Hæstiréttur íslands
Mál nr. 63/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 5. febrúar 2007. |
|
Nr. 63/2007. |
Sýslumaðurinn á Selfossi(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn X (Sigurður Sigurjónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur. Kröfu hans um að takmörkunum í gæsluvarðhaldinu yrði aflétt var vísað frá Hæstarétti.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. febrúar 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1. febrúar 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. febrúar 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Að því frágengnu krefst hann þess að aflétt verði þeim takmörkunum, sem honum sé gert að sæta í gæsluvarðhaldsvistinni. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Ekki verður séð að varnaraðili hafi borið atriði er varða framkvæmd gæsluvarðhaldsins undir héraðsdóm og verður ákvörðun um það atriði því ekki kærð til Hæstaréttar að svo stöddu.
Eins og rakið er í hinum kærða úrskurði fundust 107,72 grömm af kókaíni í póstsendingu, sem varnaraðili var skráður viðtakandi að. Bróðir hans var handtekinn er hann vitjaði póstsendingarinnar en fram er komið að þeir búi á sama stað. Er fram kominn rökstuddur grunur um aðild varnaraðila að þessum innflutningi, sem varðar fangelsisrefsingu ef sök sannast. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Kröfu um að takmörkunum á gæsluvarðhaldi varnaraðila, X, verði aflétt er vísað frá Hæstarétti.
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1. febrúar 2007.
Sýslumaðurinn á Selfossi hefur gert þá kröfu að úrskurðað verði að kærða, X, [kt. og heimilisfang] en til dvalar að [heimilisfang] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 föstudaginn 9. febrúar n.k. á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Af hálfu kærða er þess krafist að kröfu um gæsluvarðhald verði hafnað en til vara að því verði markaður skemmri tími.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að forsaga málsins sé sú að tollverðir hafi fundið mánudaginn 29.01. s.l. meint fíkniefni í hraðsendingu frá Guyana, Suður Ameríku, í húsnæði Fedex að Gjótuhrauni 4 í Hafnarfirði. Sendingin var stíluð á kærða. Samkvæmt upplýsingum frá ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík, reyndist sendingin innihalda 107,72 gr. af kókaíni. Fíkniefnin voru fjarlægð, gerviefni sett í staðinn og sendingin hélt áfram sína leið. Hana sótti nefndur A, [kt.] á pósthúsið í Hveragerði síðdegis í gær og var þá handtekinn af lögreglu.
Kærði og sömuleiðis A hafa neitað að standa fyrir ofangreindum innflutningi á fíkniefnum. Við húsleit á heimili X fannst blá bók ofan á peningaskáp í bílskúr, sem A hefur játað að geymi samantekt um skuldir ýmissa aðila vegna fíkniefna sem hann útvegi þeim “þegar svo ber undir”. Í peningarskápnum fundust ýmsir munir sem lögregla telur tengjast fíkniefnaviðskiptum en A kannast við að eiga skápinn. Við leit í bifreið þeirri sem kærði var á þegar hann var handtekinn fundust 4 kúlur af ætluðu kókaíni.
Rannsókn lögreglu er nýhafin. Um verulegt magn fíkniefna er að ræða og telur lögregla öruggt að þau hafi verið ætluð til dreifingar hérlendis. Eftir er að rannsaka bankareikninga kærða, símtöl og framkvæma efnarannsókn á hinum haldlögðu fíkniefnum. Hætt er við að kærði geti spillt rannsókninni með því að hafa samband við vitni eða aðra samseka, verði hann látinn laus áður en rannsókn verður lengra á veg komin.
Sýslumaður vísar til að verið sé að rannsaka ætluð brot kærða á lögum nr. 65,1974 um ávana- og fíkniefni og á 173. gr. a. almennra hegningarlaga, nr. 19,1940. Það sakarefni sem hér um ræðir mun varða fangelsisrefsingu ef sök telst sönnuð. Rannsókn málsins er viðamikil og er á frumstigi og veruleg hætta þykir á að hinir grunuðu muni torvelda rannsóknina með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni og samseka.
Með vísan til alls framanritaðs, rannsóknarhagsmuna, svo og með vísan til a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, er þess farið á leit að ofangreind krafa um gæzluvarðhald nái fram að ganga.
Kærði hefur neitað að hafa staðið fyrir ofangreindum innflutningi á fíkniefnum. Kærði segist eiga lögheimili að [heimilisfang] en hann búi að [heimilisfang] en þar hafi bróðir hans, A einnig dvalið. Kærði neitar því að hafa haft nokkurn grun um það hvers vegna umrædd sending var merkt honum. Spurður um afnot af bifreið kærða kvast hann hafa leyft bróður sínum A að nota bifreiðina, meðal annars vegna þess að bifreið A væri ver útbúin til vetraraksturs. Kærði væri trésmiður og sé hann ofstast sóttur heim þegar hann fari í vinnu og skilji því bifreið sína eftir heima, ólæsta og með lyklum í kveikjuásnum. Kærði sagðist síðast hafa opnað öskubakkann í bifreið sinni 1. eða 2. desember sl., þegar hann fór með bifreiðina í þvottastöði í Mosfellsbæ en þar hefði hann sett pening í hann. Síðan hafi hann ekki opnað öskubakkann í bifreiðinni en hann reyki ekki. Í lögregluskýrslum af A kom fram að A væri einn eigandi að peningaskáp þeim er leit var gerð í í bílskúr á heimili kærða og staðfesti A að kærði ætti ekkert af því sem í skápnum fannst enda hafi hann ekki vitað talnaröðina að læsingunni á skápnum.
Um verulegt magn fíkniefna sé að ræða og telur lögregla öruggt að þau hafi verið ætluð til dreifingar hérlendis. Eftir er að rannsaka bankareikninga kærða, símtöl og framkvæma efnarannsókn á hinum haldlögðu fíkniefnum. Telur lögreglan að hætt sé við að kærði geti spillt rannsókninni með því að hafa samband við vitni eða aðra samseka, verði hann látinn laus áður en rannsókn verður lengra á veg komin.
Kærða er gefið að sök að hafa átt aðild að því að flytja inn 107,72 grömm af kókaíni sem tollverðir fundu þann 29. janúar sl., við leit í húsnæði Fedex að Gjótuhrauni 4, Hafnarfirði. Kom efnið með hraðsendingu frá Guyana í Suður Ameríku. Kærði neitar því að hafa staðið fyrir ofangreindum innflutningi og neitað að hafa vitað nokkuð um umrædda sendingu.
Í gögnum málsins liggur fyrir að heima hjá kærða fundust ýmis gögn í læstum peningaskáp, sem talin eru tengjast fíkniefnum. Kærði hefur alfarið neitað að hafa haft vitneskju um það sem í skápnum var. Þá fullyrðingu styður framburður A sem hefur viðurkennt að eiga skápinn ásamt fleirum svo og innihald hans. Fíkniefni fundust í bifreið kærða og þrátt fyrir neitun hans um að hafa vitað um þau færir það stoð undir sekt kærða.
Rannsókn lögreglu er nýhafin eins og kemur fram í greinargerð hennar. Um verulegt magn fíkniefna sé að ræða og telur lögregla öruggt að þau hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hérlendis. Eftir sé að rannsaka bankareikninga kærða, símtöl og framkvæma efnarannsókn á hinum haldlögðu fíkniefnum. Allt þetta getur lögregla rannsakað þrátt fyrir að kærði sé ekki í gæsluvarðhaldi. Þá telur lögregla að kærði geti spillt rannsókninni með því að hafa samband við vitni eða aðra samseka, verði hann látinn laus áður en rannsókn verður lengra á veg komin en brot kærða varði við lög nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 173. gr. a almennra hegningalga nr. 19/1940 og varði fangelsisrefsingu ef sök telst sönnuð. Rannsóknin sé viðamikil og veruleg hætta á að kærði muni torvelda rannsóknina með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni og samseka.
Kærði er grunaður um brot sem geta varðað hann fangelsisrefsingu ef sök sannast. Kærði neitar sakargiftum en rannsóknargögn vekja sterkan grun um aðild hans að framangreindum broti. Eftir er að rannsaka hugsanlega samseka í málinu ásamt öðru sem tekið er fram í greinargerð lögreglu. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og verður að telja að hætta sé á því að kærði geti spillt rannsókninni með óskertu frelsi, svo sem með því að hafa áhrif á vitni eða þá sem hugsanlega eru samsekir. Rannsóknarhagsmunir styðja þannig kröfu um að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er því fallist á að skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála séu uppfyllt og verður krafa sýslumannsins á Selfossi tekin til greina, og skal kærði sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 þriðjudaginn 6. febrúar n.k.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, [kt.], skal sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 6. febrúar nk. kl. 16:00.