Hæstiréttur íslands
Mál nr. 387/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 17. október 2000. |
|
Nr. 387/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi) gegn X (enginn) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur, en tími varðhaldsins lengdur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. október 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. október 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 17. sama mánaðar kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Sóknaraðili krefst þess að gæsluvarðhaldi yfir varnaraðila verði markaður tími allt til þriðjudagsins 24. október 2000 kl. 16.
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á með héraðsdómara að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir varnaraðila. Í ljósi umfangs málsins þykir mega verða við kröfu sóknaraðila um lengd gæsluvarðhaldsins, sem verður því markaður tími eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 24. október 2000 kl. 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. október 2000.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, að X, [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 24. október 2000 klukkan 16:00.
[...]
Samkvæmt framansögðu er því fallist á það með lögreglu að hætta sé á að kærði gæti torveldað rannsókn málsins ef hann endurheimti frelsi sitt. Það verður því orðið við kröfu lögreglunnar, sbr. a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, enda er verið að rannsaka ætluð brot kærða gegn fíkniefnalöggjöfinni og ef þau sönnuðust gætu þau varðað hann fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. alm. hegningarlaga nr. 19/1940. Hins vegar þykir hæfilegt, eins og staða rannsóknarinnar er í dag, að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er og verður kærða gert að sæta því til kl. 16:00 þriðjudaginn 17. október nk.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 17. október 2000 kl. 16.00.