Hæstiréttur íslands

Mál nr. 821/2016

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. desember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. desember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.         

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. desember 2016.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. kl. 16.  Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

                Í greinargerð kemur fram að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rann­sóknar mál er varði stórfelldan innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands frá Hollandi. Upphaf málsins megi rekja til þess að tilkynning hafi borist frá tollvörðum um að það hefði borist póstsending frá Hollandi með Fedex sem innihéldi ætluð fíkniefni. Skráður viðtakandi póstsendingarinnar  hafi verið aðili að nafni A, kt. [...], [...] í [...].

Í sendingunni hafi verið að finna nokkur ílát sem við rannsókn tæknideildar lögreglu hafi leitt í ljós að innihéldu 4 kg af amfetamíni. Efnunum hafi verið skipt út af hálfu lögreglu og með heimild héraðsdóms, hafi eftirfararbúnaði og hlustunar-búnaði verið komið fyrir í pakkningunni. Þann 1. desember hafi starfsmaður í útkeyrslu póst­sendinga haft samband við A til að tilkynna honum að sendingin væri á leið til hans. Hann hafi þá ekki svarað, en hringt fljótlega til baka og þá óskað eftir því að send­ingunni yrði ekið að [...] í [...]. Upp úr hádegi þennan sama dag hafi A hringt í Fedex og spurst fyrir um pakkann, honum hafi þá verið sagt að pakkinn yrði afhentur um kl. 15:00.

                A hafi opnað pakkann innandyra og þá séð að í pakkanum var upp­töku­búnaður frá lögreglu. Hann hafi haft samband við kærða B og hafi spurt hann hvað gera ætti við þetta, tekið mynd af innihaldi sendingarinnar og sent honum. Við skoðun á símagögnum milli A og B megi sjá skilaboð á milli þeirra þar sem þeir ræði um sendingu sem hafi verið væntanleg með Fedex.

                A hafi verið handtekinn og hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsókna málsins frá 2. desember. B hafi verið handtekinn 2. desember og hafi honum einnig verið gert að sæta gæsluvarðhaldi.

                Við rannsókn málsins hafi komið í ljós að B hitti aðila að nafni C á veitingastaðnum [...] þann 1. desember, kvöldið sem A hafi verið handtekinn, þar sem þeir ræddu ofangreinda sendingu og fleiri aðila sem mögulega tengist málinu. Það sé því ljóst að fleiri aðilar tengist ofangreindum innflutningi. Sjá nánar gögn málsins.

                Fyrir liggi í málinu framburður aðila þess efnis að kærði hafi átt von á fíkniefnasendingu með Fedex. Hafi kærði þá talað um fleiri aðila sem tengist málinu. Þá liggi fyrir í gögnum málsins að X hringi í farsíma A um 10 mínútum eftir að hann hafi verið handtekinn og sendi honum skilaboð á Facebook í kjölfarið. A hafi verið spurður út í samskipti hans við X og segði hann þau samskipti vera lítil sem enginn og segði X ekki hafa neina ástæðu til að hafa samband við sig.

                X hafi verið handtekinn nú fyrr í dag, en hann neiti sök við skýrslutöku hjá lögreglu.

                Lögreglan leiti nú að meintum samverkamönnum kærða. Ljóst sé að ef kærði gangi laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann. Lögreglan vinni einnig að því að skoða þau gögn sem nú þegar hafi verið lagt hald á og í samstarfi við erlend yfirvöld sé verið að rekja sending pakkans hingað til lands. Sæti kærði ekki gæsluvarðhaldi, í einangrun, gæti hann komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þá þyki nauðsynlegt að bera undir kærða sjálfstætt þau gögn sem lagt hafi verið hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins.

Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í málinu. Kærði sé undir rökstuddum grun um stórfellt fíkniefnalagabrot sem talið sé varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum.og geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.

Niðurstaða:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar ætluð stórfelld brot kærða á fíkniefnalöggjöfinni og kærði er að mati lögreglu undir rökstuddum grun um stórfellt fíkniefnalagabrot sem talið er varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum. Refsing getur, ef sök er sönnuð, varðað allt að 12 ára fangelsi. Þann 30. nóvember sl. lagði lögreglan lagt hald á póstsendingu hjá Fedex sem innihélt rúmlega 4 kg af amfetamíni. Sendingin hafi verið skráð á A, [...] í [...]. Fyrirliggjandi gögn í málinu benda til ætlaðrar aðkomu kærða að innflutningi efnanna, en hann neitar sök. Við rannsókn málsins hefur nú komið í ljós að fleiri aðilar tengjast ofangreindum innflutningi auk kærða og vitni ber um aðild kærða.

Af því sem fram hefur komið er fallist á það með lögreglu að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan frekari rannsókn fer fram. Ætla má að kærði muni reyna að torvelda rannsókn málsins gangi hann laus, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fullnægt svo fallast má á kröfu lög­reglu­stjórans um að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Ekki þykir tilefni til að marka gæslu­varð­haldinu skemmri tíma en krafist eins og verjandi krefst til vara.

Þá hefur sækjandi fært að því fullnægjandi rök, sbr. og skilyrði b. liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 að nauðsynlegt sé að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi standi.

        Verður, að öllu framangreindu virtu, krafan tekin til greina eins og í úrskurðarorði greinir.

                Þórður Clausen Þórðarson kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð: 

                 X skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. kl. 16.  Þá sæti kærði einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.