vinni ekki náið saman á nœstunni.

Beiðni um flýtimeðferð málsins er rökstudd með því að brýnir atvinnuhagsmunir Dóru Drafnar Skúladóttur séu í húfi af skjótri dómsúrlausn um ágreininginn. Þar til dómur gangi um lögmæti ákvörðunarinnar sé óvissa um réttarstöðu hennar, nánar tiltekið hverjum skyldum hún beri að sinna í starfi sínu. Fáist ekki skjót dómsúrlausn sé veruleg hætta á því að svo fari að hún missi starf sitt.

Vísað er til þess að samkvæmt 1. mgr. 123. gr. laga nr. 91/1991 geti aðili óskað eftir því að mál sæti flýtimeðferð samkvæmt ákvæðum XIX. kafla laganna, ef brýn þörf sé á skjótri úrlausn, enda hafi hún almenna þýðingu eða varði stórfellda hagsmuni hans. Ljóst sé að þessum lagaskilyrðum sé fullnægt.  

Ákvörðun sú sem krafist er ógildingar á varðar tilfærslu Dóru Drafnar Skúladóttur  í starfi en ekki er um uppsögn að ræða. Samkvæmt ráðningarsamningi er gert ráð fyrir því að hún geti færst milli deilda. Eins og fram kemur í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni er vinnutími og vinnufyrirkomulag með sambærilegum hætti og verið hefur. Þá kemur ekki fram að hún missi nokkurs í launum og fyrir liggur að hún mun eftir sem áður vera styrkt af geðsviði í ársnám í Endurmenntun HÍ í hugrænni atferlismeðferð. Þá kemur einnig fram í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni að um tímabundna ráðstöfun geti verið að ræða. Ekki verður séð af meðfylgjandi gögnum að veruleg hætta sé á því að Dóra Dröfn Skúladóttir missi starf sitt, ef ekki fæst skjót dómsúrlausn um ágreininginn.

Að þessu virtu verður ekki  talið að uppfyllt sé það skilyrði 1. mgr. 123. gr. laga nr. 91/1991 fyrir flýtimeðferð að málið varði stórfellda hagsmuni sóknaraðila.

Samkvæmt framansögðu er hafnað beiðni um flýtimeðferð máls þessa og synjað um útgáfu stefnu. 

Eggert Óskarsson varadómstjóri kvað upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Beiðni Dóru Drafnar Skúladóttur um flýtimeðferð í fyrirhuguðu máli hennar gegn

Landspítala-háskólasjúkrahúsi er hafnað og synjað um útgáfu stefnu.