Hæstiréttur íslands

Mál nr. 397/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi


                                            

Þriðjudaginn 22. júní 2010.

Nr. 397/2010.

Lögreglustjórinn á

höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Haukur Örn Birgisson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var felldur úr gildi.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júní 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur hjá lögreglu játað þátt sinn í ætluðu fíkniefnabroti. Verður ekki ráðið af málsgögnum að þáttur hans sé með þeim hætti að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, eins og sóknaraðili krefst, sbr. dóma Hæstaréttar 5. maí 2010 í málum nr. 270/2010 og 271/2010. Verður hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí nk. kl. 16. 

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 11. apríl sl. til dagsins í dag, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 21. maí sl. og þá á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Að kvöldi laugardagsins 10. apríl sl., um kl. 23:00, hafi lögreglan lagt hald á mikið magn hættulegra fíkniefna, sem flutt hafi verið til landsins með flugi frá Alicante á Spáni fyrr um daginn. Efnin, sem hafi verið kyrfilega falin í þremur ferðatöskum, hafi reynst vera kókaín, um 1.600 grömm. Samkvæmt matsgerð lyfjafræðistofnunar Háskóla Íslands, dags. 14. apríl sl., sé styrkur kókaínsins mjög mikill eða um og yfir 80%. 

Kærði sé sterklega grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningnum, enda hafi lögreglan fylgst með honum fara með efnin í gegnum Keflavíkurflugvöll að heimili sínu að [...] í Reykjavík, þar sem hann hafi afhent meðkærðu efnin en þeir hafi verið handteknir stuttu síðar.

Kærði hafi hjá lögreglu skýlaust játað aðild sína að málinu, hann segist þó ekki hafa vitað að um kókaín væri að ræða, heldur hafi hann talið sig vera að flytja inn hass.

Rannsókn málsins sé lokið og verði málið sent ríkissaksóknara á næstu dögum til ákvörðunar um saksókn.

Það sé mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt, enda sé kærði undir sterkum grun um að hafa framið afbrot sem varði allt að 12 ára fangelsi. Þá sé brot hans svo svívirðilegt að almannahagsmunir krefjist þess að honum verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, uns dómur gengur í máli hans.

Staða kærða þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. dóma Hæstaréttar Íslands í málum nr. 593/2006 og 161/2007, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi, enda undir sterkum grun um beina aðild að innflutningi á sambærilegu magni kókaíns í ágóðaskyni. Um refsmat og hugsanleg viðurlög, sannist sök kærða, sé vísað til dóma Hæstaréttar í málum nr. 149/2007 og 415/2008.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterku kókaíni. Meint brot kærða getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Verður því að telja nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna að kærði sæti gæsluvarðhaldi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí 2010, kl. 16. 00.