Hæstiréttur íslands

Mál nr. 325/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 20

 

Miðvikudaginn 20. júlí 2005.

Nr. 325/2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Sigmundur Hannesson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Guðrún Erlendsdóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili, sem kveðst vera X, skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júlí 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júlí 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. júlí nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að henni verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júlí 2005

                Ár 2005, föstudaginn 15. júlí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Arngrími Ísberg héraðsdómara, kveðinn upp svo­felldur úrskurður.

                Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að konu sem kveðst heita X, kt. [...], sem fyrir dómi kveðst vera fædd [...] 1978, með ríkisfang í Líberíu, verði gert að sæta gæslu­varð­haldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19,1991 allt til föstudagsins 22. júlí 2005 kl. 16.00.

                Í greinargerð lögreglustjóra segir að í gær hafi Frjálsi fjárfestingarbankinn lagt fram kæru á hendur ofangreindri konu fyrir ætluð brot gegn 247. gr. almennra hegningar­laga nr. 19,1940.  Sé kærðu gefið að sök að hafa þann 1. júní sl. framselt erlendan tékka frá Founders Federal Credit Union að fjárhæð 8.500 USD, andvirði 546.146 kr., í útibúi SPRON, Ármúla 13a, Reykjavík, og þann 8. júní sl. framselt í sama útibúi erlendan tékka frá Chase að fjárhæð 6.500 USD, andvirði 411.193 kr.  Í ljós hafi komið við framsal SPRON á tékkunum til American Express Bank þann 24. júní sl. að ekki var innistæða fyrir tékkunum og þeir endursendir með áritun um að þeir væru falsaðir.

                Kærða neiti sök.  Í skýrslutöku hjá lögreglunni fyrr í dag hafi hún viðurkennt að hafa framselt umrædda tékka í útibúi SPRON en kvaðst ekki hafa haft neina vitneskju um að þessir tékkar hafi verið falsaðir og hafi neitað að hafa átt þátt í að falsa þá.  Kærða hafi viðurkennt að hafa ritað á bakhlið annars tékkans nafnið [...].

                Rannsókn þessara kæruefna sé á frumstigi en ljóst þyki að um samskonar brot sé um að ræða og hún var ákærð fyrir ásamt Y í ákæru lögreglu­stjórans í Reykjavík, dags. 5. þ.m.  Dómur hafi gengið í því máli í dag og hafi kærða hlotið 30 daga fangelsi fyrir brot gegn útlendingalögum og brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga. Y hafi hlotið 15 mánaða fangelsisdóm.

Kærða liggi undir rökstuddum grun um að hafa í félagi við nefndan Y staðið að framangreindum brotum.  Lögreglan telji brýna nauðsyn á að kærða sæti gæsluvarðhaldi meðan rannsókn málsins fari fram.  Ekki hafi gefist ráðrúm til að yfirheyra Y um þetta nýja sakarefni og hafi kærða því tök á að torvelda rannsókn málsins ef hún gangi frjáls, auk þess sem fyrir liggi að taka þarf ítarlegri skýrslu af kærðu um sakarefnið.  Þá liggi fyrir að kærða sé vegalaus útlendingur sem hafi gefið misvísandi upplýsingar um hver hún sé og hafi nú verið sakfelld fyrir að nota falsað vegabréf í því skyni að villa á sér heimildir.

                Lögreglan í Reykjavík rannsaki nú ætluð brot kærðu sem talin séu geta varðað við 247. gr. og 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 sé þess krafist að krafan verði tekin til greina eins og hún sé fram sett.

                Kærða hefur fyrir dómi neitað því að hafa staðið að skjalafalsi og auðgunar­brotum.  Með vísun til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn málsins bera með sér er fallist á að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað geta fangelsisrefsingu.  Ennfremur er fallist á að hún geti torveldað rannsókn málsins hafi hún ferðafrelsi og er því fallist á kröfu um gæsluvarðhald eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurðarorð:

                Kærða, X, fædd [...] 1978, með ríkisfang í Líberíu, sæti gæslu­varð­haldi allt til föstudagsins 22. júlí 2005 kl. 16.00.