Hæstiréttur íslands

Mál nr. 259/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 30. apríl 2010.

Nr. 259/2010.

Ákæruvaldið

(Sigríður J. Friðjónsdóttir

vararíkissaksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. maí 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess aðallega að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. júní 2010 kl. 16, en til vara staðfestingar hins kærða úrskurðar. Með vísan til 4. mgr. 195. gr., sbr. 4. mgr. 199. gr., laga nr. 88/2008 verður, þrátt fyrir dóma Hæstaréttar meðal annars 12. ágúst 2008 í máli nr. 440/2008 og 3. mars 2010 í máli nr. 118/2010, aðalkrafa sóknaraðila tekin til meðferðar fyrir Hæstarétti þó að hann hafi ekki kært úrskurðinn fyrir sitt leyti.

Varnaraðili hefur nú samfellt sætt gæsluvarðhaldi allt frá 4. desember 2009 og á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 frá 12. janúar 2010. Þrátt fyrir það eru ekki nægileg efni til að fallast á kröfu hennar og verður aðalkrafa sóknaraðila tekin til greina.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. júní 2010 klukkan 16.

                                                                  

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2010.

Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...],[...],[...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. júní 2010 kl. 16:00.

Ákærða hefur mótmælt kröfu ríkissaksóknara og krefst þess að henni verði hafnað en til vara gerir hún þá kröfu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími en krafist er.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að snemma á árinu 2009 hafi ákærða verið til rannsóknar hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um innflutning fíkniefna, mansal og hagnýtingu vændis. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness í málinu nr. S-676/2009, uppkveðnum 1. desember 2009, hafi henni verið gert að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis. Ákærða hafi áfrýjað dóminum til Hæstaréttar.

Í október 2009, á meðan ofangreint mál var til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness, hafi rannsókn hafist gegn ákærðu að nýju vegna gruns um ætlað mansal og hagnýtingu vændis, sbr. mál lögreglu nr. 007-2009-64256. Lögregla hafi talið sig hafa rökstuddan grun um að ákærða flytti stúlkur til landsins, gerði þær út til vændis og tæki a.m.k. helming hagnaðarins af þeim. Ákærða hafi í kjölfarið verið handtekin vegna málsins 3. desember 2009 og hafi sætt gæsluvarðhaldi síðan 4. desember 2009, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna og síðar til þess að hindra frekari brotastarfsemi. Við rannsókn málsins hafi konur borið um að hafa stundað vændi hér á landi á vegum ákærðu og að þær hafi komið til landsins í því skyni að starfa við vændi á vegum ákærðu. Konunum beri saman um að ákærða hafi verið umráðamaður þess húsnæðis, sem þær dvöldu í og vændið væri stundað í, haft alla milligöngu við þá, sem keypt hafi vændisþjónustu þeirra,og tekið við greiðslu og haldið eftir verulegum hluta þess sem greitt var. Framkomnir vitnisburðir bendi einnig til þess að ákærða hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum þeirra kvenna, sem um ræðir, með því að beita ótilhlýðilegri aðferð, ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu. Fjármál ákærðu hafi verið til skoðunar hjá lögreglunni samhliða og í tilefni af framangreindri rannsókn. Auk framburða brotaþola og vitna, styðji símagögn og önnur gögn ætlað sakarefni á hendur ákærðu. Hafi komið í ljós að helsta tekjulind ákærðu hefur verið sú brotastarfsemi sem nú er til rannsóknar. Í byrjun janúar hafi lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu borist upplýsingar um að ákærða hafi boðið samfanga sínum, ungri konu, að starfa fyrir sig sem vændiskona fyrir kr. 500.000 á mánuði þegar hún væri laus úr fangelsi. Lögreglan hafi yfirheyrt konuna og staðfesti hún þetta auk þess sem tekin hafi verið skýrsla af öðrum fanga, sem varð vitni að ofangreindu samtali. Lögreglan hafi einnig lokið rannsókn í málum 007-2008-92653 og 007-2010-5923 sem varði ætlað brot ákærðu gegn 106. gr. og 217. gr. almennra hegningarlaga. Framangreind mál ákærðu hafi borist embætti ríkissaksóknara til meðferðar 1. febrúar sl. Ákvörðun hafi nú verið tekin um saksókn og hafi ákæra ríkissaksóknara verið gefin út á hendur ákærðu 26. febrúar sl. Ákærðu sé gefið að sök mansal, hagnýting vændis, hótanir, frelsissvipting, ólögmæt nauðung, líkamsárás og brot gegn valdstjórninni. Mál héraðsdóms Reykjaness nr. S-190/2010 hafi verið þingfest sama dag og þá hafi ákærða fengið fresti til að taka afstöðu til ákærunnar. Í fyrirtöku vegna málsins þann 2. mars sl. hafi ákærða neitað sök og fengið frest til 9. mars sl. til að skila greinargerð. Í greinargerð ákærðu komi fram að krafist hafi verið frávísunar ákæruliða I-IV og VI. Flutningur vegna frávísunarkröfu ákærðu hafi farið fram 15. mars sl. og í kjölfarið hafi tveimur ákæruliðum verið vísað frá, sbr. úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness í málinu nr. S-190/2010. Sá úrskurður hafi verið kærður til Hæstaréttar af hálfu ákæruvalds þar sem málið sé nú til meðferðar. Eftir að Hæstiréttur hafi kveðið upp dóm, sé fyrirhugað að halda aðalmeðferð í málinu, bæði um þá ákæruliði sem ekki var vísað frá af Héraðsdómi og eftir atvikum þá ákæruliði sem Hæstiréttur fjalli nú um. 

Ákærða hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 4. desember 2009 og vísar lögreglustjóri til úrskurða Héraðsdóms Reykjaness nr. R-676/2009, 695/2009, 721/2009, 20/2010, 86/2010, 146/2010 og 212/2010 sem og dóma Hæstaréttar í málum nr. 695/2009, 766/2009, 23/2010, 122/2010 og 199/2010 þar sem fallist var á að þörf væri á að ákærða sætti síbrotagæsluvarðhaldi vegna brota sinna.

Með vísan til þess sem að framan greinir telji ríkissaksóknari ljóst að ákærða hefur ekki látið af brotastarfsemi sinni þrátt fyrir að hafa sætt lögreglurannsóknum, gæsluvarðhaldi og verið ákærð og dæmd fyrir sambærileg brot, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-676/2009. Þá líti ríkissaksóknari það alvarlegum augum að ákærða leitist enn á ný, á meðan hún sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal og hagnýtingu vændis, við að fá konur til að starfa fyrir sig í vændi. Loks er það mat ríkissaksóknara að framangreind mál og rannsókn á fjármunum ákærðu bendi til þess að hún framfleyti sér með afbrotum. Ætla megi að ákærða muni halda áfram brotum gangi hún laus á meðan málum hennar er ekki lokið, sbr. c-lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2009. Sé þess því krafist að krafan nái fram að ganga svo unnt verði að ljúka málum hennar hjá dómstólum.

Sakarefni málanna varðar við 106, 206., 217., 225., 226., 1. tl. 1. mgr. 227. a., og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn ákvæðunum getur mest varðað allt að 8 árum. Krafa um gæsluvarðhald er byggð á c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Ákærða hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 4. desember 2009, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en svo með vísan til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Rannsókn málsins er lokið og hinn 26. febrúar sl. var þingfest mál á hendur henni fyrir ýmis brot sem geta varðað fangelsisrefsingu, m.a. mansal og vændi. Með vísan til alls framangreinds og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald en þó þannig að gæsluvarðhaldinu verður markaður tími til föstudagsins 21. maí nk. kl. 16:00.

Úrskurð þennan kveður upp Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Ákærða, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. maí 2010 kl. 16.00.