Hæstiréttur íslands
Mál nr. 851/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Miðvikudaginn 23. desember 2015. |
|
Nr. 851/2015.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hrafnhildur Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson hdl.) |
Kærumál. Farbann.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. desember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 19. janúar 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með dómi Hæstaréttar 27. nóvember 2015 í máli nr. 792/2015 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um gæsluvarðhald yfir varnaraðila. Eru því fyrir hendi skilyrði til að honum verði gert að sæta farbanni, sbr. 1. mgr. 100. gr. laganna. Hinn kærði úrskurður verður því staðfestur.
Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 22. desember 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, fæddur [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta farbanni, allt til þriðjudagsins 19. janúar 2016, kl. 16:00.
Í greinargerð með kröfunni segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varðar innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Þann 22. september sl. hafi meðkærði Y, komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Kærði, Y sé umráðamaður bifreiðarinnar [...]. Lögreglan hafi haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. 25. september. Föstudaginn 25. september hafi Y farið með flugi frá Íslandi, en hafi skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Y hafi komið aftur til landsins þann 28. september og sótt bifreiðina. Kærði, X, hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og hafi þeir ekið á sitt hvorri bifreiðinni sem leið lá inn í [...] á [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Þar hafi hann hitt meðkærða Y og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin sem meðkærði Y ók var haldlögð af lögreglu og við leit í henni fundust rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem var búið að fela í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafa þeir allir sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar þess.
X hafi neitað sök við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu. X hafi nú játað það að hafa tekið þátt í því að flytja inn ofangreinda bifreið en hann kvaðst ekki hafa vitað að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. X hafi lýst fyrir lögreglu hvernig skipulagningu innflutningsins hafi verið háttað og að hann hafi áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. X hafi greint lögreglu frá því að tveir [...] hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins. Aðspurður sagði X hlutverk sitt hafa verið að koma til landsins, fjarlægja það sem hafi verið í bifreiðinni, og afhenda aðila við Bláa Lónið. Hann hafi síðan átt að fá skilaboð varðandi peningagreiðslu fyrir sinn þátt. Kærði hafi einnig upplýst lögreglu um það að hann hafi nokkrum sinnum hitt samverkamenn sína á fundum í [...], áður en haldið var til Íslands, þar sem ferðin hafi verið skipulögð. Nánar varðandi framburð kærða sé vísað í gögn málsins.
Kærði þykir vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati lögreglu þykir meint aðild kærða mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt og þess eðlis að rétt hafi verið talið að tryggja að kærði gengi ekki laus á meðan mál hans sé til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði sé látinn laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Metur lögregla það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða kærða þykir sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum sbr. mál Hæstaréttar nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hefur fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. R-[...]/2015. Þar sem kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum telji lögregla, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki sé heimilt að úrskurða hann áfram í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Sé því farið fram á að kærði verði úrskurðaður í farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008. Sé á því byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt eins og áður er rakið. Jafnframt telji lögregla að fyrir hendi séu skilyrði til að úrskurða kærða í farbann á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Kærði sé erlendur ríkisborgari og hafi engin sérstök tengsl við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Að mati lögreglu sé brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans sé til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans sé til lykta leitt.
Rannsókn lögreglu sé vel á veg komin. Hún sé að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og beinist meðal annars að því að hafa uppi á samverkamönnum kærðu í [...], en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum og vinnur lögregla nú að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða kærða í farbann sé vísað til b. liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. sbr. 100 gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins sé þess beiðst að krafa lögreglustjóra um farbann nái fram að ganga.
Kærði mótmælti kröfunni og kvað skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 ekki vera fyrir hendi né b-liðar sömu greinar. Krafðist hann til vara að honum yrði gert að leggja fram tryggingu með vísan til 101. gr. laga nr. 88/2008 og til þrautavara að farbanninu verði markaður skemmri tími. Þá kveður kærði farbann vera verulega íþyngjandi fyrir sig þar sem hann eigi börn og fjölskyldu í [...].
Með vísan til þess sem að framan er rakið telur dómari útilokað að byggja farbann á 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 með vísan til 4. mgr. 95. gr. en því er ekki haldið fram af sækjanda að rannsóknarhagsmunir séu til staðar sbr. a-liður 95. gr. sl. Kærði er erlendur ríkisborgari, búsettur erlendis og hefur engin tengsl við Ísland. Þá er rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem geti varðað allt að tólf ára fangelsi. Sæti hann ekki farbanni má ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Er því skilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 uppfyllt. Er því brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt eða þar til dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til 19. janúar nk. kl. 16.00.
Úrskurð þennan kveður upp Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði X, skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 19. janúar 2016, kl. 16:00.