Hæstiréttur íslands

Mál nr. 220/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Þriðjudaginn 13. apríl 2010.

Nr. 220/2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. apríl 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Samkvæmt gögnum málsins beinist rökstuddur grunur sóknaraðila að varnaraðila um að hafa í félagi við aðra menn framið refsiverð brot gegn þeim lagaákvæðum sem nefnd eru í hinum kærða úrskurði. Með vísan til forsendna úrskurðarins verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.            

                                                                           

ÚrskurðurHéraðsdóms Reykjaness 10. apríl 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. apríl 2010, kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að lögreglan hafi stöðvað um miðjan dag í gær, 9. apríl, bifreiðina [...]. Í henni hafi verið þrír aðilar, A, kt. [...], B, kt. [...], og C, kt. [...]. Hafi þeir verið grunaðir um þjófnað á verkfæratösku fyrir framan leikskólann [...], Reykjanesbæ. Við frumrannsókn hafi lögreglan fundið verkfæratösku sem hafi verið tekin skömmu áður ófrjálsri hendi. Á vettvangi hafi C viðurkennt að hafa tekið töskuna ófrjálsri hendi og hafi hann verið handtekinn. Á lögreglustöð hafi verið tekin framburðarskýrsla af A og hann borið um að hafa verið sviptur frelsi sínu aðfaranótt 9. apríl sl. Hann hafi verið færður á brott af heimili unnustu sinnar þar sem hann hafi verið sofandi og ítrekað verið ráðist að honum og hann neyddur til að taka umrædda verkfæratösku ófrjálsri hendi. Í framhaldi af þessu hafi A og B verið handteknir en kærði verið eftirlýstur. Kærði hafi verið handtekinn síðastliðna nótt. Hann hafi viðurkennt að hafa verið á heimili B 9. apríl sl. Við handtöku A hafi fundist í fórum hans myndavél með myndum af ætluðum árásum á C á heimili B. Hafi lögreglan rökstuddan grun til að ætla að fleiri aðilar en kærði, A og B hafi staðið að ætlaðri frelsissviptingu og ætluðum líkamsárásum á C og hafi einn til viðbótar verið handtekinn og fleiri aðila leitað.

Rannsókn máls þessa sé á frumstigi. Meðal þess sem rannsaka þurfi sé aðdragandi að hinni ætluðu frelsissviptingu og tengsl kærða við aðra hugsanlega vitorðsmenn auk annarra atriða. Telji lögreglan að hin ætlaða háttsemi kærða kunni að varða einkum við ákvæði 2. mgr. 218. gr., 226. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæði laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Lögreglan telji að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus.

Þess sé krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Þá sé þess jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta takmörkunum sbr. a- til f-liða 1. mgr. sömu greinar.

Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 2. mgr. 218. gr., 226. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. apríl 2010 kl. 16.00.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um aðild að brotum sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á frumstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. apríl 2010, kl. 16.00.

Kærða er gert að vera í einangrun meðan á gæslu stendur.