Hæstiréttur íslands
Mál nr. 225/2001
Lykilorð
- Fasteign
- Kaupsamningur
- Vanheimild
- Þinglýsing
- Sýkna að svo stöddu
- Sératkvæði
|
|
Fimmtudaginn 13. desember 2001. |
|
Nr. 225/2001. |
Guðmundur Kristinsson Guðmundur Kristinsson ehf. Theodór Júlíus Sólonsson Pétur Guðmundsson og Eykt ehf. (Sveinn Sveinsson hrl.) gegn Guðmundi V. Guðmundssyni (Jóhannes Rúnar Jóhannsson hdl.) |
Fasteignir. Kaupsamningur. Vanheimild. Þinglýsing. Sýkna að svo stöddu. Sératkvæði.
Sjá reifun máls nr. 224/2001: Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Kristinsson ehf., Theodór Júlíus Sólonsson, Pétur Guðmundsson og Eykt ehf. gegn Ólafíu Ólafsdóttur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Pétur Kr. Hafstein og Björn Þ. Guðmundsson prófessor.
Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 19. júní 2001 og krefjast sýknu að svo stöddu af öllum kröfum stefnda. Þeir krefjast og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms með þeirri breytingu að dráttarvextir fari eftir 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu eftir 1. júlí 2001 til greiðsludags. Hann krefst og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
Mál þetta, sem fjallar um kaupsamning um timburbyggingu á einni hæð og 1.550 fermetra lóð að Selásbletti 15A í Reykjavík, er samkynja máli nr. 224/2001 sem dæmt var í dag. Kaupsamningur um þessa eign var gerður samtímis kaupsamningi þeim, sem mál nr. 224/2001 fjallar um, og var gert sérstakt samkomulag milli samningsaðila 10. september 1999 sem tengir samningana. Segir þar meðal annars:
„Seljandi eignarinnar Selásblettur 15a, Reykjavík, skv. kaupsamningi dagsettum 9. september 1999, staðfestir hér með að kaupendur eignarinnar þ.e. Eykt ehf., og Guðmundur Kristinsson ehf., eru óbundnir af kaupsamningnum í því tilfelli að ekki reynist unnt að efna kaupsamning um Selásblett 22a og 15a, R. þ.e. landsvæði, seljandi Ólafía Ólafsdóttir. “
Um forsendur og rökstuðning fyrir niðurstöðu þessa máls vísast til forsendna í máli nr. 224/2001 að breyttu breytanda. Samkvæmt því verða áfrýjendur einnig sýknaðir að svo stöddu í þessu máli.
Stefndi greiði áfrýjendum málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Áfrýjendur, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Kristinsson ehf., Theodór Júlíus Sólonsson, Pétur Guðmundsson og Eykt ehf., skulu vera sýknir að svo stöddu af kröfum stefnda, Guðmundar V. Guðmundssonar, í máli þessu.
Stefndi greiði áfrýjendum sameiginlega 300.000 krónur samtals í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Sératkvæði
Björns Þ. Guðmundssonar prófessors
Ég tel að staðfesta eigi efnisniðurstöðu héraðsdóms með skírskotun til forsendna hans.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 10. maí 2001.
I
Mál þetta, sem tekið var til dóms að loknum munnlegum málflutningi fimmtudaginn 5. apríl sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur með stefnu birtri 20. og 22. júní 2000 af Guðmundi V. Guðmundssyni, kt. 150969-5659, Selásbletti Víðivöllum, Reykjavík, á hendur Guðmundi Kristinssyni, kt. 310550-2999, Gerðhömrum 27, Reykjavík, Guðmundi Kristinssyni ehf., kt. 441292-2959, Gerðhömrum 27, Reykjavík, Theódóri Júlíusi Sólonssyni, kt. 161054-4619, Fossagötu 11, Reykjavík, Pétri Guðmundssyni, kt. 240162-4749, Brúnastöðum 63, Reykjavík, og Eykt ehf., kt. 560192-2319, Borgartúni 21, Reykjavík.
Málið var þingfest á reglulegu dómþingi 27. júní 2000 en framhaldsstefna var þingfest 29. nóvember 2000 og sameinuð aðalmálinu og var hún árituð um birtingu sama dag.
Við dómsuppkvaðningu var gætt ákvæða 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála í héraði.
Endanlegar dómkröfur stefnanda eru þær að stefndi, Guðmundur Kristinsson ehf., verði dæmdur til að greiða stefnanda 6.908.463,50 kr. með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 25/1987 af 2.302.821 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 4.605.642,50 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00, en af kr. 6.908.463,50 frá þeim degi til greiðsludags.
Að stefnda, Eykt ehf., verði dæmt til að greiða stefnanda 6.908.463,50 kr. með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 25/1987 af 2.302.821 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 4.605.642,50 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00, en af kr. 6.908.463,50 frá þeim degi til greiðsludags.
Að stefndi, Guðmundur Kristinsson, verði dæmdur til að greiða stefnanda 6.908.463,50 kr. in solidum með stefnda Guðmundi Kristinssyni ehf. með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 25/1987 af 2.302.821 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 4.605.642,50 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00, en af kr. 6.908.463,50 frá þeim degi til greiðsludags.
Að stefndi, Theódór Júlíus Sólonsson, verði dæmdur til að greiða stefnanda 3.454.231 kr. in solidum með stefnda, Eykt ehf., með dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 25/1987 af 1.151.411 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 2.302.821 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00 en af kr. 3.454.231 frá þeim degi til greiðsludags.
Að stefndi, Pétur Guðmundsson, verði dæmdur til að greiða stefnanda 3.454.231 kr. in solidum með stefnda, Eykt ehf., með dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 25/1987 af 1.151.411 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 2.302.821 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00 en af kr. 3.454.231 frá þeim degi til greiðsludags.
Jafnframt er þess krafist að dráttarvextir leggist árlega við höfuðstól, fyrst þann 1. janúar 2001.
Krafist er málskostnaðar úr hendi stefndu in solidum samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.
Dómkröfur stefndu eru þær að þeir verði að svo stöddu sýknaðir af kröfum stefnanda og stefnanda verði gert að greiða þeim málskostnað að mati dómsins auk virðisaukaskatts.
II
Stefndu Guðmundur Kristinsson ehf. og Eykt ehf. gerðu kauptilboð í Selásblett 22a, Selásblett 15a og timburbyggingu á lóðinni Selásbletti 15a í Reykjavík þann 27. ágúst 1999 og gilti það til 6. september 1999. Síðarnefndan dag var undirritað samþykki Ólafíu Ólafsdóttur, þinglýsts eiganda landsspildnanna að Selásbletti 15a og 22a, og Guðmundar Kristinssonar, Péturs Guðmundssonar og Theódórs Júlíusar Sólonssonar vegna athugasemdar, sem rituð var á kauptilboðið, þar sem upplýst var um viðskipti Ólafíu við Reykjavíkurborg vegna landsspildnanna og þann skilning Ólafíu að lögskiptum hennar og borgarinnar væri lokið vegna eignarnáms á spildunum.
Gerður var kaupsamningur dags. 9. september 1999 um kaup stefndu, Guðmundar Kristinssonar ehf. og Eyktar ehf., á fasteigninni Selásbletti 15a, Reykjavík, að 50% hlut hvort, af stefnanda. Um er að ræða timburbyggingu á einni hæð ásamt 1550 fm lóð. Jafnframt tóku stefndu, Guðmundur Kristinsson, Pétur Guðmundsson og Theódór Júlíus Sólonsson, á sig sjálfskuldarábyrgð á efndum kaupsamningsins í hlutfalli við kaupprósentu, þ.e. stefndi, Guðmundur að 50% hlut, stefndi, Pétur að 25% hlut og stefndi, Theódór að 25% hlut.
Samkvæmt 1. gr. kaupsamnings aðilanna var kaupverð eignarinnar ákveðið 18.422.570 kr. og skyldi það allt greiðast í peningum með fjórum jöfnum afborgunum, þ.e. 4.605.642,50 kr. í hvert skipti. Kaupendur greiddu fyrstu afborgunina við undirritun kaupsamnings, skv. 1. tl. 1. gr. kaupsamningsins.
Samkvæmt 2. tl. 1. gr. kaupsamningsins skyldi önnur afborgun greiðast þann 1. janúar 2000 en sú greiðsla var ekki innt af hendi. Þann 19. apríl s.á. sendi lögmaður stefnanda bréf til stefndu þar sem krafist var efnda á greiðslunni. Var þess þar m.a. getið að það væri forsenda þess að stefnandi gæti staðið við skuldbindingu sína samkvæmt 2. gr. umrædds kaupsamnings, þ.e. að aflétta áhvílandi veðskuldum fyrir 1. maí 2000, að kaupendur hefðu greitt þá greiðslu sem þeim bar að inna af hendi 1. janúar. Samkvæmt 3. tl. skyldi þriðja afborgun greiðast þann 1. maí 2000 en sú greiðsla var ekki innt af hendi. Hinn 1. september 2000 gjaldféll síðan lokagreiðsla samkvæmt kaupsamningnum að fjárhæð kr. 4.605.642,50. Samtals nemur skuld stefndu samkvæmt kaupsamningi þeirra við stefnanda því 13.816.928 kr. og er það samanlögð stefnufjárhæð málsins.
Framangreindum kaupsamningi var þinglýst án athugasemda. Stefndu barst hins vegar bréf frá lögmanni Reykjavíkurborgar til stefndu þar sem hann lýsti því yfir að borgin liti svo á að hún væri eigandi þess landssvæðis sem stefndu hefðu verið að undirrita kaupsamninga um. Leitað var leiða til að jafna ágreining Reykjavíkurborgar og Ólafíu Ólafsdóttur án árangurs.
Með bréfi til sýslumannsins í Reykjavík dagsettu 12. október 1999 var þess krafist af hálfu Reykjavíkurborgar að leiðrétt yrðu þau mistök að kaupsamningi Ólafíu Ólafsdóttur og stefndu þessa máls um eignarlönd hennar nr. 15a og 22a við Selásblett í Reykjavík hefði ekki verið vísað frá þinglýsingu vegna betri réttar borgarinnar til landsspildnanna á grundvelli samnings Reykjavíkurborgar og Ólafíu dagsettum 20. júlí 1994. Í bréfi sýslumannsins í Reykjavík dagsettu 4. nóvember 1999 voru viðurkennd þau mistök við þinglýsinguna að láðst hefði að geta um samkomulagið við Reykjavíkurborg en úr því hefði verið bætt með vísan til 1. mgr. 27. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978. Hins vegar hefði fyrrgreint samkomulag ekki verið skráð í þinglýsingabók sem eignarheimild heldur einungis yfirlýsing með þeim rökum að í henni kæmi fram að niðurstaða matsnefndar eignarnámsbóta ásamt margnefndu samkomulagi teldist ígildi kaupsamnings og ekki hefði verið þinglýst síðar öðru skjali vegna þessa samkomulags. Var því ekki orðið við kröfu Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg bar þessa niðurstöðu sýslumannsins ekki undir úrlausn dómara.
III
Stefnandi byggir kröfur sínar á því að stefndu hafi vanefnt kaupsamning aðilanna að verulegu leyti þar sem þeir hefðu aðeins greitt eina af fjórum afborgunum samkvæmt framlögðum kaupsamningi. Þar sem stefndu hafi ekki sinnt tilmælum stefnanda um efndir á skuldbindingum sínum samkvæmt kaupsamningnum, hafi stefnandi þurft að höfða þetta mál.
Stefnandi kveðst byggja kröfur sínar á almennum reglum samninga- og kröfuréttar, einkum reglum um skuldbindingargildi samninga og efndir fjárskuldbindinga. Þá sé byggt á lögum um lausafjárkaup nr. 39/1922 með lögjöfnun.
Kröfu um dráttarvexti og vaxtavexti styðji stefnandi við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 með síðari breytingum.
Varðandi heimild til höfðunar framhaldssakar sé vísað til 29. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 1. mgr. 27. gr. sömu laga.
Krafa um málskostnað styðjist við 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
Stefndu byggja kröfu sína um sýknu að svo stöddu á því að skylda þeirra samkvæmt kaupsamningnum til greiðslu kaupsverðsins hafi frestast vegna þess að Reykjavíkurborg telji sig eiganda umræddra landsvæða samkvæmt þinglýstu sérstöku samkomulagi við Ólafíu Ólafsdóttur. Greiðsluskyldan frestist þar til ljóst sé að Reykjavíkurborg falli frá yfirlýstum eignarétti sínum og samkomulagið verði afmáð úr veðmálabókum.
Stefndu vísi til þess að stefnandi hafi sérstaklega tilkynnt þeim við undirskrift kaupsamningsins að deilum Ólafíu og borgarinnar væri að ljúka og hefðu stefndu ekki séð ástæðu til að véfengja yfirlýsingar stefnanda og lögmanns hans og því ekki leitað afstöðu borgarinnar til málsins. Sjónarmið Reykjavíkurborgar muni hins vegar vera það að hún geti aldrei sætt sig við að stefndu haldi áfram að efna samninginn við Ólafíu og vísi til þess að samstarf þurfi við borgina til að hægt verði að skipuleggja og byggja á landssvæðinu. Borgin telji sig sem eiganda fasteignarinnar eiga að fá þær greiðslur, sem fyrir landið eigi að koma, og treysti því ekki að Ólafía verði borgunarmaður fyrir þeim fjárhæðum þegar ágreiningi við hana sé lokið og eignarréttur borgarinnar viðurkenndur. Fulltrúar borgarinnar hafi þó lýst yfir þeim vilja borgarinnar að stefndu yrðu eigendur og framkvæmdaraðilar á landssvæðinu. Vegna þessara yfirlýsinga borgarinnar telji stefndu sig ekki hafa átt nokkurn kost á að halda áfram að efna samninginn þótt vilji og geta hefði verið fyrir hendi.
Þá vísi stefndu til þess að þeir hefðu margoft boðið stefnanda greiðslu gegn því að hann setti fram tryggingu fyrir endurgreiðslu ef Ólafía reyndist ekki vera eigandi hins selda. Stefnandi hefði ætíð neitað að leggja fram slíka tryggingu með vísan til þess að hann væri ótvíræður eigandi fasteignarinnar.
Stefndu hafi jafnframt ásamt borginni reynt að gera samkomulag við Ólafíu þess efnis að stefndu greiddu greiðslur sínar með því að greiða upp áhvílandi veðskuldir og setja greiðslur í geymslu á meðan leyst væri úr ágreiningi borgarinnar og Ólafíu. Þessu hefði Ólafia ekki verið samþykk og færu nú engar samningaumleitanir fram milli hennar og Reykjavíkurborgar.
Þá vísi stefndu til þess að fljótlega eftir að brogin lýsti yfir eignarrétti sínum hefði stefndu óskað eftir því við stefnanda að kaupsamningurinn gengi til baka en stefnandi hefði ekki getað orðið við þeirri ósk þar sem hann hefði skort fé til að endurgreiða fyrstu greiðslu samkvæmt kaupsamningnum sem stefndu hefðu innt af hendi við undirritun hans.
Stefndu mótmæli einnig upphafstíma dráttarvaxtakröfu stefnanda.
Í greinargerð sinni í framhaldssök vísi stefndi til framangreindra málsástæðna í aðalsök og leggi áherslu á að þeir hafi greitt til fasteignasölunnar Kjöreignar þriðju og fjórðu greiðslu samkvæmt kaupsamningnum með sams konar fyrirvara og þeir hefðu sett við aðra greiðsluna. Fyrirvarinn um greiðslu sé settur þar sem Ólafía Ólafsdóttir hefði ekki getað sýnt fram á óumdeildan rétt sinn yfir landsvæðinu að Selásbletti 15a.
Um lagarök í aðalsök og framhaldssök vísi stefndu til meginreglna samningalaga og kröfuréttar. Þá vísi þeir til 2. tl. 26. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 að því er varðar kröfugerð þeirra um sýknu að svo stöddu. Krafa um málskostnað sé reist á 129. gr. og 130. gr. laga nr. 91/1991.
IV
Í framburði vitnisins Gests Jónssonar hrl. fyrir dóminum kom fram að enn væri ágreiningur milli Ólafíu Ólafsdóttur og Reykjavíkurborgar um landsspildurnar að Selásbletti 15a og 22a en staðfesti að þrátt fyrir það hefði Reykjavíkurborg ekki hafið málarekstur fyrir dómstólum vegna þessa.
Samkvæmt framlögðum þinglýsingarvottorðum er stefnandi máls þessa þinglýstur eigandi 330 fermetra iðnaðarhúsnæðis úr timbri auk 1550 fermetra af landi á landsspildu úr Selásbletti 15a og er ekki deilt um að þar er um að ræða fasteign þá sem kaupsamningur aðila er gerður um. Með samþykki kauptilboðs í eignina komst á bindandi kaupsamningur stefnanda og stefndu Guðmundar Kristinssonar ehf. og Eyktar ehf. Á kauptilboðið er færður eftirfarandi texti:
“Með bréfi Össurar Skarphéðinssonar, umhverfisráðherra, dags. 27. júní 1994, var Reykjavíkurborg heimilað að taka landspildurnar Selásblettur 15A og 22A eingarnámi, sbr. og samkomulag Borgarsjóðs Reykjavíkur og Ólafíu Ólafsdóttur, dags. 20. júlí 1994. Með bréfi borgarlögmanns, f.h. Reykjavíkurborgar, til lögmanns Ólafíu, dags. 2. október 1998, var Ólafíu kynnt sú ákvörðun borgarinnar að falla frá eignarnáminu. Að athuguðu máli hefur Ólafía nú ákveðið að fallast á ákvörðun borgarinnar og mun í framhaldi af því fella niður málarekstur sinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur Reykjavíkurborg. Það er mat Ólafíu að lögskiptum hennar og Reykjavíkurborgar vegna eignarnámsins, sbr. áðurnefnt samkomulag, sé þar með lokið. Tilboðsgjöfum hefur verið greint frá framangreindu samkomulagi, bréfi borgarlögmanns og málarekstri aðila að öðru leyti. Sætta þeir sig við þessa stöðu.”
Stefndu Pétur, Theodór og Guðmundur undirrituðu ofangreindan texta 6. september 1999 án fyrirvara eða athugasemda.
Í framhaldi af kauptilboðinu gerðu stefnandi og stefndu Guðmundur Kristinsson ehf. og Eykt ehf. með sér kaupsamning sem undirritaður var 9. september 1999. Stefndu Guðmundur Kristinsson, Pétur Guðmundsson og Theodór Sólonsson tókust á hendur sjálfskuldarábyrgð á efndum kaupsamningsins í hlutfalli við kaupprósentu, Guðmundur 50% en Pétur og Theodór 25% hvor.
Af framanrituðu er ljóst að stefnandi hafði þingslýsta eignarheimild til að ráðstafa umræddri fasteign enda hafði Reykjavíkurborg fallið frá eignarnámi á landsspildunni Selásbletti 15a í bréfi dagsettu 2. október 1998 og ekki hafið málsókn til heimtu ætlaðra réttinda sinna til landsins. Stefndu eru skuldbundnir með kaupsamningnum til að uppfylla efni hans og verður hið þinglýsta samkomulag Ólafíu Ólafsdóttur og Reykjavíkurborgar frá 1994 ekki talið hafa áhrif á niðurstöðuna í ljósi þessa.
Með athugasemdalausri undirritun á framangreindum fyrirvara í kauptilboði þykir sýnt að stefndu hafi sætt sig við stöðu mála og þykir afstaða Reykjavíkurborgar nú ekki geta breytt niðurstöðu í viðskiptum aðila þessa máls. Viðskipti Reykjavíkurborgar við sýslumannsembættið vegna þinglýsingar hafa ekki heldur áhrif á niðurstöðu málsins.Þá er fallist á það með stefnanda að það geti ekki valdið honum réttindamissi þótt hann hafi ekki uppfyllt ákvæði kaupsamningsins um að aflétta veðskuldum af eigninni þar sem stefndu hafi ekki staðið við skyldur sínar til greiðslu. Skilyrt greiðsla stefndu til fasteignasölunnar Kjöreignar ehf. leysir þá ekki undan greiðsluskyldu.
Að þessu virtu er það niðurstaða dómsins að stefndu hafi vanefnt kaupsamning aðila um framangreinda fasteign og beri þeim því að greiða umstefnda skuld með dráttarvöxtum eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði.
Eftir úrslitum málsins þykir hæfilegt að stefndu greiði stefnanda kr. 600.000 í málskostnað og hefur þá verið tekið tillit til skyldu stefnanda til greiðslu virðisaukaskatts af málflutningsþóknun. Málskostnaður greiðist þannig að Guðmundur Kristinsson ehf. og Guðmundur Kristinsson greiði stefnanda in solidum kr. 300.000 í málskostnað en stefndi Eykt ehf. greiði stefnanda kr. 300.000 í málskostnað og stefndu Theódór Júlíus Sólonsson og Pétur Guðmundsson greiði hvor um sig stefnanda kr. 150.000 í málskostnað in solidum með stefnda Eykt ehf.
Arnfríður Einarsdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp dóm þennan.
Uppkvaðning dóms þessa hefur dregist vegna embættisanna dómarans.
D Ó M S O R Ð :
Stefndu Guðmundur Kristinsson ehf. og Guðmundur Kristinsson, greiði in solidum stefnanda, Guðmundi V. Guðmundssyni, 6.908.463,50 kr. með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 25/1987, af 2.302.821 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 4.605.642,50 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00, en af 6.908.463,50 kr. frá þeim degi til greiðsludags.
Stefnda, Eykt ehf., greiði stefnanda 6.908.463,50 kr. með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 25/1987, af 2.302.821 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 4.605.642,50 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00, en af 6.908.463,50 kr. frá þeim degi til greiðsludags.
Stefndu Theódór Júlíus Sólonsson og Pétur Guðmundsson greiði hvor um sig stefnanda in solidum með stefnda Eykt ehf. 3.454.231 kr. in solidum með stefnda, Eykt ehf., með dráttarvöxtum skv. III. kafla laga nr. 25/1987 af 1.151.411 kr. frá 01.01.00 til 01.05.00, en af 2.302.821 kr. frá 01.05.00 til 01.09.00 en af 3.454.231 kr. frá þeim degi til greiðsludags.
Stefndu Guðmundur Kristinsson ehf. og Guðmundur Kristinsson greiði stefnanda in solidum kr. 300.000 í málskostnað.
Stefndi Eykt ehf. greiði stefnanda kr. 300.000 í málskostnað og stefndu Theódór Júlíus Sólonsson og Pétur Guðmundsson greiði hvor um sig stefnanda kr. 150.000 í málskostnað in solidum með stefnda Eykt ehf.