Hæstiréttur íslands
Mál nr. 534/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Miðvikudaginn 15. september 2010. |
|
|
Nr. 534/2010. |
Ákæruvaldið (Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. september 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. október 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að henni verði gert að sæta farbanni en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á að fullnægt sé skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fyrir gæsluvarðhaldi varnaraðila þann tíma sem í hinum kærða úrskurði greinir. Verður hann því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. september 2010.
Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fædd [...], þýskum ríkisborgara, verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 4 vikur eða til 8. október 2010, kl. 16.00.
Í greinargerð Ríkissaksóknara kemur fram að kærða hafi ásamt Y verið handtekin á Seyðisfirði þann 17. júní sl. við komu þeirra til landsins með Norrænu. Í VW Passat bifreið, með skráningarnúmer [...], í eigu X hafi fundist 19.750 ml af vökva sem hafi innihaldið amfetamínbasa falinn í eldsneytistanki bifreiðarinnar.
Við rannsókn málsins hafi X skýrt frá því að maður að nafni Z hafi gefið henni umrædda bifreið. Hann hafi farið með henni á bílasölu og greitt fyrir bifreiðina í peningum. Hann hafi einnig skilið eftir nokkurt magn af peningum hjá henni til þess að greiða fyrir Íslandsferð. Að hennar sögn hafi verið um að ræða vinargreiða. X og Y hafi farið saman á ferðaskrifstofuna en X hafi greitt fyrir Íslandsferðina með peningum frá Z. Í byrjun júní hafi X ekið VW Passat bifreiðinni, ásamt vinkonu sinni, A, frá Þýskalandi til Litháen. Hafi Z lagt út fyrir kostnaði ferðarinnar og hitt þær í Litháen. Þar hafi hann tekið við bifreiðinni og skilað henni daginn eftir með þeim tilmælum að aka einungis 300 km og taka svo eldsneyti. Hafi hann einnig tekið við upplýsingum um bifreiðina og ferðaupplýsingum hennar og Y til Íslands. Eftir ferð til Litháen hafi X og Y ekið frá Þýskalandi til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar.
Umræddur Z, fæddur [...], hafi hlotið fjögurra ára fangelsisrefsingu hér á landi með dómi Hæstaréttar í máli nr. 420/2006 fyrir að hafa flutt hingað til lands 2 lítra af amfetamínvökva og brennisteinssýru. Í samráði við litháísk yfirvöld hafi verið reynt að hafa upp á Z, en án árangurs. Kærða Y, sem hafi verið farþegi bifreiðarinnar, hafi neitað allri aðild að málinu. Hafi hún skýrt frá því að hún hafi komið hingað til landsins í boði X. X og Y séu vinkonur og nágrannar til margra ára og tilgangur ferðarinnar hafi verið að fara í Bláa lónið.
Gögn málsins renni stoðum undir ætlaðan þátt kærðu í hinu stórfellda fíkniefnabroti. Það sé því mat ákæruvalds að sterkur grunur sé um að kærða hafi átt þátt í að flytja til landsins mikið magn fíkniefna ætluðum til söludreifingar hér á landi. Málið hafi borist ríkissaksóknara 3. september sl. og hafi ákæra verið gefin út þann 8. september sl. Þar sé X ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 17. júní 2010, staðið saman með Y að innflutningi til Íslands á 19.750 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa ætlaðan til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni og unnt hafi verið að framleiða úr allt að 20,9 kg af hreinu amfetamínsúlfati sem samsvari 153 kg af efni miðað við 10% styrkleika. Ætlað brot kærðu teljist varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga en brot gegn ákvæðinu varðar fangelsi allt að 12 árum. Kærða hafi verið úrskurðuð í gæsluvarðhald 18. júní sl. og hafi verið í gæsluvarðhaldi síðan, fyrst á grundvelli a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og frá 6. ágúst sl. á grundvelli a- og b-liðar 1. mgr. 95. gr. sömu laga, sem staðfest hafi verið með dómi Hæstaréttar í máli nr. 511/2010.
Almannahagsmunir krefjist þess að kærða verði í gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hennar og er vísað til dómvenju í þeim efnum. Staða kærðu í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999. Þar hafi sakborningum verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms en fyrir hafi legið grunur um beina aðild þeirra að innflutningi á miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
Þá sé það mat ríkissaksóknara að einnig sé nauðsynlegt að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, þar sem kærða hafi engin tengsl við landið og því líklegt að hún muni reyna að komast úr landi og þannig undan málsókn. Það sé því afar brýnt að tryggð verði nærvera hennar á meðan mál hennar sé til meðferðar hjá dómstólum.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og b-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.
Samkvæmt framangreindu er sterkur grunur um að kærða hafi brotið gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Um er að ræða umfangsmikið brot á fíkniefnalöggjöfinni og er rannsókn málsins lokið og var ákæra gefin út 8. september sl. Með tilliti til almannahagsmuna verður á það fallist með Ríkissaksóknara að brotið sé þess eðlis að brýn nauðsyn sé að tryggja að kærða gangi ekki laus á meðan mál hennar er til meðferðar. Kærða er erlendur ríkisborgari og hefur engin tengsl við landið, sbr. b-lið 1. mgr. og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt framangreindu þykir verða að fallast á kröfuna eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Það er mat dómsins að farbann sé ekki viðhlítandi úrræði í málinu í ljósi hinna alvarlegu sakargifta og einnig þess að kærða er erlendur ríkisborgari.
Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærða, X, fd. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. október nk., kl. 16.00.