Hæstiréttur íslands
Mál nr. 221/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 3. apríl 2012. |
|
Nr. 221/2012. |
Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur
Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Helgi I. Jónsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. mars 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. apríl sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. mars 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. apríl 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærðar úrskurðar verður hann staðfestur.
Samkvæmt 3. mgr. 220. gr.
laga nr. 88/2008 verður kærumálskostnaður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. mars 2012.
Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði X, kt[...], til að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins
27. apríl nk. kl. 16.
Í
greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að lögreglan hafi
haft til rannsóknar þrjú alvarleg líkamsárásarmál sem kærði sé sterklega
grunaður um að eiga aðild að ásamt öðrum nafngreindum mönnum. Umrædd mál séu:
Mál 007-2012-665: Málið varði
ætluð brot þeirra X kt.[...],
Y kt.[...], A kt.[...], B kt.[...], C kt.[...], D kt. [...], E kt.[...], F kt. [...], G kt.[...] á hendur A,
B, C, D, E, F og G fyrir húsbrot, og á hendur öllum fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 4. janúar 2012, ruðst í
heimildarleysi inn í íbúðarhús við [...]í [...] og, í félagi, veist þar að H, I
og J, sem þar hafi verið staddir og slegið þá ítrekað í höfuð og víðs vegar um
líkama með hættulegum vopnum og bareflum, þ. á m. golfkylfum, plastkylfu,
hafnaboltakylfu, handlóðum og tréprikum.
Afleiðingar
af árásinni hafi orðið þær að H hafi hlotið þverbrot á hægri sköflungi, brot á
hægri hnéskel, 6 cm opinn og gapandi skurð á
framanverðum hægri sköflungi, bólgur og mar á hægri fótlegg, úlnliðum og
höndum. J hafi hlotið skurð á enni og I hafi hlotið 3 cm,
stjörnulaga sár á hnakka, brot á ölnarbol skrapsár á
báðum öxlum, stórt mar á upphandlegg vinstra megin, mar á báðum framhandleggjum
yfir öln, mar á miðjum framhandlegg og mar á vísifingri hægri handar. Sé
háttsemin talin varða við 2. mgr. 218. gr. og 231. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2012-13402: Málið varði ætluð brot
þeirra X kt. [...], Y kt. [...],
A kt.[...], B kt.[...] og C
kt. [...] fyrir hættulega líkamsárás og ólögmæta
nauðung, í félagi, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 14. desember eða
aðfaranótt 15. desember 2011, í íbúðarhúsnæði að [...] í Reykjavík, ráðist á K
og L, sem þar hafi verið staddir, meðal annars með eftirfarandi háttsemi, Y með
því að slá K í hnakkann með tréspýtu, rifið í vinstra eyra hans og slegið hann
í vinstri kjálkann og að lokum neytt M, sem hafi verið gestkomandi í íbúðinni,
til að kasta af sér þvagi yfir höfuð K með því að hafa hótað að beita hann
ofbeldi ef hann gerði það ekki. Þá hafi Y slegið L, sem einnig hafi verið
staddur í íbúðinni, aftanvert í höfuðið með tréspýtu í stofu íbúðarinnar svo
hann féll í gólfið og þar sem hann hafi legið á gólfinu, í félagi við fleiri,
sparkað í bak hans og dregið hann inn á salerni íbúðarinnar þar sem X hafi
slegið hann í andlitið og X og Y höfðu í hótunum við hann að senda á hann menn
ef hann kærði árásina, með þeim afleiðingum að L hafi hlotið stóran skurð
hliðlægt á höfði vinstra megin. Sé háttsemin talin varða við 2. mgr. 218. gr. og 225 gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2012-14588: Málið varði ætluð brot
X kt.[...], fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
með því að hafa 12. október 2011 að [...]
í [...] ráðist á N, kt.[...] og O, kt. [...], slegið N í andlit og maga, tekið hann kverkataki
og hert að með þeim afleiðingum að N hafi misst meðvitund. Þá hafi hann hlotið
glóðarauga og jafnframt slegið O í andlitið þannig að hann hafi fallið í gólfið
og þar sparkað í líkama hans þar sem hann hafi legið í gólfinu og stigið á
höfuð hans, allt með þeim afleiðingum að O hafi hlotið áverka í andliti,
glóðarauga og sár á eyra. Teljist þetta varða
við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í
framhaldi af handtöku kærða þann 14. mars sl. hafi hann verið úrskurðaður í
gæsluvarðahald til dagsins í dag á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga
88/2008 og b- liðar 1. mgr. 99. gr. sömu
laga, fyrst með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 15. mars sl., sem hafi verið
staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 173/2012, og síðan með úrskurði Héraðsdóms
Reykjaness frá 21. mars sl., sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar nr.
194/2012.
Kærði
neiti sök en í öllum þremur málunum liggi fyrir framburðir brotaþola og vitna
um þátt kærða og jafnframt séu framburðir brotaþola studdir áverkavottorðum. Þá
liggi einnig fyrir framburðir annarra sakborninga um þátt kærða. Í máli
007-2012-665 liggi einnig
fyrir upptaka úr öryggismyndavél við [...] og greinagerð um símnotkun kærða og
þá hafi fundist ummerki eftir blóð á stofugólfi íbúðarinnar að [...] sem styðji
framburð brotaþola. Nánar um framburð brotaþola, vitna og annarra sakborninga
sé vísað til meðfylgjandi greinagerðar og gagna málsins.
Rannsókn
málanna sé nú lokið og hafi þau verið send Ríkissaksóknara sem hyggst gefa út
ákæru á næstu dögum.
Kærði
liggi samkvæmt framansögðu undir sterkum grun um aðild að og að hafa staðið
fyrir framangreindum líkamsárásum þar
sem brotaþolar voru m.a. á ófyrirleitinn hátt slegnir í höfuð og líkama með
hættulegum bareflum, teknir hálstaki svo leið yfir þá og látnir kasta þvagi
hver yfir annan.
Samkvæmt
framansögðu sé ljóst að kærði sé hættulegur umhverfi sínu og það sé mat
lögreglu að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna enda
megi sjá á framburði brotaþola, vitna og annarra sakborninga að þeir óttist
kærða og meðkærða Y mjög og litist framburður þessara aðila af því. Myndi það
jafnframt særa réttarvitund almennings gengi kærði laus. Brot kærða sé talið
varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem kann að varða
fangelsi allt að 16 árum.
Með
vísan til framangreinds og framlagðra gagna teljist skilyrði 2. mgr. 95. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála uppfyllt og sé því ítrekuð sú krafa að
kærða verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 27. apríl
nk. kl. 16:00.
Með vísan til alls þess sem rakið er að framan og gagna málsins er
fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir sterkum grun um að hafa
framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 10 ára fangelsi. Enn fremur er
fallist á það að brot þau sem kærði er grunaður um að hafa framið séu mjög
alvarleg, þannig að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til
almannahagsmuna. Samkvæmt þessu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr.
88/2008 um meðferð sakamála og verður því fallist á kröfu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki þykir fært að
beita úrræðum samkvæmt 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála
eða marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma.
Úrskurð þennan kveður upp
Jón Höskuldsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram
gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. apríl 2012, kl. 16:00.