Hæstiréttur íslands

Mál nr. 772/2016

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Súsanna Björg Fróðadóttir fulltrúi)
gegn
X (Daníel Reynisson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. nóvember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. nóvember 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. nóvember 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að beitt verði vægari úrræðum, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. nóvember 2016.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. nóvember 2016, kl. 16:00. Til vara er þess krafist að kærða verði gert að sæta farbanni allt til föstudagsins 16. desember 2016 og að á þeim tíma verði honum gert að tilkynna sig daglega til lögreglu á lögreglustöð.

Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra. Hann krefst þess aðallega að gæsluvarðhalds­­kröfunni verði hafnað, til vara að vægari úrræðum verði beitt og til þrautavara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist sé.

I

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum er til þess vísað að lögregla hafi til rannsóknar meint kynferðis- og barnaverndarlagabrot kærða gegn fjölda barna. Meint brot kærða hafi verið framin á tímabilinu september til nóvember 2016 á nokkrum stöðum í Reykjanesbæ. Kærði sé einnig grunaður um að hafa áreitt nokkrar ungar stúkur kynferðislega með sendingu skilaboða í gegnum vefsíðuna facebook. Auk þess hafi kærði haldið úti síðum þar sem myndir af unglingstúlkum hafi birst en þegar smellt hafi verið á myndirnar hafi komið í ljós gróft klám. Með þessum hætti hafi verið ýjað að því að klámmyndin væri af viðkomandi stúlku. Undanfarna daga hafi lögregla átt fullt í fangi með að taka á móti kærum frá foreldrum stúlknanna.

                Lögreglustjóri segir rannsókn málsins vera á algeru frumstigi. Meðal þess sem rannsaka þurfi sé umfang meintra brota kærða en ekki liggi fyrir gegn hversu mörgum börnum kærði kunni að hafa brotið. Hvað umfangið varði liggi þó fyrir að á síðu kærða hafi verið myndir af um 80 stúlkum. Lögregla vinni að því að taka við kærum og síðan þurfi að taka skýrslur af brotaþolum. Lögregla vinni jafnframt að því að undirbúa hættumat, unnið af sálfræðingi, vegna kærða. Þá þurfi að kanna hvort ástæða sé til þess að gera kærða að gangast undir geðmat.

II

Lögreglustjóri segir kærða undir rökstuddum grun um brot gegn 209. og 210 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Lögreglustjóri telji að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á brotaþola og önnur vitni, gangi hann laus. Samkvæmt því telji lögreglustjóri að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í málinu.

Lögreglustjóri vísar enn fremur til þess að fyrsta kæran hafi borist 10. október sl. Kærði hafi verið handtekinn í kjölfarið og allur tölvubúnaður hans verið haldlagður af lögreglu. Kærði hafi þá verið með klámfengnar myndir af börnum í fórum sínum. Ljóst sé að eftir að kærða var sleppt hafi hann haldið áfram kynferðislegri áreitni gegn börnum og þá hafi grófleika brotanna aukist. Í því ljósi telji lögreglustjóri hættu á að kærði haldi áfram brotum sínum gegn börnum á meðan máli hans sé ekki lokið. Því telji lögreglustjóri að skilyrðum c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé einnig fullnægt í málinu.

                Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, hættu á áframhaldandi brotum kærða, sbr. a-og c-liði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, telji lögreglustjóri uppfyllt lagaskilyrði til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. nóvember 2016, kl. 16:00, svo sem krafist sé.

Til vara sé þess krafist að kærða verði gert að sæta farbanni allt til föstudagsins 16. desember 2016, sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, og að á þeim tíma verði kærða gert að tilkynna sig daglega til lögreglu á lögreglustöð.

III

Með vísan til framangreinds, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Ætla verður lögreglu nokkuð ráðrúm til þess að rannsaka meint brot kærða en þau gögn sem þegar hefur verið aflað benda til þess að málið geti verið nokkuð umfangsmikið. Telja verður að gangi kærði laus megi ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Í ljósi þess sem áður segir um umfang málsins þykja ekki efni til þess að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er og er krafa lögreglustjóra því tekin til greina með þeim hætti sem hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. nóvember 2016, kl. 16:00.