Hæstiréttur íslands

Mál nr. 130/2004


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Fimmtudaginn 1

 

Fimmtudaginn 1.apríl 2004.

Nr. 130/2004.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(enginn)

gegn

X

(enginn)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

X var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. mars 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. mars 2004, þar sem fallist var á kröfu sóknaraðila um að varnaraðili sætti áfram gæsluvarðhaldi allt til þess að dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en þriðjudagsins 27. apríl 2004 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Ætla verður að varnaraðili kæri úrskurð héraðsdómara í því skyni að fá úrskurðinn felldan úr gildi.

Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. mars 2004.

                Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, verði á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi frá lokum þess gæsluvarðhalds sem hann nú sætir, en lýkur í dag kl. 16.00, uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 27. apríl 2004, kl. 16.00.

                Í greinargerð lögreglustjóra segir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi úrskurðað X í gæsluvarðhald þann 15. desember 2003 á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.  Þann 23. desember hafi  úrskurðarþoli verið úrskurðaður til að sæta gæslu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. og hafi það gæsluvarðhald verið framlengt þann 3. febrúar sl. til dagsins í dag.  Úrskurðarþoli hafi því þegar sætt gæsluvarðhaldi í 11 vikur og einn dag.

Úrskurður héraðsdóms frá 23. desember 2003 hafi verið kærður til Hæstaréttar þar sem hann hafi verið staðfestur með dómi 495/2003 frá 30. desember 2003 með þeirri athugasemd að einungis skyldi vísað til c-liðar 1. mgr. 103. gr. l. nr. 19/1991 en ekki jafnframt til a-liðar líkt og gert var í hinum kærða úrskurði.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hafi gefið út tvær ákærur á hendur úrskurðarþola.  Annars vegar ákæru dags. 23. desember 2003 þar sem ákært sé fyrir 9 þjófnaði, 4 hylmingarbrot og 2 fjársvik og hins vegar ákæra dags. 23. janúar 2004 þar sem ákært sé  fyrir hylmingarbrot, 3 skjalafalsbrot, 4 fjársvik, 2 þjófnaði og tilraun til þjófnaðar.  Einnig sé ákærð fyrrverandi sambýliskona X, A.  Ákærur þessar hafi verið þingfestar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og séu reknar undir málanúmerinu [...].  Aðalmeðferð í málinu sé þegar hafin.  Teknar hafi verið skýrslur af ákærðu og fyrirhuguð sé framhaldsaðalmeðferð þann 6. apríl nk.  Ákærði X hafi neitað sök varðandi alla ákæruliði í ákærunum tveimur, sé því um umfangsmikið mál að ræða og útskýri það að hluta hversu tímafrekur málareksturinn hafi verið fyrir dóminum.  Þá hafi það einnig tafið málareksturinn að ákærði skipti um verjanda rétt áður en aðalmeðferð málsins átti að hefjast.

Auk máls þess sem nú sé rekið á hendur kærða fyrir héraðsdómi Reykjavíkur sé einnig fjöldi mála til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði þar sem X sé kærður.  Fyrirséð sé því að önnur ákæra muni verða gefin út á hendur ákærða vegna ólokinna mála hans.

Ákærði, X hafi, samkvæmt sakarvottorði, langan sakaferil.  Hann hafi margsinnis verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og sérrefsilögum  en ávallt verið gerð skilorðsbundin refsing.  Hann hafi síðast hlotið dóm fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. október 2003 og hafi þar verið dæmdur til 7 mánaða fangelsisrefsingar en fullnustu refsingarinnar verið frestað skilorðsbundið í 3 ár.  Mörg þeirra brota sem sé að finna í fyrrgreindum ákærum myndu því dæmast sem skilorðsrof, skv. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ef hann verði sekur fundinn.

Samkvæmt framansögðu telji lögreglan ljóst að ákærði hafi verið í mikilli brotastarfsemi á undanförnum mánuðum.  Miðað við framangreindan brotaferil ákærða verði að telja yfirgnæfandi líkur á að ákærði muni halda áfram í brotastarfsemi gangi hann laus.

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 23. desember sl., sem staðfestur hafi verið af Hæstarétti, hafi verið fallist á að skilyrði c-liðar 1. mgr. 103. gr.  l. nr. 19/1991 væru fyrir hendi og því verði að telja að enn séu lagaskilyrði til áframhaldandi gæsluvarðhalds.  Að mati lögreglunnar sé mikilvægt að orðið verði við kröfu hennar svo að unnt verði að ljúka meðferð mála hans fyrir dómi og jafnframt að koma í veg fyrir frekari afbrot hans.

Lögreglan kveður kærða vera grunaðan um fjölda brota gegn 155. gr., 244. gr., 248. gr. og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Með vísan til alls framanritaðs, framlagðra gagna og loks með vísan til c-liðar 1. mgr. 103. gr., laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að krafan verði tekin til greina eins og hún er fram sett.

 

           Ákærði á langan sakarferil að baki m.a. vegna þjófnaðar- og auðgunarbrota auk umferðalagabrota og áfengis- og fíkniefnabrota og hlaut síðast dóm 3. október sl., sjö mánaða fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár. Síðan þá hefur lögreglan í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði unnið að rannsókn fjölda mála, sem ákærði er talinn tengjast. Gefnar hafa verið út tvær ákærur á hendur ákærða sem þingfestar hafa verið  í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í annarri ákærunni er ákært fyrir 9 þjófnaði, 4 hylmingarbrot og tvö fjársvikabrot flest framin í ágúst 2003.  Í hinni ákærunni er ákært fyrir hylmingarbrot, 3 skjalafalsbrot, 4 fjársvikabrot, tvo þjófnaði og tilraun til þjófnaðar.  Ákærði sætir enn fremur rannsókn vegna margra ætlaðra brota sem gætu varðað hann fangelsisrefsingu.  Af því sem fram er komið í málinu má ætla að ákærði haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið. Nauðsyn ber því til að stöðva brotastarfsemi ákærða til að unnt sé að ljúka málum hans og þykja skilyrði c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 vera fyrir hendi.

          Þá er krafa lögreglustjórans í Reykjavík um að ákærði sæti gæsluvarðhaldi tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

          Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til þess að dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 27. apríl 2004 kl. 16.00.