Hæstiréttur íslands
Mál nr. 727/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Fimmtudaginn 13. nóvember 2014. |
|
Nr. 727/2014. |
Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum (Súsanna Björg Fróðadóttir fulltrúi) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
Kærumál. Farbann.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram
farbanni á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð
sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Dómur
Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Karl Axelsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2014 þar sem varnaraðila var áfram gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 9. desember 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2014.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist
þess í dag fyrir Héraðsdómur Reykjaness með vísan til b liðar 1. mgr. 95. gr.
og 1., 2. og 3. mgr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að X, kt. [...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi
farbanni allt til þriðjudagsins 9. desember 2014 kl. 16:00.
Kærði krefst þess aðallega að
kröfunni verið hafnað en til var að farbanni verið markaður skemmri tími.
Krafan er reist á því að kærði sé
undir rökstuddum grun um brot gegn 210. gr. a almennra hegningarlaga nr.
19/1940.
Í kröfu lögreglunnar og öðrum gögnum
málsins kemur m.a. fram að 1. ágúst sl. hafi tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
haft afskipti af kærða við komu hans til landsins. Hafi tollgæsluna grunað að
kærði hefði í vörslum sínum barnaklám. Við leit í farangri hafi fundist
vísbendingar um slíkt og lögreglan verið kölluð til í framhaldinu. Vegna
rannsóknar málsins hafi verið lagt hald á tvær Samsung
tölvur og sex minnislykla sem kærði hafi haft meðferðis umrætt sinn. Rannsókn sé
nú lokið á mununum sem haldlagðir voru er kærði kom til landsins. Við skoðun á annarri Samsung
tölvunni hafi komið í ljós rúmlega 36.000 ljósmyndir sem sýni unga drengi nakta
og á kynferðislegan hátt. Einnig hafi rannsókn leitt í ljós að kærði hafi
vistað í tölvum sínum og minniskubbum kvikmyndaskrár sem hafi verið eytt af
tölvunum. Lögregla hafi fundið 11 kvikmyndir sem sýni drengi á kynferðislegan
hátt. Þá hafi lögregla einnig lagt hald á fartölvu á dvalarstað kærða hér á
landi við húsleit sem framkvæmd hafi verið 19. ágúst sl. Hafi rannsókn lögreglu
á þeirri tölvu m.a. leitt í ljós að horft hafi verið á hreyfimyndir í tölvunni
sem lögregla telur innihalda kynferðisbrot gegn börnum. Um sé að ræða skrá sem
síðast hafi verið opnuð 12. ágúst sl. og gefi heiti skráarinnar tilefni til að
ætla að um sé að ræða skrá sem innihaldi svipað efni. Rannsókn á tölvugögnum
kærða sé lokið og telji rannsakandi engan vafa leika á því að kærði sé eigandi
þessara gagna og muni málið fara nú í kjölfarið til saksóknara og er talið afar
líklegt að gefin verði út ákæra með hraði á hendur kærða.
Kærði
hafi við skýrslutökur hjá lögreglu alfarið neitað sök. Hafi hann gefið þær
skýringar á tilvist framangreindra mynda í tölvum sínum og á usb kubbum að hann hafi ekki einn haft aðgang að tölvum
sínum. Hafi samstarfsmenn hans haft aðgang að tölvunum og telji kærði að þeir
gætu hafa komið þeim fyrir í tölvunum. Varðandi usb
kubbana hafi kærði greint frá því að hann hefði keypt þá notaða á útimarkaði í
[...]. Varðandi tölvuna, sem hald hafi verið lagt á á dvalarstað kærða hér á
landi, hafi kærði gefið þær skýringar að tölvan sé í eigu dóttur hans og hann
hafi ekki horft á framangreinda hreyfimynd í tölvunni. Miðað við þau
rannsóknargögn sem liggi fyrir í málinu telji lögregla skýringar kærða á
tilvist umræddra ljós- og hreyfimynda vera afar ótrúverðugar. Rannsakandi telji
ekki nokkurn vafa leika á því að kærði sé eigandi umræddra gagna.
Kærði
hafi þann [...] verið dæmdur í Hæstarétti í 3 ára og 6 mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn ungum dreng, brot gegn 1. og 3. mgr. 202. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940. Kærða hafi verið veitt reynslulausn þann 7. desember
2012 í 2 ár á eftirstöðum refsingar, 420 dögum. Þau brot sem kærði sé sakaður
um séu mjög alvarleg að mati lögreglu og telji lögregla rökstuddan grun vera
fyrir hendi um að kærði hafi brotið gegn XXII. kafla almennra hegningarlaga nr.
19/1940, nánar tiltekið 210. gr. a.
Kærði
er íslenskur ríkisborgari en sé búsettur og með lögheimili í [...] og starfi
þar sem [...]. Kærði hafi því takmörkuð tengsl við landið að mati lögreglu. Þá
beinist rannsókn lögreglu að alvarlegum brotum sem kærða er gefið sök að hafa
framið. Í ljósi þess og alvarleika þeirra brota sem kærða sé gefið að sök, telji
lögregla hættu á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar
koma sér undan með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar verði
honum ekki gert að sæta farbanni. Af þessum sökum telji lögregla að skilyrðum b
liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga um meðferð sakamála sé fullnægt í
málinu. Vísist í þessu skyni einnig til dóma Hæstaréttar Íslands í máli nr.
559/2014 frá 26. ágúst og að auki í máli nr. 670/2014 frá 16. október sl. þar
sem fyrri farbannskrafa lögreglu hafi verið tekinn til greina.
Með vísan til
alls framangreinds, b liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1., 2. og 3. mgr. 100. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 210. gr. a almennra hegningarlaga nr.
19/1940, telji lögreglustjóri brýna hagsmuni standa til þess að kærða verði
gert að sæta áframhaldandi farbanni allt til þriðjudagsins 9. desember 2014 kl.
16:00.
Samkvæmt
rannsóknargögnum málsins er kærði undur rökstuddum grun um að hafa framið brot
sem fangelsisrefsing er lögð við. Kærði er íslenskur ríkisborgari en hann er
með lögheimili í [...] þar sem hann býr og starfar. Með dómi Hæstaréttar í máli
nr. 559/2014 var kærða gert að sæta farbanni til 16. september sl. og með dómi
Hæstaréttar í máli nr. 614/2014 var kærða gert að sæta farbanni til dagsins í
dag. Rannsókn málsins er nú lokið og verða rannsóknargögn, að sögn fulltrúa
lögreglustjóra, send ríkissaksóknara á
allra næstu dögum en rannsóknin mun hafa verið tæknilega flókin og tímafrek. Með
vísan til þessa er fallist á að áfram
sé nauðsynlegt að tryggja nærveru kærða meðan máli hans er ekki lokið, enda
skilyrðum 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. b lið 1. mgr. 95. gr. sömu
laga, fullnægt til þess að kærða verði bönnuð för úr landinu. Verður því
fallist á kröfu lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð
þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Varnaraðili, X, kt.
[...], sæti farbanni allt til þriðjudagsins 9. desember nk. kl. 16:00.