Hæstiréttur íslands

Mál nr. 143/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 8

 

Föstudaginn 8. apríl 2005.

Nr. 143/2005.

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. l. nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. apríl 2005. Kærumálsgögn bárust réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. apríl 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 11. maí 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.

Varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, frá 28. október 2004 til 13. desember sama ár en frá þeim degi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laganna, síðast með dómi Hæstaréttar 7. mars 2005 í máli nr. 92/2005 allt til miðvikudagsins 6. apríl 2005 kl. 16. Var fallist á að sterkur grunur væri fram kominn um að varnaraðili hefði framið brot, sem að lögum gæti varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Svo sem fram kemur í hinum kærða úrskurði mun málið hafa borist ríkissaksóknara 30. mars sl. Eðli máls samkvæmt verður að leggja áherslu á að ekki verði óhæfilegur dráttur á ákvörðun um ákæru í málinu og það verði síðan rekið með viðhlítandi hraða. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur um gæsluvarðhaldsvist varnaraðila, þó þannig að gæsluvarðhaldinu verði markaður sá tími sem greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur, þó þannig að gæsluvarðhald yfir varnaraðila, X, standi eigi lengur en til miðvikudagsins 4. maí 2005 kl. 16.00.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur  6. apríl 2005.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að X verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 11. maí nk. kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að 30. mars sl. hafi honum borist til meðferðar mál frá lögreglunni í Reykjavík er varði stórfellt fíkniefnabrot kærða o.fl.  Af gögnum málsins megi ráða að kærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á 7.649,98 g af amfetamíni til landsins. Umrædd fíkniefni hafi verið keypt í Hollandi í byrjun júlí 2004 og send til Íslands frá Þýskalandi með skipi sem hafi komið til landsins 19. s.m. Hafi fíkniefnin fundist við leit tollvarða í sendingunni. Þáttur kærða í málinu sé talin verulegur þar sem hann sé grunaður um að hafa staðið að skipulagningu, fjármögnun og kaupum á fíkniefnunum. Kærði neiti sök. [...]

[...]

Brot þau sem kærði sé grunaður um að hafa framið geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974, sbr. lög nr. 32/2001. Kærði hafi setið í gæsluvarðhaldi frá 27. október 2004, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en frá 9. desember 2004 á grundvelli almanna­hags­muna. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, og dóma Hæstaréttar í málum kærða nr. 432/2004, 470/2004, 489/2004, 32/2005 og 92/2005, sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Kærði var handtekinn þann 27. október sl. og hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan.  Á gæsluvarðhaldstímabilinu hefur kærði neitað allri aðild að málinu og talið fram­komnar upplýsingar frá öðrum sakborningum rangar og ósannaðar. [...] Með dómum Hæstaréttar Íslands, síðast í málinu nr. 32/2005, var talið að brot þau er kærði væri undir grun um að hafa framið væru þess eðlis að telja yrði að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Væri því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir kærða. Á þessu hefur ekki orðið breyting. Ríkissaksóknari hefur nú málið til meðferðar. Ákæra hefur ekki enn verið gefin út en er væntanleg að sögn saksóknara. Skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 er fullnægt og verður krafa ríkissaksóknara um gæsluvarðhald tekin til greina eins og hún er fram sett.

Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 11. maí nk. kl. 16.00.