Hæstiréttur íslands
Mál nr. 689/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 20. nóvember 2012. |
|
Nr. 689/2012.
|
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Garðar K. Vilhjálmsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. nóvember 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. nóvember 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. nóvember 2012 klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að beitt verði vægari úrræðum, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðefstur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. nóvember 2012
I
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt til fimmtudagsins 22. nóvember 2011, kl. 16:00.
Í greinargerð með kröfunni segir að hinn 12. nóvember sl. hafi lögreglu borist tilkynning um að brotist hefði verið inn á skemmtistaðinn A, sem sé til húsa við [...].
Á upptökum úr öryggismyndavél staðarins megi sjá tvo menn koma að útidyrahurð staðarins og opna hana með lykli. Því næst megi sjá þá ganga inn og slá inn öryggiskóða að þjófavarnarkerfi staðarins og slökkva þannig á kerfinu. Þá nái þeir í lykla sem gangi að spilakössum inni á staðnum. Alls hafi 11 spilakassar verið inni á staðnum, þ.e. fimm spilakassar frá Íslandsspilum og sex frá Gullnámudeild Háskóla Íslands. Brotist hafi verið inn í fjóra af fimm kössum Íslandsspila og stolið þaðan samtals 453.500 krónum. Þá hafi verið brotist inn í alla sex kassa Gullnámunnar og stolið þaðan samtals 114.150 krónum. Þá hafi verið unnar miklar skemmdir á spilakössunum, sem að mati eigenda þeirra hlaupi á hundruðum þúsunda. Endanlegt mat á þeim skemmdum sem unnar hafi verið á spilakössunum liggi þó ekki fyrir.
Í greinargerðinni segir að mennirnir, sem farið hafi inn á A í umrætt sinn, hafi verið klæddir í lopapeysur og trefla og með klúta fyrir andlitum, auk þess sem þeir hafi haft hettur yfir höfðum sínum.
Þá segir í greinargerðinni að grunur lögreglu hafi fljótlega beinst að B, [...], en hún sé fyrrum starfsmaður A og hafi látið af störfum þar fyrir nokkrum mánuðum.
Í greinargerðinni er frá því greint að lögregla hafi gert húsleit á heimili B 14. nóvember sl. Við þá húsleit hafi m.a. fundist í rusli í íbúð hennar teikning, sem lögregla telji að sé af anddyri skemmtistaðarins og svæði þar sem spilakassarnir standi. Þá hafi lögregla einnig fundið í ruslinu greiðslumiða frá Gullnámunni, sem hafi verið rifnir í tvennt. Telji lögregla að þessar kvittanir séu úr þeim spilakössum sem brotist hafi verið inn í á skemmtistaðnum. Aðspurð hafi B ekki viljað kannast við þessa miða. Lögregla hafi náð að taka fingraför af miðunum og vinni nú að því að rannsaka hvort fingraförin eigi við kærða, Y eða B.
Við leit lögreglu á heimili B hafi lögregla m.a. lagt hald á myndavél og við skoðun á henni hafi lögregla fundið mynd af kærða og Y, [..]. Í kjölfarið hafi grunur lögreglu beinst að kærða og Y og hugsanlegri aðild þeirra að innbrotinu. Í kjölfarið hafi lögregla hafið leit að kærða og Y og hafi þeir verið handteknir í gær, 16. nóvember 2012.
Í greinargerðinni segir að teknar hafi verið skýrslur af kærða, B og Y sem sakborningum og einnig af C, kt. [...] sem vitni. Hafi gætt töluverðs misræmis í framburði þeirra og hafi það styrkt grun lögreglu enn frekar um að kærði, Y og B hafi í sameiningu brotist inn á skemmtistaðinn A.
Í greinargerðinni segir að rannsókn málsins sé á frumstigi. Teknar hafi verið skýrslur af kærða, Y og B sem sakborningum. Þá hafi lögregla tekið skýrslur af tveimur vitnum og vinni nú að því að hafa upp á þriðja vitninu, sem geti gefið mikilvægar upplýsingar um málsatvik. Þá liggi ýmis sönnunargögn fyrir í málinu sem lögregla þurfi að rannsaka nánar, s.s. fingraför, sem fundist hafi við rannsókn málsins. Telji lögregla að háttsemi kærða kunni að varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Lögregla telji að ætla megi að kærði geti torveldað rannsókn málsins og haft áhrif á samseka gangi hann laus. Þá telji lögregla einnig hættu á að kærði verði beittur þrýstingi og að samverkamenn hans reyni að hafa áhrif á framburð hennar gangi hann laus á frumstigum rannsóknar.
Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 244. gr. og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. nóvember 2012, kl. 16:00. Þá sé þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu samkvæmt heimild í b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Með vísan til þess ósamræmis, sem er á framburði kærða, kærðu B og Y og vitnisins C um málsatvik, sem og með vísan til annarra sönnunargagna í málinu, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Hætta þykir á því að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að hafa áhrif á samseka og vitni, gangi hann laus. Er því fallist á það með lögreglustjóra að skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé fullnægt. Krafa lögreglustjóra er því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. nóvember nk. kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.