Hæstiréttur íslands

Mál nr. 510/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 31. ágúst 2010.

 

Nr. 510/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. ágúst 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. ágúst 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. september 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. ágúst 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...], [...], [...], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. september 2010 kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kærði krefst þess að kröfunni verði hafnað.

Krafa er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í kröfu lögreglustjórans kemur m.a. fram að lögreglan hafi um nokkurt skeið haft til rannsóknar manndrápsmál. Þann 15. ágúst sl. hafi lögreglunni borist tilkynning um meðvitundarlausan mann í íbúðarhúsnæði að [...] í [...]. Þegar lögreglan kom á vettvang hafi mátt sjá fjölmörg stungusár á hinum látna, A. Að áliti réttarmeinafræðings hafi A verið veginn á tímabilinu 5:45 til 10:30 um morguninn. Samkvæmt frumathugun tæknideildar lögreglu hafi verið ráðist á A þar sem hann hafi legið sofandi í rúmi sínu og hann þar stunginn í bakið. Þann  16. ágúst hafi kærði verið  handtekinn í þágu rannsóknar málsins en sleppt að loknum yfirheyrslum. Í gær hafi hann á ný verið handtekinn. Í skýrslutöku hjá lögreglu neiti hann alfarið sök. Um ferðir sínar aðfaranótt sunnudagsins 15. ágúst hafi kærði skýrt svo frá að hann hafi hitt unnustu hins látna, B, í miðbæ Reykjavíkur. Þau hafi skemmt sér saman en því næst hafi hann ekið henni heim til sín að [...], [...] en hún hafi verið mjög ölvuð. Hann hafi borið hana inn í íbúðina og lagt hana í rúm sitt og sjálfur sofið í sófa í stofu. Um morguninn hafi hann ekið henni að heimili sínu að [...] í [...]. Við yfirheyrslu hjá lögreglu viðurkenndi kærði að vera mjög ástfanginn af B og kannaðist við að hafa opinberað hrifningu sína á henni á vefsíðunni [...] í mars í fyrra.

Tæknideild lögreglunnar hafi rannsakað bifreið kærða og við þá skoðun hafi mátti finna í farangursrými daufa svörun eins og blóð hafi legið þar. Sýni hafi verið tekið og sent til frekari rannsóknar. Endanlegrar niðurstöðu sé að vænta eftir um tíu daga.  Kærði geti enga skýringu gefið á umræddri blóðsvörun.

Þá hafi lögregla fundið skófar á gólfi við rúm hins látna. Komi skófarið heim og saman við skó kærða sem hann hafi verið í umrædda nótt.  Þá hafi fundist á skófarinu einstætt einkenni eða skemmd sem einnig hafi fundist á skósóla kærða.  Kærði hafi ekki getað gefið neina skýringu á tilvist umrædds skófars.  Við skoðun tæknideildar á skóm kærða hafi  mátti greina blóð. Í skýrslutöku  hafi kærði ekki getað gefið skýringu  á því. Skórnir hafa nú verið sendir til frekari rannsóknar, m.t.t. DNA-rannsóknar, og megi ætla að endanlegar niðurstöður liggi fyrir eftir um þrjár til fjórar vikur.

Í ljós alls þessa sé það mat lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að eiga aðild að láti A.  Rannsókn málsins sé afar skammt á veg komin og því yfirgnæfandi líkur til þess, gangi kærði frjáls ferða sinna, að hann kunni að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum sem máli kunni að skipta og hafa áhrif á vitni eða hugsanlega aðra samseka.

Með vísan til framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er á frumstigi og haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmanna eða vitna. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Þá verður með sömu rökum og rakin eru hér að framan og með vísan til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sakamálalaga fallist á kröfur lögreglustjóra um að kærði sæti einangrun á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurði þessum.

Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 24. september nk. kl. 16.00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæslu stendur.