Hæstiréttur íslands

Mál nr. 54/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 5

 

Þriðjudaginn 5. febrúar 2002.

Nr. 54/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Sigurmar K. Albertsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. febrúar sl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. janúar 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 11. febrúar nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og að sér verði dæmdur kærumálskostnaður.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Samkvæmt gögnum, sem sóknaraðili hefur lagt fyrir Hæstarétt, gaf varnaraðili eftir uppkvaðningu hins kærða úrskurðar skýrslu hjá lögreglunni 31. janúar sl., þar sem hún gekkst við að eiga nokkurn hlut að þeim innflutningi á fíkniefnum, sem henni er gefinn að sök. Þrátt fyrir þetta verður að fallast á með sóknaraðila að enn séu efni til að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður dæmist ekki.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. janúar 2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 18. febrúar nk. klukkan 16:00.

[...]

Kærða neitar sakargiftum og kannast ekki við aðild að innflutningi fíkniefna.    Rannsóknargögn sem fyrir liggja veita hins vegar grunsemdir um aðild hennar að málinu þannig að telja verður að rökstuddur grunur sé fram kominn um að hún tengist meintu broti.  Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi og hætta á því að kærða geti torveldað rannsókn málsins fari hún frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintu broti og hún hefur tengsl við þykja skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi.   Þá liggur fyrir að kærða býr erlendis og er hætta á að hún kunni að fara úr landi gangi hún laus.  Nauðsynlegt telst að tryggja nærveru hennar hér við rannsókn málsins.  Teljast skilyrði a og b liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 vera fyrir hendi þannig að taka ber til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærða sæti gæsluvarðhaldi en eigi lengur en til mánudagsins 11. febrúar nk. klukkan 16:00.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, sæti gæsluvarðhaldi til mánudagsins 11. febrúar nk. kl. 16:00.