Hæstiréttur íslands

Mál nr. 514/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 9

 

Þriðjudaginn 9. október 2007.

Nr. 514/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Baldursson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. október 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. október 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Svo sem fram kemur í hinum kærða úrskurði stendur nú yfir hjá sóknaraðila rannsókn á því hvort varnaraðili hafi í félagi við nokkra fleiri menn gerst að undanförnu sekur um þjófnaði úr ýmsum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Verður fallist á með sóknaraðila að rökstuddur grunur sé um að svo kunni að vera. Við slíkum brotum liggur fangelsisrefsing samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður fallist á niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að skilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé fullnægt fyrir gæsluvarðhaldi varnaraðila og verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

                             Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 4. október 2007.

             Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 11. október 2007 kl. 16:00.

Gerð var húsleit í íbúð á Y, í fyrradag. Í íbúðinni hafa búið nokkrir menn frá Litháen, þar á meðal kærði. Við húsleitina var lagt hald á mikið magn af munum, svo sem fatnaði, snyrtivöru og ýmsum tæknibúnaði.  Þá fundust 500.000 krónur í reiðufé. Telur lögregla að munir þessir séu þýfi og kveðst hafa tengt hluta munanna við þjófnaði sem tilkynntir hafi verið í verslunum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu mánuðum.

Gerð var húsleit í íbúð á Z, Reykjavík, í gærdag, í kjölfar upplýsinga þess efnis að íbúar þar tengdust þeim sem búa í Y. Kærði var gestkomandi í íbúðinni þegar húsleitin var framkvæmd og var handtekinn, en hann býr eins og áður segir í Y. 

Sakarefni málanna sé talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Fallast ber á með lögreglu að rökstuddur grunur beinist að kærða um þátt eða hlutdeild í auðgunarbrotum.  Þar sem átta aðrir eru einnig undir grun verður að tryggja að þeim verði gert ókleift að hafa samband sín á milli og samræma skýrslur sínar.  Verður kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.  Er hæfilegt að marka varðhaldinu tíma til nk. miðvikudags. 

Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

                                                       Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærða, X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 10. október nk. kl. 16.00.