Hæstiréttur íslands

Mál nr. 38/2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
x (Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun á meðan á því stæði.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Davíð Þór Björgvinsson og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. janúar 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. febrúar 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sóknaraðili krefst þess aðallega að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 16. febrúar 2017 klukkan 16, en til vara að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði staðfestur og að ,,gæsluvarðhaldið verði án takmarkana.“

Með skírskotun til forsendna hins kærða úrskurðar og vísan til 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 16. febrúar 2017, kl. 16:00.  Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra. Hann krefst þess aðallega að gæsluvarðhalds­­kröfunni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er og að gæsluvarðhaldið verði án takmarkana.

I

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er til þess vísað að lögregla hafi til rannsóknar hvarf A sem síðast hafi sést í miðbæ Reykjavíkur laugardaginn 14. janúar sl. Þá hafi A sést í eftirlitsmyndavél á [...], rétt fyrir kl. 05:30, þar sem hún hafi gengið upp [...] á móts við hús númer [...]. A hafi eftir það ekki sést í eftirlitsmyndavélum á svæðinu. Ekkert hafi sést til hennar síðan. Lögregla hafi aflað símagagna úr farsíma A og þar sjáist hvar síminn tengist símsendum frá [...] þar til það slokkni á símanum við [...], um kl. 05:50. Lögregla telji með tilliti til þess hversu hratt síminn hafi farið yfir að A hafi verið í bifreið á þessum tíma. Engin hreyfing hafi verið á greiðslukortum hennar eða samskiptamiðlum eftir það samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Lögregla hafi síðastliðna daga aflað myndskeiða úr öryggismyndavélum víðs vegar um miðbæ Reykjavíkur í þeim tilgangi að afla upplýsinga um ferðir A umrædda nótt. Athygli lögreglu hafi vakið að á svipuðum tíma og öryggismyndavélar misstu sjónar á A hafi [...] bifreið verið ekið í mynd. Lögregla ætli að þá hafi verið í bifreiðinni a.m.k. þrjár manneskjur.

Við rannsókn og eftirgrennslan eftir A hafi sl. mánudag fundist skór sem staðfest hafi verið að séu skór þeir sem A var í umrædda nótt. Skórnir hafi fundist nærri [...]. Í ljósi þess fundar og gagna sem legið hafi fyrir um að slökkt hafi verið á síma A í [...] hafi lögregla ákveðið að afla og skoða myndskeið úr öryggismyndavélum á hafnarsvæðinu í [...]. Á myndskeiði sjáist að aðfaranótt laugardagsins 14. janúar sl., rétt eftir að á síma A slokknaði, var [...] ekið að [...] togara, B, sem þar lá við bryggju. Út úr bifreiðinni stigu tveir aðilar, fullorðnir karlmenn. Þeir aðhafist eitthvað í kringum bifreiðina og gruni lögreglu að eitthvað eða einhver hafi verið í aftursæti bifreiðarinnar miðað við háttalag mannanna. Annar aðilinn fari síðan um borð í togarann en hinn aki bifreiðinni burt. Lögregla hafi borið kennsl á þessa tvo aðila sem kærða og Y, en báðir séu þeir skipverjar á B. Ökumaðurinn, kærði, aki þá bifreiðinni á annan stað á hafnarsvæðinu þar sem hann stígi út úr bifreiðinni og fari inn í farþegasætið aftur í. Hann sé síðan inni í bifreiðinni í um 50 mínútur og aki síðan í burtu. Í myndskeiði úr öryggismyndavélum sjáist móða á rúðum bifreiðarinnar. Rúmum fjórum klukkutímum síðar hafi bifreiðinni verið ekið aftur að hafnarsvæðinu og henni lagt við skipið. Út úr bifreiðinni hafi kærði síðan stigið. Við skoðun á myndskeiðum úr öryggismyndavélum megi enn fremur sjá kærða þrífa bifreiðina að innan, mest aftursætið hægra megin í bifreiðinni.

Við rannsókn lögreglu hafi komið í ljós að bifreiðin var leigð út föstudaginn 13. janúar sl. Skráður leigutaki var kærði. Lögregla hafi lagt hald á bifreiðina og hafi hún verið rannsökuð. Tæknideild lögreglu í samstarfi við vísindastofnanir vinni að ítarlegri rannsókn alls þess sem aflað hafi verið úr bifreiðinni. Það sé bráðabirgðaniðurstaða sérfræðinga lögreglu að sýnin, eðli þeirra og umfang, bendi til þess að í bifreiðinni hafi manneskju verið ráðinn bani.

Skipinu B hafi verið siglt frá landi að kvöldi 14. janúar sl. Skipinu hafi verið snúið við að morgni 18. janúar sl. Sama dag hafi sérsveitarmönnum frá ríkislögreglustjóra verið flogið á B er skipið kom inn í íslenska lögsögu. Þar hafi kærði og Y verið handteknir um kl. 14:00. Skipið hafi síðan komið að landi við [...] um kl. 23 í gærkvöldi.

Þegar kærða hafi verið kynnt það sakarefni að hann væri undir grun um að eiga aðild að hvarfi A hafi hann neitað sök. Við yfirheyrslu á lögreglustöð sl. nótt hafi kærði skýrt svo frá að hann hefði tekið umrædda bifreið á leigu og á ferð sinni um miðbæ Reykjavíkur umrætt sinn hefði hann, ásamt Y, tekið tvær stúlkur upp í bifreiðina. Hann hefði ekið sem leið lá suður í [...]. Þar hefði hann látið félaga sinn út úr bifreiðinni en stúlkurnar tvær hafi verið eftir í bifreiðinni. Þær hafi verið með honum í bifreiðinni í [...] í nokkra stund áður en þær eða A fór úr bifreiðinni í [...] við hringtorg, eins og hún hefði óskað eftir. Kærði hafi kannast við það af myndum að önnur þessara stúlkna hafi verið A.

Við skýrslutöku hafi kærða verið kynnt að ökuskírteini A hafi fundist við leit í B við komu þess til hafnar. Skírteinið hafi verið í svörtum plastpoka á dekki togarans. Aðspurður hafi kærði ekki getað skýrt það af hverju skírteinið fannst þar og segist hann ekki bera ábyrgð á því.

Lögreglustjóri segir rannsókn lögreglu hafa leitt í ljós að hvarf A skýrist af því að henni hafi verið banað að morgni laugardagsins 14. janúar sl. Grunsemdir lögreglu byggi á því að kærði hafi tekið hana upp í bifreiðina er hann ók um [...] um morguninn samkvæmt framansögðu. Kærði hefði ekið A svo að segja rakleiðis til [...] þar sem hann hafi látið skipsfélaga sinn út úr bifreiðinni. Kærði beri að A hafi meðal annarra verið farþegi í bifreið hans í þessari ökuferð. Rannsókn tæknideildar þyki nú þegar gefa þá niðurstöðu að í bifreiðinni hafi manneskju verið ráðinn bani.  Í ljósi framangreinds sé kærði undir rökstuddum grun um að bera ábyrgð á hvarfi A aðfararnótt laugardagsins 14. janúar sl. Rannsókn málsins sé afar umfangsmikil og hafi hún staðið sleitulaust, dag og nótt, frá því að ættingjar A settu sig í samband við lögreglu 14. janúar sl., kl. 19:01. Enn sé verið að afla gagna auk þess sem ljúka þurfi leit í skipinu. Þá sé viðamikil rannsókn í gangi á þeim gögnum sem hald hafi þegar verið lagt á. Skýrslutökur af vitnum standi yfir jafnframt sem yfirheyra þurfi aðra sakborninga. Leit standi enn yfir að A. Ljóst sé að ef kærði gangi laus geti hann sett sig í samband við aðra og þannig haft áhrif á framburð þeirra. Sæti kærði ekki gæsluvarðhaldi, í einangrun, gæti hann jafnframt komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögregla hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins.

Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í málinu. Kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé þess krafist að ákærða verði gert að gæta gæsluvarðhaldi og til að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

II

Með vísan til framangreinds, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við.

Rannsókn málsins er umfangsmikil og leggur lögregla allt kapp á að finna A sem saknað hefur verið síðan aðfaranótt 14. janúar sl. Ætla verður lögreglu talsvert ráðrúm til þess að rannsaka meint brot kærða og grunaðs samverkamanns hans. Telja verður að gangi kærði laus megi ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Rannsókn lögreglu hefur staðið yfir síðan aðfaranótt 15. janúar sl. en kærði var ekki handtekinn fyrr en í gær. Átti lögregla þess fyrst kost að taka af honum skýrslu sl. nótt. Lögreglustjóri krefst þess í málinu að kærða verði gert að sæta gæsluvarðahaldi og einangrun í fjórar vikur. Gæsluvarðhald er sú þvingunarráðstöfun sem að öðru jöfnu gengur lengst í þá átt að skerða réttindi manna. Þeirri ráðstöfun eru því settar þröngar skorður í lögum, sbr. meðal annars ákvæði 3. mgr. 67. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Þá er brýnt með vísan til meðalhófsreglunnar að gæsluvarðhaldsvist standi eins stutt og kostur er. Að þessu og öðru framangreindu virtu þykir hæfilegt nú að gera kærða að sæta gæsluvarðhaldi, og einangrun í gæsluvarðhaldinu, í tvær vikur. Með því móti þykir vera gætt að fullu þeirra rannsóknarhagsmuna sem lögreglustjóri hefur sýnt fram á í málinu, enda á lögreglustjóri þess kost að þeim tíma liðnum að setja fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald teljist lagaskilyrði þá enn uppfyllt fyrir þeirri ráðstöfun.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kærði, X, fæddur [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. febrúar 2017 kl. 16:00.

Kærða er gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.