Hæstiréttur íslands

Mál nr. 551/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


                                              

Mánudaginn 19. ágúst 2013.

Nr. 551/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson lögreglustjóri)

gegn

X

(Víðir Smári Petersen hdl.)

Kærumál. Farbann.

X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. ágúst 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. ágúst 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni til þriðjudagsins 10. september 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að hann haldi frelsi sínu gegn tryggingu, en að því frágengnu að farbanni verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. ágúst 2013.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að kærða X, kt. [...], verði gert að sæta farbanni til þriðjudagsins 10. september 2013 kl. 16:00.

                Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að embætti lögreglustjórans á höfuð­borgar­svæðinu rannsaki andlát A kt. [...] sem sunnu­dagskvöldið 17. mars sl. hafi verið flutt meðvitundarlaus af heimili sínu í Reykjavík á Landspítalann við Hringbraut þar sem hún hafi verið úrskurðuð látin laust eftir kl 02:00 aðfaranótt mánudagsins 18. mars sl.

Óskað hafi verið eftir sjúkrabíl að heimili barnsins um kvöldmatarleyti 17. mars sl. vegna veikinda þess. Nágrannar barnsins hafi hringt að beiðni föður þess. Barnið hafi þá verið meðvitundarlaust en andað. Við líkamsskoðun á barninu á Land­spítal­anum hafi sést marblettir ofarlega á báðum upphandleggjum þess, sér­stak­lega hægra megin. Fljótlega eftir komu á slysadeild hafi komið í ljós að annað sjá­aldrið hjá barn­inu var víðara en hitt og hafi verið farið með barnið í tölvu­sneið­mynd á höfði. Tölvu­sneið­myndin hafi sýnt útbreidda blæðingu hægra megin undir höfuð­kúpubeini sem hafi legið yfir nær öllu hægra heilahvelinu og inn á milli heila­hvelanna. Þá hafi æðar í höfði barnsins reynst sprungnar og háræðar rifnar. Stúlkan hafi látist vegna heila­blæðingar. Niðurstaða læknis, sem hafi skoðað barnið, hafi verið sú að útlit blæð­ingar­innar samræmdist blæðingu af völdum áverka, höggs eða því þegar heili kastast til inni í höfuðkúpu. Þá hafi áverkar á höndum bent til þess að barnið hefði verið beitt ofbeldi.

Vegna framangreinds hafi kærði verið handtekinn og yfirheyrður vegna málsins. Hann hafi neitað að vera valdur að áverkum dóttur sinnar. Hafi hann greint lög­reglu frá því að hafa verið einn heima með barnið sem hafi vaknað skömmu eftir að móðir þess hafi farið til vinnu. Barnið hafi grátið og verið óvært en hann hafi reynt að róa það með því að ganga með það um gólf og fara með það út að ganga. Þegar kærði hafði gengið um gólf með barnið eftir að hann kom inn úr göngutúrnum hafi komið frá því undarleg hljóð og jafnframt hafi líkami þess orðið máttlaus. Í fram­hald­inu hafi hann leitað til nágranna sinna og beðið þá að hringja á sjúkrahús.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi móðir barnsins farið til vinnu kl. 17:40 og hafi barnið þá verið sofandi. Laust fyrir klukkan 19:00 hafi kærði hringt í móður barnsins og sagt henni að eitthvað amaði að barninu.

A hafi verið krufin þriðjudaginn 19. mars sl. og bráðabirgðasamantekt á niður­stöðum krufningarinnar bendi til þess að barnið hafi verið beitt ofbeldi með þeim hætti að það hafi verið hrist skömmu fyrir andlát þess. Þetta sjáist á ytri áverkum á hand­leggjum barnsins og blæðingu í höfði og hjarta þess. Þá beri barnið einnig merki þess að hafa verið beitt ofbeldi áður, en eldri blæðingar og áverkar hafi verið sjáanleg á rifjum og vinstri sköflungi barnsins. Niðurstaða krufningarinnar sé sú að barnið hafi látist vegna svokallaðs shaken baby syndrome.

Kærði hafi nú verið yfirheyrður í þrígang og neiti alfarið að vera valdur að áverkum dóttur sinnar en geti ekki gefið skýringar á þeim miklu blæðingum og útvortis áverkum sem hún hafi borið við komu á slysadeild 17. mars sl., en hann hafi verið sá eini sem hafi haft með barnið að gera þar til það missti meðvitund.

Rannsókn málsins sé langt á veg komin en beðið sé endanlegrar niðurstöðu krufningar svo unnt sé að senda málið ríkissaksóknara til þóknanlegrar meðferðar.

Kærði hafi upphaflega verið úrskurðaður í gæsluvarðhald með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 18. mars sl., sbr. mál nr. R-109/2013, sem Hæstiréttur hafi stað­fest með dómi réttarins í málinu nr. 184/2013. Kærða hafi í framhaldi verið gert að sæta far­banni sem Hæstiréttur hafi m.a. staðfest með dómi réttarins í máli nr. 414/2013.

Kærði liggi samkvæmt framansögðu undir sterkum rökstuddum grun um að vera valdur að dauða dóttur sinnar, A og hafa þar með framið brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varði allt að 16 ára fangelsi eða eftir atvikum gegn 215. gr. sem geti varðað fangelsi allt að 6 árum.

Það sé mat lögreglustjóra að brot það sem hér um ræðir sé þess eðlis að nauð­syn­legt sé að tryggja nærveru kærða á landinu vegna rannsóknar málsins og mögu­legrar málsmeðferðar fyrir dómi. Kærði sé búsettur hér á landi en hann sé breskur ríkis­borgari. Hann hafi einungis verið búsettur hér á landi í rúmt ár og sé án atvinnu og húsnæðis. Eftir andlát dóttur sinnar hafi hann lítil tengsl hér á landi þar sem hann hafi fyrst og fremst verið í tengslum við barnsmóður sína og fólk tengt henni. Það sé því mat lögreglustjóra að nauðsynlegt sé að kærði sæti farbanni meðan á meðferð máls þessa stendur.

Að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af því hversu alvarlega háttsemi kærði er sakaður um, telur lögreglustjóri uppfyllt skilyrði til að hann sæti farbanni á grund­velli b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga nr. 88/2008.

Eins og að framan greinir lést dóttir kærða aðfaranótt 18. mars sl. Hún var í  umsjá kærða er hún missti meðvitund og samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við.  Kærði hefur sætt farbanni vegna þessa frá 18. mars sl., nú síðast samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands frá 21. júní 2013. Rannsókn málsins er langt á veg komin, en enn er þó beðið sérfræðiálits um niðurstöðu krufningarskýrslu. Lögregla væntir niðurstöðu rannsóknarinnar innan skamms. Kærði, sem er erlendur ríkisborgari, hefur takmörkuð tengsl við landið.  Kærði neitaði að tjá sig fyrir dóminum um það hvort hann myndi yfirgefa landið ef farbanni yrði aflétt. Með vísan til framangreinds er fallist á að fullnægt sé skilyrðum b-liðar 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 100. gr. s.l., um að hætta geti verið á að kærði reyni að koma sér undan málsókn.  Eins og atvikum er háttað þykir meðferð málsins ekki ennþá hafa dregist úr hófi fram. Er því fallist á kröfu lögreglustjórans um kærði sæti áfram farbanni, eins og krafist er og nánar greinir í úrskurðarorði.  

Kristrún Kristinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Kærða, X, kt. [...] , er bönnuð för af landinu allt til þriðjudagsins 10. september 2013, kl. 16:00.