Hæstiréttur íslands

Mál nr. 3/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 6

Miðvikudaginn 6. janúar 2010.

Nr. 3/2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Y kom með flugi frá Berlín til Keflavíkurflugvallar að kvöldi 14. desember 2009. Svo sem fram kemur í hinum kærða úrskurði fannst tilgreint magn af amfetamíni í farangri hans. Hann var þá handtekinn. Við yfirheyrslu hjá sóknaraðila 16. desember 2009 lýsti hann því að varnaraðili hefði fengið sig til að fara til Hollands í því skyni að sækja fíkniefnin. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. janúar 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að X, kt. [...], [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00. Er krafan sett fram með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008  um meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni.

Kærði hefur mótmælt kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að maður að nafni Y hafi verið stöðvaður við komu til Keflavíkur er hann kom til landsins með flugi frá Berlín í Þýskalandi vegna gruns um að hann hefði fíkniefni meðferðis. Við eftirlit tollgæslu hefðu fundist í farangri hans um 3.736,11 g af amfetamíni. Við meðferð málsins hafi vaknað rökstuddur grunur um að kærði sé eigandi þeirra efna sem Y kom með til landsins en Y sitji nú í gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurði dómsins. Hafi lögregla leitað kærða í allt að tvær vikur en hann hafi haldið sig í felum, vitandi að hann væri eftirlýstur af lögreglu. Þá hafi lögregla í dag farið í nokkrar húsleitir, m.a. á ætlaða dvalarstaði kærða sem kunni að hafa verið nokkrir á undanförnum dögum, og haldlagt meðal annars nokkra farsíma, veski kærða o.fl. Til standi að fara í fleiri húsleitir auk þess sem lögregla telji nauðsynlegt að fá heimild eða úrskurð dómsins fyrir því að fara í bankahólf sem kærði mun hafa verið með lykil að við handtöku.

Rannsókn máls þessa sé á frumstigi. Meðal þess sem rannsaka þurfi sé aðdragandi  ferða  Y af landi brott og aftur til landsins og tengsl kærða við Y og hugsanlega aðra vitorðsmenn á Íslandi og/eða erlendis, þá síma sem kærði hafði í vörslum sínum og rökstuddur grunur sé til að ætla að hafi verið notaðir við skipulag hins ætlaða innflutnings fíkniefna hingað til lands auk annarra atriða. Það magn fíkniefna, sem þegar hafi fundist í fórum Y þyki benda til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og háttsemin kunni að varða við ákvæði 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæða laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Lögregla telji að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus.

Þess er krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Þá er þess jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta takmörkunum sbr. a- til f-liði 1. mgr. sömu greinar.

Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á byrjunarstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á hugsanlega samseka og vitni. Að virtum rannsóknargögnum málsins og því, sem að framan er rakið, er fallist á það með lögreglustjóra að uppfyllt séu skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og verður kærða því gert að sæta gæsluvarðhaldi eins og krafist er allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010 kl. 16.00. Með sömu rökum verður kærða gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Úrskurð þennan kveður upp Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 12. janúar 2010, kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.