Hæstiréttur íslands
Mál nr. 458/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
Nr. 458/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Guðjón Ólafur Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. nóvember 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. nóvember 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 25. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að úrskurður héraðsdómara verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. nóvember 1999.
Lögreglan hefur krafist þess að X, [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 25. nóvember nk. kl. 16:00 á grundvelli a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærði hefur mótmælt fram kominni kröfu.
[...]
Með hliðsjón af rannsóknargögnum sem lögð hafa verið fyrir dóminn, þykir komið fram rökstuddur grunur um aðild kærða að fíkniefnamisferli því sem til rannsóknar er hjá lögreglu, en rannsóknin er enn á frumstigi hvað þátt kærða varðar. Í ljósi rannsóknarhagsmuna er fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett og greinir í úrskurðarorði, en kærði er grunaður um brot, sem varðað getur fangelsisrefsingu skv. lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 eða gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 25. nóvember nk. kl. 16:00.