Hæstiréttur íslands

Mál nr. 658/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Hólmgeir Elías Flosason hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. september 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. október 2015 klukkan 16 og einangrun á meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. október nk., kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

                Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er og kröfu um einangrun hafnað.

I

                Í greinargerð lögreglustjóra segir meðal annars að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Hinn 28. september sl. hafi lögregla lagt hald á mikið magn af sterkum fíkniefnum sem fundist hafi í bifreið sem staðsett hafi verið við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir í húsnæðinu, grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni, sem innihélt fíkniefnin, undanfarna daga. Við það eftirlit hafi lögregla orðið vör við aðra bifreið sem virtist fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um sé að ræða bifreiðar sem kærði Baldur hafði tekið á leigu. Í gær hafi kærði verið handtekinn skammt frá gistiheimilinu á bifreiðinni [...] og hafi lögregla fundið sjónauka í bifreiðinni. Lögregla telji að kærði hafi þar verið að fylgjast með meðkærðu og bifreiðinni. 

                Lögreglustjóri vísar til þess að í ljósi framangreinds og þeirra gagna sem lögregla hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi og telji lögregla að fleiri aðilar kunni að tengjast málinu. Lögregla vinni að rannsókn málsins og sé talin brýn nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi á þessu stigi máls þar sem ljóst sé að ef kærði gangi laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögregla hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þykir þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.

                Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafa lögreglustjóra nái fram að ganga.

II

Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Ætla verður lögreglu nokkuð svigrúm til rannsóknarinnar, meðal annars til þess að kanna möguleg tengsl kærða við vitorðsmenn, bæði hér á landi og erlendis. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er krafa lögreglustjóra því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði.

Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

                Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. október nk., kl. 16:00.

                Kærða er gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.