Hæstiréttur íslands
Mál nr. 128/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. febrúar 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fæddur [...], skuli sæta farbanni, allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varðar innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Þann 22. september sl. hafi meðkærði Y komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni hafi verið ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. – 25. september. Föstudaginn 25. september hafi meðkærði Y farið með flugi frá Íslandi, en hann hafi skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Meðkærði Y hafi komið aftur til landsins 28. september og sótt bifreiðina. Kærði hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og hafi þeir ekið á sitt hvorri bifreiðinni sem leið lá inn í [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Þar hafi hann hitt meðkærða Y og þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin sem meðkærði Y hafi ekið hafi verið haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem hafi verið búið að fela í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafi þeir allir sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar þess.
Kærði hafi neitað sök við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu. Hann hafi nú játað það að hafa tekið þátt í því að flytja inn ofangreinda bifreið en hann kvaðst ekki hafa vitað að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. Hann hafi lýst fyrir lögreglu hvernig skipulagningu innflutningsins hafi verið háttað og að hann hafi áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. Hann hafi greint lögreglu frá því að tveir Hollendingar hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins. Aðspurður hafi hann sagt hlutverk sitt hafa verið að koma til landsins, fjarlægja það sem hafi verið í bifreiðinni og afhenda aðila við [...]. Hann hafi síðan átt að fá skilaboð varðandi peningagreiðslu fyrir sinn þátt. Hann hafi einnig upplýst lögreglu um það að hann hafi nokkrum sinnum hitt samverkamenn sína á fundum í Hollandi, áður en haldið hafi verið til Íslands, þar sem ferðin hafi verið skipulögð.
Kærði þyki vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati lögreglu er meint aðild kærða mikil en hún er talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að rétt hafi verið talið að tryggja að kærði gengi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði sé látinn laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Metur lögregla það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða kærða þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hafi fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-[...]/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum hafi lögregla talið, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að úrskurða hann áfram í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og kærði verið í kjölfarið úrskurðaður í farbann og sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Því sé farið fram á að kærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008 en á því sé byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt. Jafnframt telur lögregla að fyrir hendi séu skilyrði til að úrskurða kærða í farbann á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Kærði sé erlendur ríkisborgari og hafi engin sérstök tengsl við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Að mati lögreglu sé brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.
Rannsókn lögreglu hafi að hluta til verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld þar sem óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum. Rannsóknin sé nú á lokastigi og verði málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða kærða í farbann sé vísað til b-liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. sbr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins sé þess beiðst að krafa lögreglustjóra um farbann nái fram að ganga.
Með dómi Hæstaréttar 21. janúar 2016 í máli nr. 49/2016 var kærða gert að sæta farbanni til dagsins í dag á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að kærða verði gert að sæta farbanni, en rannsókn málsins, sem hefur verið mjög umfangsmikil, er á lokastigi og verður málið sent héraðssaksóknara á næstu dögum. Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi farbann, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 15. mars 2016, kl. 16:00.