Hæstiréttur íslands
Mál nr. 653/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 8. október 2014. |
|
Nr. 653/2014. |
Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu (Jón
H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald.
A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar
sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu
stæði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún
Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. október 2014 sem
barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms
Reykjaness 6. október 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi
allt til mánudagsins 13. október 2014 klukkan 16 og einangrun meðan á því
stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð
sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr
gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjanes 6.
október 2014.
Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til a-lið 1. mgr. 95.
gr. og b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 17.
október nk., kl. 16:00. Þá er þess
krafist að kærðu verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu
stendur.
Kærða
hefur mótmælt kröfu lögreglustjóra.
I
Í greinargerð lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu kemur meðal annars fram að að kvöldi föstudagsins 3. október
sl., kl. 19:44, hafi lögreglan í Stokkhólmi handtekið aðila með mikið magn
fíkniefna í fórum sínum. Hafi umræddur aðili verið með símanúmerið [...].
Samkvæmt gögnum lögreglu hafi kærða,
sem þá var stödd í Stokkhólmi, reynt að hringja ítrekað í umrætt símanúmer hið
sama kvöld, en án árangurs. Hafi kærða síðan verið handtekin við komuna til
landsins í gærkvöldi, grunuð um aðild að umræddu fíkniefnamisferli.
Við skýrslutöku í nótt hafi kærða
viðurkennt að hafa farið til Stokkhólms í þeim tilgangi að flytja fjögur kíló
af amfetamíni til Íslands. Kærða kvað
aðila, sem hún treystir sér ekki til að segja hver er, hafa beðið sig um að
flytja efnin til Íslands og að hún hafi átt að fá tvær milljónir króna fyrir
innflutninginn. Kærða sagðist hins vegar hafa hætt við að flytja efnin áður en
hún fór til Svíþjóðar og jafnframt hafa tilkynnt skipuleggjanda innflutningsins
þá ákvörðun.
Lögreglustjóri segir framburð kærðu
um fráhvarf hennar frá fíkniefnainnflutningnum ekki standast því 4. október
sl. hafi aðili, með símanúmerið [...], hringt í kærðu og skýrt henni frá því að
ekki gæti orðið af innflutningnum þar sem ekki hefði náðst í aðilann sem verið
hefði með efnin. Samkvæmt gögnum lögreglu hafi umræddur maður hringt kl. 18:03
hinn 3. október sl. í þann aðila sem handtekinn hafi verið með efnin og spurt
hann hvort allt væri í lagi. Hann hafi svarað játandi og hafi símtalinu þá
verið slitið.
Um kl. 14:30 í dag hafi lögregla
síðan handtekið þann aðila sem umrætt kvöld hafi bæði verið í símasambandi við
kærðu og þann mann sem handtekinn var með fíkniefnin í fórum sínum. Við handtökuna hafi hann verið með
símanúmerið [...]. Sá aðili hafi ekki enn verið yfirheyrður af lögreglu.
II
Lögreglustjóri segir kærðu undir
rökstuddum grun um að hafa ætlað að flytja hingað til lands mikið magn
amfetamíns. Rannsóknin málsins sé á frumstigi. Lögregla telji ljóst að fleiri
aðilar tengist málinu og þurfi að hafa uppi á þeim og taka af þeim skýrslur. Að
mati lögreglu megi ætla að ef kærða verði látin laus muni hún eiga þess kost að
torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að ræða við samverkamenn og hafa
áhrif á framburð þeirra eða koma undan munum. Rannsókn málsins, sem unnin sé í
samvinnu við sænsk lögregluyfirvöld, sé á viðkvæmu stigi og því afar brýnt að
krafa lögreglustjóra verði tekin til greina.
Sakarefnið kveður lögreglustjóri
varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga en brot gegn því ákvæði varði allt
að tólf ára fangelsi.
Samkvæmt öllu framansögðu og með
vísan til gagna málsins telji lögreglustjóri nauðsynlegt að kærðu
verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr.
88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 17. október nk. kl. 16.00
og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
III
Með
vísan alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með
lögreglustjóra að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa brotið gegn 173.
gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, eftir atvikum sbr. 20. og 22. gr.
sömu laga, en brot gegn 173. gr. a. getur varðað allt að tólf ára fangelsi.
Rannsókn
málsins er í fullum gangi. Þannig var ætlaður samverkamaður kærðu handtekinn
kl. 14:30 í dag en ekki hefur gefist ráðrúm til þess að yfirheyra hann. Er fallist á það með lögreglustjóra að gangi
kærða laus megi ætla að hún kunni að torvelda rannsókn málsins, svo sem
með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á
samseka eða vitni. Skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð
sakamála eru því uppfyllt í málinu. Þá er fallist á að uppfyllt séu skilyrði
til að kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur skv. 2. mgr. 98. gr.
laga nr. 88/2008, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Er því fallist á kröfu
lögreglustjóra um að kærða sæti
gæsluvarðhaldi með þeim hætti sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð
þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærða,
X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 13. október nk., kl. 16:00.
Kærða
skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.