Hæstiréttur íslands
Mál nr. 303/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 3. júní 2008. |
|
Nr. 303/2008. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Ásbjörn Jónsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. maí 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. júní 2008. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. maí 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. maí 2008.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag, að X, fd. [...], rúmenskum ríkisborgara, verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 6. júní 2008, kl. 16.00 og til vara að hann sæti farbanni allt til föstudagsins 20. júní kl. 16.00.
Kærði krefst þess að kröfunni verði hafnað. Til vara er þess krafist að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Verði kærða gert að sæta farbanni er þess krafist að því verði markaður skemmri tími.
Í greinargerð lögreglu segir að kærði hafi ásamt samferðakonu sinni og unnustu, A, verið stöðvaður í tollhliði við reglubundið eftirlit er þau komu til landsins með flugi frá London sunnudaginn 18. maí s.l. Við leit í farangri kærða og samferðarkonu hans fann lögregla og tollgæsla 60 óútfyllt kort, samskonar og greiðslukort sem höfðu að geyma segulrönd. Voru kortin vandlega falin innan um klæðnað í ferðatöskum kærða og samferðarkonu hans.
Rannsókn máls þessa er í fullum gangi. Telur lögreglan rökstuddan grun fyrir því að kærðu hafi ætlað að nota þau kort sem haldlögð voru í vörslum þeirra í ólögmætum tilgangi með því að koma þeim í umferð hér á landi. Þá hefur við rannsókn málsins komið fram að eitt kortanna var notað á Hótel Loftleiðum hér á landi þann 16. þessa mánaðar af lögmætum handhafa eða aðeins tveimur dögum áður en kærði og samferðarkona hans komu með kortin til landsins. Þá hefur komið í ljós að lögmætur handhafi þess greiðslukorts sem farmiðar kærða og samferðarkonu hans voru greiddir með er í vörslum konu í Rúmeníu sem kveðst ekki hafa greitt farmiða til Íslands. Því telur lögreglustjóri að það kort kunni að vera falsað sem notað var við greiðslu farmiðanna. Með vísan til þessa telur lögreglustjóri að ætluð brot kærða og samferðarkonu hans kunni að vera mun umfangsmeiri og kunni að tengjast aðilum og skipulagðri glæpastarfsemi víða um heiminn. Þann 23. maí sl. kom samlandi kærðu og samferðarkonu hans til landsins og hafði þann 27. maí sl. samband við lögmann í því skyni að grenslast fyrir um kærða og samferðarkonu hans. Sá var handtekinn hér á landi í morgun og var yfirheyrður í dag. Ljóst er að verulegs ósamræmis gætir í framburði aðila í málinu. Þá er jafnframt ljóst að kærði og samferðarkona hans hafa ekki liðsinnt lögreglu í því að upplýsa málið og eru framburðir þeirra afar ótrúverðugir að mati lögreglu. Meðal þess sem rannsaka þarf er aðdragandi ferðar kærðu til landsins og tengsl kærðu við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi og eða erlendis, þar á meðal þann aðila sem kom hingað til lands þann 23. maí sl auk annarra atriða. Þá hefur kærði eigi fallist á að heimila lögreglu að skoða síma sinn og þarf lögregla því að beita sérstakri rannsókn í því skyni en þar kunna að vera upplýsingar sem þörf er á að bera undir kærða og samferðarkonu hans áður en þau ná að samræma framburði sína. Með vísan til framangreinds er að mati lögreglu kominn fram rökstuddur grunur um að kærði og samferðarkona hans kunnu að hafa brotið gegn ákvæðum XVII. og XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 einkum 155., 244., 248. og 249. gr. Lögregla telur að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus. Kann ætluð háttsemi kærða að varða fangelsisrefsingu allt að 8 árum.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, XVII. og XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 96/2002 um útlendinga telur lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008 kl. 16.00.
Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Rannsókn málsins er ekki lokið og er ekkert fram komið annað en að henni sé hraðað eins og unnt er. Telja verður að enn séu fyrir hendi skilyrði téðs ákvæðis til að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008, kl. 16.00.