Hæstiréttur íslands

Mál nr. 489/2003


Lykilorð

  • Kærumál
  • Aðild
  • Frávísunarúrskurður staðfestur


Föstudaginn 23

 

Föstudaginn 23. janúar 2004.

Nr. 489/2003.

Þrotabú Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf.

(Ragnar Aðalsteinsson hrl.)

gegn

Byggingafélagi Búða ehf.

(enginn)

Hótel Búðum ehf. og

(Ólafur Haraldsson hrl.)

þrotabúi Viktors H. Sveinssonar

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Aðild. Frávísunarúrskurður staðfestur.

S, sem lýst hafði kröfu í þrotabú F ehf., var heimilað samkvæmt bréfi skiptastjóra þrotabúsins að höfða riftunarmál í nafni þess vegna framsals á tilteknum lóðarleigusamningi með því skilyrði að málshöfðunin yrði þrotabúinu að kostnaðarlausu og ávinningur, ef einhver yrði, rynni til þess. Með vísan til þessa var talið ljóst að þrotabúið hefði kosið að halda ekki uppi þessum hagsmunum. Hefði S því þurft að gera það sjálfur og á eigin áhættu með því að eiga aðild að málinu eins og áskilið væri í 1. mgr. 130. gr. laga nr. 21/1991 en ekki í nafni þrotabús F ehf. Var frávísunarúrskurður héraðsdóms staðfestur með vísan til forsendna hans.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.          

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. desember 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 8. desember 2003, þar sem máli sóknaraðila á hendur varnaraðilum var vísað frá dómi. Kæruheimild er í j. lið 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Varnaraðilar, Hótel Búðir ehf. og þrotabú Viktors H. Sveinssonar, krefjast þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Varnaraðilinn Hótel Búðir ehf. krefst jafnframt kærumálskostnaðar, en varnaraðilinn þrotabú Viktors H. Sveinssonar krefst málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar.

Varnaraðilinn Byggingafélag Búða ehf. hefur ekki látið þennan þátt málsins til sín taka.

Þar sem varnaraðilinn þrotabú Viktors H. Sveinssonar hefur ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti kemst krafa hans um málskostnað í héraði ekki að fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Rétt er að hver aðili um sig beri sinn kostnað af kærumáli þessu.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Kærumálskostnaður fellur niður.

 

Úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 8. desember 2003.

                Mál þetta var höfðað 11. apríl 2003 og tekið til úrskurðar 18. nóvember sama ár. Stefnandi er þb. Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf., Búðum í Snæfellsbæ, en stefndu eru Byggingafélag Búða ehf., Hótel Búðir ehf. og þb. Viktors H. Sveinssonar, allir til heimilis að Búðum í Snæfellsbæ.

                Stefnandi hefur höfðað málið til riftunar á ráðstöfun Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. um framsal á lóðarleigurétti að Búðum, auk þess sem krafist er endurgreiðslu og skaðabóta úr hendi stefndu in solidum að fjárhæð 60.000.000 króna með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 14. október 2002 til greiðsludags. Af hálfu stefndu er krafist sýknu af kröfum stefnanda.

                Í þessum þætti málsins er tekin til úrlausnar aðalkrafa stefndu Hótel Búða ehf. og þb. Viktors H. Sveinssonar um að málinu verði vísað frá dómi. Auk þess gera þessir stefndu kröfu um að stefnanda verði gert að greiða málskostnað. Af hálfu stefnda Byggingafélagsins Búða ehf. eru ekki gerðar kröfum í þessum þætti málsins.

                Stefnandi krefst þess að frávísunarkröfu stefndu Hótel Búða ehf. og þb. Viktors H. Sveinssonar verði hrundið og ákvörðun málskostnaðar bíði efnisdóms í málinu.

I.

                Með samningi 17. maí 2000 leigði landbúnaðarráðherra Fasteignafélaginu Kaupstað ehf. lóð úr landi Búða í Snæfellsbæ. Með samningnum fylgdi uppdráttur frá 28. janúar 1999 þar sem sýnd var stærð og lega lóðarinnar. Samningurinn var til 25 ára með forleigurétti, en leiga fyrir hvert almanaksár nam 4% af fasteignarmati lóðarinnar, þó aldrei lægri fjárhæð 25.000 krónur miðað við byggingarvísitölu við upphaf leigutíma. Leigusamningur þessi leysti af hólmi eldri leigusamning frá 3. júlí 1975 við Búðir hf. Á lóðinni stóð hótelbygging í eigu og rekstri stefnda Byggingafélags Búða ehf. (áður Hótel Búðir hf. og Hótel Búðir ehf.)

                Hinn 14. apríl 2000 var stofnað Fasteignafélagið Kaupstaður ehf. og var Viktor H. Sveinsson eini stjórnarmaður félagsins frá því það var stofnað þar til bú þess var tekið til gjaldþrotaskipta 11. júlí 2002. Svo sem áður greinir var félagið leigutaki samkvæmt fyrrgreindum lóðarleigusamningi og er málið höfðað í nafni þrotabús félagsins.

                Í viljayfirlýsingu frá 12. október 2000, sem undirrituð er af Viktori H. Sveinssyni, Sigurjóni Sighvatssyni og Þorsteini Jónssyni, kemur fram að aðilar muni eiga í jöfnum hlutum allar fasteignir á Búðum, auk innanstokksmuna og fylgihluta, sem tilheyrðu hótelrekstrinum. Einnig er tekið fram að í sameiginlegri eigu þeirra skuli vera viðskiptaáætlanir, leyfi og samningar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Búðum. Þá segir að sömu aðilar muni jafnframt eiga að jöfnu fasteign á Tröllaendum í Flatey, ásamt viðskiptaáætlun um uppbyggingu hótels, safns og sumarbústaðahverfis.

Í umræddri viljayfirlýsingunni kemur fram að fyrirhugað sé að aðilar hefji hótel- og veitingarekstur á Búðum og í Flatey ásamt annarri uppbyggingu ferðaþjónustu, auk endursölu á herbergjum og bústöðum. Jafnframt segir að aðilar gangist við skuldum Byggingafélagsins Búða ehf. að fjárhæð um 42.000.000 króna, auk þess sem gert er ráð fyrir því að allur rekstur, eignir og skuldir á Búðum og í Flatey verði yfirfærðar á Fasteignafélagið Kaupstað ehf. eigi síðar en 1. nóvember 2000. Enn fremur segir að Sigurjón Sighvatsson og Þorsteinn Jónsson munu endurfjármagana lausaskuldir Búða sem nemi um 15.000.000 króna, en Sigurjón muni fara fyrir hópnum við heildarfjármögnun. Þá kemur fram að Fasteignafélagið Kaupstaður ehf. muni greiða til fyrri hluthafa í félaginu, Ingvars Þórðarsonar, 15.000.000 króna með skuldabréfi til 5 ára, sem tryggt verði með ábyrgð eigenda félagsins. Loks segir í niðurlagi viljayfirlýsingarinnar að samningar um nánari útfærslu á framangreindum atriðum verði undirritaðir fyrir 1. desember 2000.

Samhliða viljayfirlýsingunni gerðu þremenningarnir með sér samkomulag um að gangast í sjálfskuldarábyrgð in solidum fyrir átta skuldabréfum útgefnum af Fasteignafélaginu Kaupstað ehf. til Ingvars Þórðarsonar. Voru bréfin til fimm ára með árlegri afborgun og hvert að fjárhæð 2.000.000 króna. Í samkomulaginu segir að Viktor og Sigurjón hafi áritað bréfin um ábyrgð sína, en tekið er fram að Þorsteinn gangist einnig undir ábyrgð vegna bréfanna.

Stefnandi heldur því fram að Viktor H. Sveinsson hafi ekki staðið við að flytja eignir tengdar fyrirhuguðum rekstri yfir á Fasteignafélagið Kaupstað ehf. og því hafi ekki verið gerður endanlegur samningur fyrir 1. desember 2000 milli þremenninganna, eins og gert var ráð fyrir í viljayfirlýsingu þeirra. Af hálfu stefndu Byggingafélagsins Búða ehf. og Hótel Búða ehf. er því á hinn bóginn haldið fram að Sigurjón og Þorsteinn hafi ekki staðið við viljayfirlýsinguna fyrir sitt leyti.

Hinn 20. janúar 2001 brann hótelbyggingin að Búðum. Vátryggingartaki var stefndi Byggingafélag Búða ehf. og voru brunabætur greiddar því félagi. Í kjölfarið var hafist handa við að reisa nýtt hótel að Búðum.

Með bréfi 15. maí 2001 til landbúnaðarráðuneytisins, sem Viktor H. Sveinsson ritaði fyrir hönd stefnda Byggingafélagsins Búða ehf. og Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf., var þess farið á leit að lóðarleigusamningur frá 17. maí 2000 yrði færður yfir á nafn stefnda Byggingafélagsins Búða ehf. Fram kom í þessu erindi að áætlanir um að nýtt félag tæki við rekstrinum hefðu breyst og því væri rétt að leigutaki væri það félag sem staðið hefði að rekstrinum undanfarin 15 ár og væri jafnframt skráð fyrir þeim fasteignum sem enn stæðu að Búðum. Eftir að hafa borið erindið undir jarðanefnd og sveitarstjórn samþykkti ráðuneytið með bréfi 3. júlí 2001 að stefndi Byggingafélagið Búðir ehf. yrði leigutaki að lóð undir hótelið í stað Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. Bréf þetta áritaði síðan Viktor H. Sveinsson, fyrir hönd Byggingafélagsins Búða ehf. og Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf., og var skjalið móttekið til þinglýsingar 13. september 2001 og innfært í þinglýsingabók 14. sama mánaðar.

Hinn 1. maí 2002 afsalaði Viktor H. Sveinsson fyrir hönd Byggingafélagsins Búða ehf. nýbyggingu hótels að Búðum, ásamt öllum tilheyrandi réttindum samkvæmt lóðarleigusamningi til stefnda Hótel Búða ehf. (áður Reykjavíkurvegur 45 ehf. og Fasteignafélagið Fálkaborg ehf.). Það félag var stofnað 30. ágúst 2000 og meðal stofnenda var stefndi Byggingafélagið Búðir ehf. Samkvæmt afsalinu var kaupverðið greitt með yfirtöku áhvílandi skulda upphaflega að fjárhæð 39.341.976 krónur og skuldabréfi fyrir eftirstöðvum kaupverðs að fjárhæð 53.514.880 krónur. Afsalið var móttekið til þinglýsingar 31. maí 2002 og innfært í þinglýsingabók 2. júní sama ár. Aðdragandi afsalsins var kaupsamningu aðila frá 12. júlí 2001, en samkvæmt honum var kaupverðið 153.000.000 krónur, þar af 44.985.120 krónur yfirteknar veðskuldir. Kaupsamningurinn var móttekinn til þinglýsingar 19. desember 2001 og innfærður í þinglýsingabók 20. sama mánaðar.

Hinn 19. september 2002 var gert samkomulag milli seljanda og kaupanda um uppgjör og afhendingu samkvæmt kaupsamningnum frá 12. júlí 2001. Þar kom fram að hvorugur aðila hefði getað staðið við skyldur sínar og því væru þeir sammála um að breyta umsömdu afhendingarstigi hótelsins samkvæmt meðfylgjandi ástandslýsingu. Einnig hefði seljandi ekki aflétt áhvílandi veðskuldum kaupandi óviðkomandi. Af þessu sökum veitti seljandi afslátt að fjárhæð 22.000.000 króna og því nam kaupverðið 131.000.000 króna í stað 153.000.000 króna. Í samkomulaginu er síðan að finna nánari sundurliðun á því hvernig stefndi Hótel Búðir ehf. hefði staðið skil á 53.514.880 krónur af kaupverðinu, sem greiða átti með skuldabréfi.

Hinn 11. júlí 2002 var bú Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. tekið til gjaldþrotaskipta. Af hálfu Sigurjóns Sighvatssonar var lýst kröfu í búið samtals að fjárhæð 17.961.802 krónur. Var krafan reist á fjórum skuldabréfum útgefnum 20. október 2000 af félaginu með ábyrgð Sigurjóns, en hann hafði leyst bréfin til sín. Samkvæmt fundargerð frá skiptafundi í búinu 1. nóvember 2002 námu lýstar kröfur samtals 42.531.542 krónur. Ekki var tekin afstaða til lýstra krafna. Þá var fært til bókar að ekki lægi annað fyrir en að félagið væri eignarlaust. Þó hefði athygli skiptastjóra verið vakin á því að félagið hefði verið leigutaki af lóð undir hótel að Búðum, en sá samningur hefði verið framseldur stefnda Hótel Búðum ehf. án þess að nokkuð endurgjald hefði komið fyrir. Af þessu tilefni taldi skiptastjóri rétt að kanna málið nánar og var skiptum því ekki lokið.

Með bréfi 24. febrúar 2003 heimilaði skiptastjóri þb. Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. Sigurjóni Sighvatssyni „að höfða riftunarmál í nafni þrotabúsins“ vegna framsals félagsins á lóðarleigusamningi 17. maí 2000 til stefnda Byggingafélagsins Búða ehf. Heimildin var þó bundin því skilyrði að málshöfðunin yrði þrotabúinu að kostnaðarlausu og að ávinningur, ef einhver yrði, rynni til þrotabúsins.    

II.

Stefndu, Hótel Búðir ehf. og þb. Viktors H. Sveinssonar, reisa frávísunarkröfu sína meðal annars á því að málið sé höfðað í nafni þb. Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. Vísa stefndu til 1. mgr. 130. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, en þar komi fram að lánardrottinn, sem hefur uppi kröfu á hendur þrotabúi sem hefur ekki þegar verið hafnað, geti haldið uppi hagsmunum búsins í eigin nafni til hagsbóta fyrir búið ákveði skiptastjóri að gera það ekki og hafi ekki skuldbundið búið á annan veg. Í samræmi við þetta halda stefndu því fram að Sigurjón Sighvatsson hefði átt að höfða málið persónulega í eigin nafni en ekki fyrir hönd þrotabúsins. Þessu til frekari stuðnings vísa stefndu til Hæstaréttardóms frá 19. júní 2003 í máli nr. 225/2003.

Í annan stað halda stefndu Hótel Búðir og þb. Viktors H. Sveinssonar því fram að stefnandi hafi farið út fyrir heimild sína frá skiptastjóra þb. Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. með málshöfðun sinni. Í umboði skiptastjóra sé veitt heimild til að höfða riftunarmál, en kröfur á hendur stefndu byggi hins vegar á því að þeir hafi með saknæmum og ólögmætum hætti valdið stefnanda tjóni og séu því skaðabótaskyldir samkvæmt sakarreglunni. Umboð skiptastjóra nái ekki til málshöfðunar af því tagi og því beri að vísa málinu frá dómi.

Enn fremur heldur stefndi Hótel Búðir ehf. því fram að mál þetta verði ekki höfðað á hendur félaginu ásamt fleirum þar sem samaðild sé ekki fyrir hendi, sbr. 18. gr. laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991. Krafa sú sem stefnandi telji sig eiga á hendur stefndu sé ekki þess eðlis að hverjum stefnda sé ekki unnt að efna hana upp á sitt eindæmi. Telur stefndi Hótel Búðir ehf. jafnframt að ekki sé samlagsaðild með félaginu og öðrum stefndu. Kröfur stefnanda eigi ekki rót að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings heldur þvert á móti til tveggja mismunandi samninga, annars vegar samnings um framsal lóðaleiguréttinda að Búðum frá Fasteignafélaginu Kaupstað ehf. til stefnda Byggingafélags Búða ehf. og hins vegar samnings um framsal sömu réttinda frá stefnda Byggingafélagi Búða ehf. til stefnda Hótel Búða ehf.  

Þá reisir stefndi þb. Viktors H. Sveinssonar frávísunarkröfu sína á því að ekki standi heimild til að höfða dómsmál á hendur þrotabúinu, sbr. 1. mgr. 116. gr. laga nr. 21/1991. Þess í stað hafi stefnanda borið að lýsa kröfu sinni í búið, sbr. 1. mgr. 117. gr. sömu laga. Telur stefndi að eðlisrök leiði til þessarar niðurstöðu, enda mætti ella gera ráð fyrir að örðugt yrði að úthluta úr þrotabúi ef vænta mætti síðubúinna krafna, sem ekki hefði verið lýst í búið.

Loks var því hreyft af stefnda þb. Viktors H. Sveinssonar við munnlegan flutning málsins að fjárkrafa stefnanda væri vanreifuð þar sem hún væri hvorki studd við matsgerð né nánari útreikninga.  

III.

                Við munnlegan flutning málsins var því haldið fram af hálfu stefnanda að 1. mgr. 130. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, stæðu ekki í vegi fyrir málssókn þessari. Málið væri höfðað af stefnanda sem kröfuhafa búsins vegna þess og því til hagsbóta. Jafnframt var því andmælt að málshöfðunin væri í ósamræmi við málssóknarumboð skiptastjóra til stefnanda.

                Stefnandi heldur því fram að kröfur í málinu eigi rót að rekja til sömu atvika og aðstöðu og því sé öllum hlutaðeigandi stefnt í málinu. Kröfur á hendur stefnda Byggingafélagi Búða ehf. séu fyrst og fremst endurgjaldskröfur samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti, en jafnframt séu þær kröfur byggðar á sakarreglunni. Kröfur á hendur stefndu Hótel Búða ehf. og þb. Viktors Sveinssonar séu hins vegar sakaðabótakröfur reistar á almennu sakarreglunni. Dómkröfurnar séu samrættar og verði allar raktar til þess að fasteignaréttindi að Búðum hafi verið flutt frá Fasteignafélaginu Kaupstað ehf. til stefnda Byggingafélagsins Búða ehf. og þaðan til stefnda Hótel Búða ehf., allt með vitund og vilja forsvarsmanna allra félaganna gert í því skyni að skjóta eignum undan við fullnustugerðir skuldheimtumanna. Telur stefnandi óhjákvæmilegt að sækja stefndu sameiginlega í málinu og að réttarfarsreglur standi ekki í vegi fyrir slíkri málssókn.

                Um stefnufjárhæðina tekur stefnandi fram að hún miðist við tjón sem stefnandi og þar með kröfuhafar í búið hafi orðið fyrir vegna ráðstöfunar á fasteignaréttindum að Búðum og jafnfram auðgunar viðtakenda. Sömu sjónarmið eigi við um ákvörðun fjárhæðar endurkröfu og skaðabóta og því sé ástæðulaust að gera greinarmun þar á. Hin leigða lóð sé um 10.000 fermetrar að stærð, við sjó á afar friðsælum og fallegum stað, sem dragi til sín fólk úr öllum áttum. Þá tekur stefnandi mið af því að greiða þurfti Ingvari Þórðarsyni 16.000.000 króna fyrir hans hlut í Fasteignafélaginu Kaupstaður ehf., en sá hlutur hafi verið 200.000 krónur af 500.000 króna hlutafé. Þar sem engar aðrar eignir voru í félaginu hafi lóðarréttindin verið metin á 40.000.000 króna gagnvart Ingvari, sem hafði ekki fjármuni til að taka þátt í frekari fjárfestingum og því um þvinguð kaup að ræða gagnvart honum. Stefnandi miðar við að verðmæti lóðarinnar hafi verið 60.000.000 króna þegar viljayfirlýsingin frá 12. október 2000 var gerð. Við það mat ráði mestu að leigusamningur um lóðina var til 25 ára með forleigurétti. Komi fram mótmæli við kröfufjárhæðinni áskilur stefnandi sér rétt til að leggja fram sönnunargögn um verðmætið, þar á meðal mat dómkvaddra manna.

IV.

                Bú Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 11. júlí 2002. Mál þetta hefur Sigurjón Sighvatsson, sem lýst hefur kröfu í búið, höfðað á hendur stefndu fyrir hönd þrotabúsins.

                Samkvæmt 1. mgr. 122. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, fer skiptastjóri með forræði þrotabús og er einn bær um að ráðstafa hagsmunum og svara fyrir skyldur þess meðan á gjaldþrotaskiptum stefndur. Kemur hann fram af hálfu búsins fyrir dómi og gerir samninga og aðra löggerninga fyrir hönd þess. Ákveði skiptastjóri á hinn bóginn að halda ekki uppi hagsmunum sem þrotabú kann að njóta eða geta notið, hvort sem það er gert samkvæmt ályktun skiptafundar eða ekki, getur lánardrottinn sem hefur lýst kröfu á hendur búinu, sem ekki hefur þegar verið hafnað, gert það í eigin nafni til hagsbóta búinu hafi skiptastjóri ekki þegar skuldbundið það á annan veg. Sá sem vill gera slíkt skal tilkynna það skiptastjóra tafarlaust og bera sjálfur kostnað og áhættu af aðgerðum sínum, en hann getur krafið þrotabúið um endurgreiðslu kostnaðar að því leyti sem búinu áskotnast fé af þeim, sbr. 1. mgr. 130. gr. sömu laga.

                Samkvæmt bréfi skiptastjóra þb. Fasteignafélagsins Kaupstaðar ehf. 24. febrúar 2003 var Sigurjóni Sighvatssyni heimilað að höfða riftunarmál í nafni búsins vegna framsals á lóðarleigusamningi frá 17. maí 2000. Heimildin var þó bundin því skilyrði að málshöfðunin yrði þrotabúinu að kostnaðarlausu og að ávinningur, ef einhver yrði, rynni til þrotabúsins. Af þessu má ljóst vera að búið sjálft kaus að halda ekki uppi þessum hagsmunum og því varð kröfuhafinn að gera það sjálfur og á eigin áhættu með því að eiga aðilda að málinu, eins og beinlínis er áskilið 1. mgr. 130. gr. laga nr. 21/1991. Að öðrum kosti yrði búið að bera áhættuna með aðild sinni að málinu, auk þess sem venjulega væri ekki unnt að gera kröfuhafa að bera kostnað af máli ef hann kemur eingöngu fram sem fyrirsvarsmaður þrotabús en ekki málsaðili. Þegar af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá dómi án þess að fjalla þurfi um aðrar frávísunarástæður stefndu.

                Eftir atvikum þykir rétt að málskostnaður falli niður.

                Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

                Máli þessu er vísað frá dómi.

                Málskostnaður fellur niður.