Hæstiréttur íslands

Mál nr. 411/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 14

 

Þriðjudaginn 14. nóvember 2000.

Nr. 411/2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi)

gegn

X

(Pétur Örn Sverrisson hdl.)

                                                   

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. Laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Ú R S K U R Ð U R

 

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðviku­dagsins 29. nóvember 2000 klukkan 16.00.

                [ . . . ]

                Fyrir liggur að verið er að rannsaka ætluð brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem geta varðað kærða fangelsisrefsingu ef sannast.  Hefur kærði þegar kannast við að hafa staðið að framangreindum innflutningi en rannsókn máls þessa, sem auk kærða varðar tvo aðra einstaklinga, sem handteknir voru um leið og hann, er ekki lokið.  Þegar litið er til þess sem fram er komið í máli þessu, svo og til rannsóknargagna, verður að telja að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærði komi ekki til með að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á vitni og samseka, eða með því að fara úr landi.  Teljast skilyrði a og b liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 því uppfyllt.  Verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald kærða því tekin til greina eins og hún er fram sett.

 

Úrskurðarorð

                Kærði X sæti áfram gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 29. nóvember 2000 kl. 16.00.