Hæstiréttur íslands
Mál nr. 793/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Greta Baldursdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. desember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. desember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember 2017 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar er fallist á að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við og að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi þann tíma sem krafist er. Verður úrskurðurinn því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 12. desember 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember nk. kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Rannsókn lögreglu hafi beinst að fyrirtækinu A ehf. og aðilum er tengist því. Eigendur fyrirtækisins séu Y og Z og reki fyrirtækið [...]. Kærði sé [...]. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleiri aðilum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A ehf. sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna.
Fyrir liggi að við upphaf stofnunar verslunarinnar þá hafi verið millifærðar inn á fyrirtækið B ehf., sem hafi einnig verið í eigu Y og Z, samtals 28 milljónir, en hluti af þeim peningum hafi verið greiddur með reiðufé inn í fyrirtækið. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd.
Við rannsókn málsins hafi lögreglan aflað gagna varðandi bankareikninga kærða og fleiri aðila og hafi grunur lögreglu styrkst. Við skoðun á fjármálum kærða þá megi sjá að velta á reikningum hans sé langt umfram það sem opinber gögn gefi tilefni til. Kærði sé grunaður um peningaþvætti, bæði í gegnum sína eigin reikninga og aðild að peningaþvætti í gegnum starfsemi fyrirtækisins A ehf.
Við rannsókn málsins hafi einnig komið fram upplýsingar þess efnis að kærði sé í samstarfi með Z og fleiri aðilum varðandi innflutning fíkniefna hingað til lands. Við rannsókn málsins hafi lögreglan með heimild héraðsdóms hlustað og hljóðritað símtöl í og úr farsíma kærða. Við þá hlustun hafi komið í ljós að hann sé í samskiptum m.a. við Z í [...] og með hlustun og öflun gagna tengdum kærða hafi komið í ljós að hann hafi millifært töluverðar fjárhæðir af reikningi verslunarinnar á Z og Y. Þá hafi kærði og Z rætt um frekari millifærslur á peningum frá Íslandi út til [...].
Til viðbótar rannsókn lögreglu þá hafi pólsk lögregluyfirvöld haft til rannsóknar mál er varði skipulagða brotastarfsemi og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins. Hafi pólsk yfirvöld óskað eftir handtöku og húsleitum hjá aðilum tengdum fyrirtækinu en pólska lögreglan telji að eigendur fyrirtækisins hafi hagnast um hundrað milljónir króna á ólöglegum viðskiptaháttum.
Í greinargerðinni kemur fram að nánar sé vísað í fyrirliggjandi gögn hvað varði rökstuðning lögreglu með kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem og peningaþvætti. Kærði hafi verið handtekinn fyrr í dag og leit framkvæmd á heimili hans og í verslunum A sem og hjá öðrum sakborningum. Við leitirnar hafi verið lagt hald á mikið magn af gögnum, símum, tölvum, bókhald félagsins ofl. og sé ljóst að lögregla þurfi nú að fara yfir haldlögð gögn og sé mjög mikilvægt að lögreglan fái tækifæri til að bera gögnin undir kærða sjálfstætt á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi. Talsvert reiðufé, sem nemi andvirði nokkurra milljóna króna, hafi fundist á heimili kærða og annarra sakborninga. Telji lögregla brýna nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi, í einangrun, á þessu stigi máls þar sem ljóst sé að ef kærði gengur laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn, eða þeir sett sig í samband við hann, sem og möguleg vitni. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglu hafi ekki tekist að leggja hald á nú þegar.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Niðurstaða
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Rannsókn lögreglu hafi beinst að fyrirtækinu A ehf. og aðilum er tengist því. Eigendur fyrirtækisins séu Y og Z og reki fyrirtækið [...]. Kærði sé [...]. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleiri aðilum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A ehf. sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna.
Fyrir liggi að við stofnun verslunarinnar hafi verið millifærðar inn á fyrirtækið B ehf., sem hafi einnig verið í eigu Y og Z, samtals 28 milljónir, en hluti af þeim peningum hafi verið greiddur með reiðufé inn í fyrirtækið. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A ehf. og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd.
Við rannsókn málsins hafi lögreglan aflað gagna varðandi bankareikninga kærða og fleiri aðila. Við skoðun á fjármálum kærða þá megi sjá að velta á reikningum hans sé langt umfram það sem opinber gögn gefi tilefni til og innborganir í reiðufé óútskýrðar í reikningum Kærði sé grunaður um peningaþvætti, bæði í gegnum sína eigin reikninga og aðild að peningaþvætti í gegnum starfsemi fyrirtækisins A ehf.
Við rannsókn málsins hafi jafnfram komið fram að kærði sé í samstarfi með Z og fleiri aðilum varðandi innflutning fíkniefna hingað til lands. Með heimild héraðsdóms hafi í þágu rannsóknar verið hlustuð og hljóðrituð símtöl í og úr farsíma kærða. Við þá hlustun hafi komið í ljós að hann sé í samskiptum m.a. við Z í [...] og með hlustun og öflun gagna tengdum kærða hafi komið í ljós að hann hafi millifært töluverðar fjárhæðir af reikningi verslunarinnar á Z og Y. Þá hafi kærði og Z rætt um frekari millifærslur á peningum frá Íslandi út til [...].
Þá kemur fram að pólsk lögregluyfirvöld hafi haft til rannsóknar mál er varði skipulagða brotastarfsemi og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins og óskað eftir handtöku og húsleitum hjá aðilum tengdum fyrirtækinu en pólska lögreglan telji að eigendur fyrirtækisins hafi hagnast um hundrað milljónir króna á ólöglegum viðskiptaháttum.
Lögregla telur í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem og peningaþvætti. Ætluð brot kærða eru talin varða við 175. gr. a, 173. gr. a og 264.gr. almennra hegningarlaga og geta varðað allt að 6 ára fangelsi og eftir atvikum 12 ára fangelsi.
Fallist er á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalaga broti sem og peningaþvætti. Við húsleit á heimili kærða og annarra sakborninga í dag fannst reiðufé, er nemur andvirði nokkurra milljón króna og haldlagt var mikið magn gagna, bæði símar og tölvugögn sem þarf að kanna. Þá er fallist á að brýna nauðsyn beri til að kærði sæti gæsluvarðhaldi í einangrun á þessu stigi máls þar sem kærði gæti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir haft samband við hann, og möguleg einnig vitni. Þá er nauðsynlegt að tryggja kærði nái ekki að spilla eða koma undan gögnum er lögreglu hefur ekki þegar tekist að leggja hald á nú þegar.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, alvarleika málsins og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála er fallist á að krafan skuli ná fram að ganga eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Dómari fellst ekki á með verjanda að vægari úrræði komi til greina í máli þessu, svo sem farbann. Þá eru ekki á þessu stigi efni til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma þar sem með hliðsjón af atvikum öllum, gögnum málsins og því sem rakið hefur verið, bendir allt til að rannsókn verði umfangsmikil og teygi sig til annarra landa. Um heimild til einangrunar meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til 2. mgr. 98. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga en eins og rakið hefur verið krefjast brýnir rannsóknarhagsmunir þess að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Þórður Clausen Þórðarson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. desember 2017, kl. 16:00. Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.