Hæstiréttur íslands

Mál nr. 390/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Mánudaginn 13

 

Mánudaginn 13. júlí 2009.

Nr. 390/2009.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir, saksóknari)

gegn

X

(Þorsteinn Einarsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. júlí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júlí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 6. ágúst 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.  

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júlí 2009.

                Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 4 vikur eða til 6. ágúst 2009, kl. 16.00.

                Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist upplýsingar um seglskútu sem stefndi í átt að landi á Djúpavogi og gáfu þessar upplýsingar tilefni til frekari athugana af hálfu lögreglu.  Meðal annars hafi þessar upplýsingar leitt til þess að fylgst var með ferðum þriggja manna á tveimur bifreiðum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi meðferðis slöngubát með utanborðsvél.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna var á ferð um Djúpavog. 

Síðar um kvöldið hafi sést til ferða bátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog sást koma akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi.  Tveir menn sem komu í land á bátnum og sá sem verið hafði á bifreiðinni tóku töskur úr bátnum og komu þeim fyrir í bifreiðinni.  Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott.  Bifreiðinni hafi verið fylgt eftir af hálfu lögreglu og við Höfn í Hornafirði hafi bifreiðin verið stöðvuð og hafi ökumaður verið handtekinn. Í leit í bifreiðinni hafi fundist töskur sem reyndust innihalda um 55 kíló af amfetamíni, um 54 kíló af kannabis og 9.432 MDMA töflur. 

Af hálfu lögreglu hafi verið fylgst með mönnunum tveimur sem komið höfðu að landi á bátnum. Sáust þeir sigla bátunum úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Þeir hafi síðar um kvöldið verið handteknir á Djúpavogi á bifreiðinni Y. 

Landhelgisgæslan hafi hafið leit að skútunni skömmu eftir að tilkynningin barst og hafi hún fundist á siglingu á hafinu á milli Íslands og Færeyja, á svæði sem kom heim og saman við fyrri upplýsingar um staðsetningu skútunnar, tímasetningar, veður og fleira.  Gaf Landhelgisgæslan skútunni skipun um að stöðva, en ekki hafi verið orðið við því.  Hafi skútunni verið því fylgt eftir og er varðskipið Týr kom að skútunni hafi sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra farið um borð í skútuna og handtekið þrjá menn sem voru um borð, þeirra á meðal kærði.  Hafi skútan þá verið stödd á alþjóðlegu hafsvæði í efnahagslögsögu Færeyja og var færeyskum yfirvöldum gert viðvart um aðgerðirnar. 

Kærði hafi alfarið neitað sök vegna málsins.

Fyrir liggi að kærði hafi verið handtekinn um borð í skútunni og að tengsl séu á milli kærða a.m.k. A og fyrir liggi framburður A um að þeir hafi hist erlendis áður en ferðin var farin. Einnig sé talið að símasamskipti hafi verið á milli kærða og A áður en efnin hafi verið flutt úr skútunni yfir í bátinn.

Fyrir liggi framburður A og B um að þeir hafi móttekið töskur frá áhöfn skútunnar og auk þess liggi fyrir framburðir fleiri vitna sem staðfesta að skútan hafi komið svo nálægt landi að þeir hafi getað mætt bátnum og afhent þeim efnin. A hafi gefið í skyn í sínum framburði að kærði hafi verið í skútunni.

Einnig hafi komið fram fleiri atriði sem tengi bátinn og skútuna og megi þar sem dæmi nefna að símtöl voru á milli áhafna þessara sjófara þennan dag, olía sem keypt hafi verið á Djúpavogi reyndist vera um borð í skútunni, og upplýsingar um leiðbeiningar um uppsetningu á GPS búnaði, á hollensku, fundust í bifreiðinni og sömu upplýsingar á íslensku í bifreið A. Einnig hafi fundist kassi undan talstöðvum um  borð í skútunni en engar talstöðvar hafi hins vegar fundist. Í bifreið sem B hafi verið á hafi fundist talstöð sömu tegundar og sú sem hafði verið í kassanum og eins talstöð fannst einnig í bifreið sem A og C voru á.

Gögn málsins renni stoðum undir ætlaðan þátt kærða í hinu stórfellda fíkniefnabroti.  Það sé því mat ákæruvalds að sterkur grunur sé um að kærði hafi átt þátt í að flytja til landsins mikið magn fíkniefna ætluðum til söludreifingar hér á landi.

Málið hafi borist ríkissaksóknara miðvikudaginn 8. júlí sl. Meðfylgjandi ákæra hafi verið gefin út í dag, 9. júlí 2009 og send héraðsdómi. Þar sé kærði ákærður fyrir að hafa í félagi við fimm aðra einstaklinga flutt fíkniefni til landsins ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni. Þáttur kærða sé talin vera sá að sigla með efnin áleiðis til Íslands og afhenda þau áfram í því skyni að þeim yrði komið áfram til landsins.

Ætlað brot kærða teljist varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga en brot gegn ákvæðinu varðar fangelsi allt að 12 árum.

Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 21. apríl sl. en með úrskurði héraðsdóms frá 20. apríl 2009, nr. R-7/2009, hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, til 12. maí sl.  Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 192/2009. Með úrskurði héraðsdóms nr. R-193/2009 þann 12. maí hafi kærða verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 29. maí, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 240/2009. Með úrskurði héraðsdóms nr. R-230/2009 þann 29. maí sl. var kærði úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, til 9. júní. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 294/2009. Þann 9. júní var kærða gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 23. júní, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-256/2009. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að kærði skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, en féllst þó ekki á þá kröfu lögreglu að kærði skyldi áfram sæta einangrun, sbr. dómur Hæstaréttar nr. 318/2009.

Þann 23. júní sl. hafi kærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 14. júlí, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-288/2009. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms, sbr. dómur Hæstaréttar nr. 354/2009.

Almannahagsmunir krefjist þess að kærði verði í gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans og sé vísað til dómvenju í þeim efnum.

Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999. Þar hafi sakborningum verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms en fyrir lá sterkur grunur um beina aðild þeirra að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og er talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og tilvitnaðra lagaákvæða sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Með vísun til þess sem að framan var rakið er fallist á það með Ríkissaksóknara að kærði sé undir sterkum grun um að eiga aðild að smygli á miklu magni fíkniefna til landsins. Slíkt brot getur varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Enn fremur er fallist á það að brotið sem kærði er grunaður um að hafa framið sé þess eðlis að varðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til  almanna­hagsmuna. Ákæra á hendur kærða var gefin út í dag og stendur því 4. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála ekki í vegi fyrir því að gæsluvarðhaldi verði beitt. Samkvæmt framangreindu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. sömu laga og verður því fallist á kröfu Ríkissaksóknara eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 6. ágúst 2009, kl. 16.00.