Hæstiréttur íslands
Mál nr. 766/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 23. desember 2009. |
|
Nr. 766/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. desember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 klukkan 16 og að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu til 1. janúar 2010. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hún þess að hún verði ekki látin sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist stendur.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a liðar 1. mgr. 95. gr. og b liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00. Þá er gerð krafa um að kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærða mótmælir kröfunni og krefst að henni verði hafnað en til vara að henni verði markaður skemmri tími og að hún sæti ekki einangrun.
Krafan er reist á því að kærða sé undir grun um brot á 227. gr. a og 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í kröfu lögreglustjórans kemur m.a. fram að lögreglan hafi nú til rannsóknar ætlað mansal og milligöngu vændis kærðu en grunur leiki á að hún flytji stúlkur til landsins til þess að stunda vændi og taki helming hagnaðarins af þeim. Fyrr á þessu ári hafi kærða verið til rannsóknar hjá lögreglunni vegna gruns um innflutning fíkniefna og vegna gruns um mansal. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-676/2009 frá 1. desember 2009 hafi hún verið sakfelld fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis en sýknuð af ákæru um mansal.
Í október sl. hafi lögreglu borist ítrekaðar ábendingar um að nokkrar konur stunduðu vændi á heimili kærðu að [...] og að þjónustan væri auglýst á internetinu. Lögreglan hafi kannað þessar auglýsingar en á þeim séu myndir af hálf nöktum konum og vísbendingar um að unnt sé að hringja í símanúmer til að fá kynlíf gegn greiðslu. Þá hafi lögreglunni einnig borist upplýsingar um komu nokkurra kvenna til landsins og bendir rannsókn málsins til þess að þær komi hingað til lands til þess að stunda vændi á vegum kærðu.
Á grundvelli úrskurðar hafi farið fram húsleit á heimili og í bifreið kærðu þann 3. desember sl. Þá hafi einnig verið leitað á M en grunur hafi verið um að þar væri vændisstarfsemi. Kærða hafi verið handtekin í kjölfarið og yfirheyrð. Hún neiti alfarið sök í málinu. Hún hafi nú sætt gæsluvarðhaldi frá 4. desember sl. Kærða hafi verið yfirheyrð fimm sinnum og hafi hún neitað sök í upphafi en í síðustu yfirheyrslum hafi hún játað að hafa hagnýtt sér vændi kvenna og hafa flutt þær til landsins í því skyni að þær stunduðu vændi. Hún hafi þó neitað öllum ásökunum um mansal. Við rannsókn málsins hafi konur borið að þær hafi stundað vændi hér á vegum kærðu. Þá bendi rannsóknin einnig til þess að kærða hafi gerst sek um mansal gagnvart tveimur konum með ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu.
Rannsókn málsins sé mjög umfangsmikil og sé í fullu gangi. Framundan séu frekari yfirheyrslur yfir kærðu. Þá sé einnig eftir að taka skýrslur af fleiri ætluðum brotaþolum í málinu, þ. á m. konum sem farnar séu úr landi. Gagnaöflun sé í fullum gangi en eftir sé að rannsaka önnur gögn svo sem tölvur, bankagögn o.fl. Þá sé einnig unnið að umfangsmikilli rannsókn á símagögnum. Verið sé að vinna úr þeim upplýsingum og yfirheyra ætlaða vændiskaupendur á grundvelli þeirra. Þegar hafi nokkrir menn játað vændiskaup við slíkar yfirheyrslur. Að mati lögreglu muni kærða geta torveldað rannsókn málsins verði hún látin laus. Þá kunni hún að geta komið undan gögnum sem hafi sönnunargildi í málinu. Umfang starfsemi kærðu virðist nú vera meira en talið hafi verið í upphafi og málið hafi aukist að umfangi síðan rannsókn þess hófst. Lögreglan telur því brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á framkomna kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til að koma í veg fyrir að kærða geti spillt rannsókn málsins.
Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærða hafi framið afbrot sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins hefur staðið um tíma en hefur undið upp á sig og orðið umfangsmeiri en ætlað var í byrjun. Sakarefni málsins er talið varða við 227. gr. a og 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað getur fangelsi allt að átta árum. Skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 eru uppfyllt í málinu og verður krafa lögreglustjórans því tekin til greina eins og hún er fram sett og kærðu gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00. Fallist verður á kröfu lögreglu um að kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur en þó ekki lengur en til 1. janúar 2010, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærða, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00.
Þá skal kærða sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur allt til 1. janúar 2010.