Hæstiréttur íslands

Mál nr. 498/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 26. ágúst 2011.

Nr. 498/2011.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Óli Ásgeir Hermannsson fulltrúi)

gegn

X

(Leifur Runólfsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. ágúst 2011 sem barst Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. ágúst 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. september 2011 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 23. ágúst 2011.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að ákærða, X, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. september 2011, kl. 16:00.

Ákærði mótmælir kröfunni.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að hinn 21. ágúst hafi lögreglan haft afskipti af ákærða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er hann hafi verið að koma frá Kaupmannahöfn. Ákærði hafi framvísað írösku vegabréfi með nafni sínu. Við skoðun á vegabréfinu hafi grunsemdir lögreglumanna vaknað um að vegabréfið væri falsað og því hafi ákærði í kjölfarið verið tekinn til skoðunar á landamærum. Í greinargerðinni segir að við afskipti lögreglunnar hafi ákærði viðurkennt að vegabréfið væri falsað, en við fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfunnar tók fulltrúi lögreglustjórans fram að þetta væri ekki alls kostar rétt. Í framburðarskýrslu hjá lögreglu hafi ákærði neitað því að vegabréfið væri falsað, en að mati lögreglu sé ákærði mjög ótrúverðugur.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að engin svör hafi borist frá erlendum yfirvöldum um það hver ákærði er. Kveðst lögreglustjóri telja að rökstuddur grunur leiki á því að ákærði gefi rangar upplýsingar um það hver hann er enda hafi hann á engan hátt getað gert grein fyrir sér með sannanlegum hætti. Með vísan til þessa telji lögreglustjóri að nauðsynlegt sé að ákærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglu og Útlendingastofnun, enda sé með öllu óvíst hver ákærði raunverulega er.

Með vísan til framangreinds, gagna málsins, 7. mgr. 29. gr. útlendingalaga nr. 96/2002, sbr. lög nr. 86/2008, svo og á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. september 2011, kl. 16.00.

Niðurstaða.

Fyrr í dag var gefin út á hendur ákærða ákæra þar sem honum er gefið að sök skjalafals, með að hafa við komu til landsins framvísað lögreglu á Keflavíkurflugvelli í blekkingarskyni fölsuðu vegabréfi og er brotið heimfært til 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 í ákærunni. Við þingfestingu málsins fyrr í dag neitaði ákærði sök og hefur málinu verið frestað til aðalmeðferðar næstkomandi föstudag.

Samkvæmt gögnum málsins er ákærði útlendingur, sem hefur engin tengsl við landið. Þykir því hætta á að ákærði muni reyna að komast úr landi og koma sér þannig hjá málsókn og fullnustu refsingar fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til þessa þykja uppfyllt skilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til að fallast á kröfu lögreglustjórans og er krafan tekin til greina eins og hún er fram sett.

Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

                Ákærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. september nk. kl. 16.00.