Hæstiréttur íslands

Mál nr. 697/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn)
gegn
X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. október 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. október 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 27. október 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Þá er fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að hann sæti gæsluvarðhaldi svo og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur. 

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. október 2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X,  kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 27. október 2015 og að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á því stendur.

Í greinargerð með kröfunni segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Þann 22. september sl. hafi kærði komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...]með ferjunni [...]. Kærði, X sé umráðamaður bifreiðarinnar [...]. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. til 25. september. Föstudaginn 25. september hafi kærði farið með flugi frá Íslandi, en hann hafi skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Kærði hafi aftur komið til landsins þann 28. september sl. og sótt bifreiðina. Hann hafi ekið henni sem leið lá inn í [...] á [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Kærði hafi þar hitt meðkærða Y og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið.  Bifreiðin hafi verið haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi fundist mikið magn af sterkum fíkniefnum sem voru vel falin í bifreiðinni.

Þá segir að alls hafi fjórir aðilar verið handteknir og sæti þeir allir gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins. Kærði hafi í fyrstu neitað sök við skýrslutökur hjá lögreglu. Kærði hafi nú játað að hafa flutt fíkniefni í bílnum til landsins. Í framburði kærða komi fram að tveir [...] hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins og hann hafi ekið bifreiðinni að beiðni þeirra og átt að fá greitt fyrir. Sjá nánar meðfylgjandi framburðarskýrslu kærða og önnur gögn sem liggi fyrir.

Ennfremur segir að lögreglan vinni nú að málinu í samstarfi við [...] yfirvöld og leiti lögreglan nú að þessum aðilum. Þá sé einnig unnið í því að afla gagna erlendis frá. Nauðsynlegt sé á þessu stigi máls að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi svo hægt sé að koma í veg fyrir að kærði geti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.

Kærði mótmælti kröfunni og kvað skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga ekki uppfyllt. Rannsóknarhagsmunir séu ekki lengur fyrir hendi og lögregla hafi lagt hald á síma hans og gögn sem tengist málinu. Til vara krafðist hann þess að gæsluvarðhaldinu yrði ákvarðaður skemmti tími.

Eins og rakið hefur verið og sjá má í gögnum málsins er um mikið magn fíkniefna að ræða, sem má ætla að séu í sölu-og dreifingarskyni. Fallast verður á með lögreglustjóra að rannsókn málsins snúi að hugsanlegum samverkamönnum og skipuleggjendum. Má ætla að kærði geti haft áhrif á aðra samseka eða vitni, gangi hann laus.  Skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eru því uppfyllt í málinu.

Þá verður einnig fallist á þá kröfu lögreglustjóra að kærði sæti einangrun á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi og fær sú niðurstaða stoð í því sem að framan er rakið varðandi tengsl kærða við Ísland og möguleika hans á að hafa samband við meðseka og vitni sæti hann ekki einangrun á meðan rannsóknarhagsmunir krefjast. 

Með vísan til rannsóknargagna og þess sem nú hefur verið rakið, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

Úrskurðarorð:

Kærði, X , skal sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 27. október nk. kl. 16.00. Kærði sæti einangrun á þeim tíma.