Hæstiréttur íslands

Mál nr. 238/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Mánudaginn 18

 

Mánudaginn 18. maí 2009.

Nr. 238/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. maí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. maí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 29. maí 2009 kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. 

Sóknaraðili kærði úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti með kæru 12. maí 2009. Hann krefst þess að úrskurðinum verði breytt þannig að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 9. júní 2009 kl. 16.  

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. maí 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 9. júní 2009 kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að þann 18. apríl 2009 hafi lögregla fengið upplýsingar um að seglskúta stefndi í átt til lands.  Í tengslum við þessar upplýsingar hafi verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna hafi verið á ferð um Djúpavog. 

Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum var siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi.  Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni sem í framhaldinu haf verið ekið á brott.  Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð ökumaður hennar handtekinn.  Í bifreiðinni hafi verið töskur sem hafi innihaldið um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.

Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Fylgst hafi verið með tveimur mönnum um borð í bátnum og þeir síðar um kvöldið handteknir á bifreiðinni [...].

Landhelgisgæslan hafi hafið leit að og fundið skútu á siglingu á hafinu á milli Íslands og Færeyja, á svæði sem kom heim og saman við fyrri upplýsingar um staðsetningu skútunnar, tímasetningar, veður og fleira.  Landhelgisgæslan hafi gefið skútunni skipun um að stöðva, en ekki verið orðið við því.  Skútunni hafi því verið fylgt eftir og er varðskipið Týr hafi komið að skútunni hafi sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra farið um borð í skútuna og handtekið þar þá þrjá menn, þeirra á meðal X.  Skútan hafi þá verið stödd á alþjóðlegu hafsvæði í efnahagslögsögu Færeyja og færeyskum yfirvöldum verið gert viðvart um aðgerðirnar.  Unnið sé að því að afla eins nákvæmra upplýsinga um siglingaleið skútunnar og unnt sé.

X hefur alfarið neitað sök vegna málsins.

Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð voru.  Rannsaka þurfi þætti er snúa að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Sé gagnaöflun í fullum gangi og mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir. 

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X, en talið sé að haldlögð fíkniefni hafi verið sótt í áðurgreinda skútu.  Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð.  Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi.  Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 21. apríl sl. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta áfram gæslu­varð­haldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda geti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu tekin til greina, þó þannig að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 29. maí nk. kl. 16.00. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 29. maí 2009 kl. 16:00. 

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.