Hæstiréttur íslands

Mál nr. 206/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 19

 

Miðvikudaginn 19. apríl 2006.

Nr. 206/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála  var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. apríl 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. apríl 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 5. maí 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. apríl 2006.

Lögreglan í Reykjavík hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi til föstudagsins 5. maí 2006, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint stórfellt fíkniefnabrot.  Lagt hafi verið hald á mikið magn fíkniefna sem falin hafi verið í bifreiðinni A sem nýlega var flutt til landsins frá Rotterdam í Hollandi.  Kærði hafi verið skráður innflytjandi bifreiðarinnar.  Kærði hafi sætt eftirliti lögreglu undanfarna daga.  Fyrir liggi að kærði leysti út bifreiðina en frá þeim tíma hafi hann geymt bifreiðina á bifreiðaplani við heimili sitt.  Lögregla hafi hljóðritað samtal kærða við annan mann þar sem greinilega komi fram að kærði hafði vitneskju um fíkniefnin í bifreiðinni og kærði hafi tekið þátt í fíkni­efna­inn­flutningnum.  Bifreiðin hafi verið sótt seint í gærkvöldi af þremur meintum vit­orðs­mönnum kærða og hafi þeir flutt bifreiðina í tiltekið verkstæðishúsnæði í borginni.  Þegar lög­reglan hafi ráðist til inngöngu í húsnæðið hafi hinir meintu vitorðsmenn verið að fjarlægja efni úr bifreiðinni. 

Kærði hafi verið handtekinn á heimili sínu kl. 01:00 í nótt.  Kærði hafi verið yfirheyrður í dag en um afstöðu hans til sakarefnisins og nánar um framburð hans sé vísað til fram­burðar­skýrslu kærða.  Rannsókn málsins sé á frumstigi, málið sé talið umfangsmikið, framundan séu frekari yfirheyrslur af kærða og meintum vitorðsmönnum hans, frekari gagnaöflun og gagna­úr­vinnsla sé framundan sem skýrt geti frekar aðdraganda brotsins, innbyrðis samskipti hinna grun­­uðu og samskipti við aðra sem kunni að tengjast málinu en ekki sé vitað um hverjir séu á þessu stigi rannsóknarinnar.  Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknar­hagmuni á þessu stigi máls­ins með því að varna því að kærði gangi laus. 

Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.  Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt framangreindu er rökstuddur grunur um að kærði eigi hlut að stórfelldu fíkni­efnabroti sem getur varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a. almennra hegn­inga­r­laga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001 en rannsókn máls­ins er á frumstigi.  Samkvæmt því er með vísun til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigurður Hallur Stefánsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð :

Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi til föstudagsins 5. maí 2006, kl. 16:00.