Hæstiréttur íslands
Mál nr. 91/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Tilhögun gæsluvarðhalds
|
|
Föstudaginn 10. febrúar 2012. |
|
Nr. 91/2012. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Jónas Þór Jónasson hrl.) |
Kærumál. Tilhögun gæsluvarðhaldsvistar.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. febrúar 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála á meðan á gæsluvarðhaldi stendur allt til föstudagsins 17. febrúar 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008. Varnaraðili krefst þess aðallega að kröfu sóknaraðila verði vísað frá héraðsdómi en til vara að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2012.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að að kærða X, kt. [...], verði gert að sæta einangrun, samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, á meðan á gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-49/2012 stendur, eða allt til 17. febrúar nk. kl. 16.
Í greinargerð kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar ítrekuð og gróf kynferðisbrot X gagnvart fjölda stúlkubarna. Upphaf málsins megi rekja til tveggja kæra á hendur X í október 2011 og í þágu rannsóknar hafi verið hald lagt á tölvubúnað hans. Við nánari skoðun hafi komið í ljós mikið magn af myndum af stúlkubörnum, klæðalitlum og nöktum. Þá hafi lögreglu einnig borist kæra móður 15 ára stúlku á hendur kærða fyrir nauðgun. Frekar um málavexti vísist til kröfu embættisins um gæsluvarðhald yfir kærða, dags. 4. febrúar sl.
Hinn 4. febrúar sl. hafi kærði verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til 17. febrúar nk. á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, sjá úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-49/2012. Hafi úrskurðurinn verið staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands 7. febrúar sl. í máli nr. 81/2012.
Í kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald, dags. 4. febrúar, hafi þess verið farið á leit við héraðsdóm að kærða yrði gert að sæta m.a. einangrun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 á meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stæði. Ekki hafi verið tekin afstaða til þeirrar kröfu lögreglustjóra í ofangreindum úrskurði, heldur einungis látið við það sitja að bóka í þingbók að tilhögun gæsluvarðhaldsins væri m.a. háð takmörkunum samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Í 2. mgr. 98. gr. laga um meðferð sakamála segi að dómari skuli taka afstöðu í úrskurði um kröfu um einangrun samkvæmt b-lið nefndrar lagagreinar. Sé þess því nú farið á leit við dóminn að kærða verði með úrskurði gert að sæta einangrun samkvæmt nefndri lagagrein.
Ljóst sé að rannsókn málsins sé á afar viðkvæmu stigi og því afar brýnt að kærða verði gert að sæta einangrun, þannig að hann fái ekki tækifæri til að torvelda rannsóknina, s.s. með því að hafa áhrif vitni málsins eða koma undan munum sem sönnunargildi hafi. Í málinu liggi fyrir að faðir kærða hafi sett sig í samband við tilgreint vitni í því augnamiði að hafa áhrif á framburð þess.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, b-liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr., laga um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Eins og að framan er rakið, og fram kemur í dómi Hæstaréttar í málinu nr. 81/2012, var ekki kveðið á um það í úrskurði héraðsdóms í máli nr. R-46/2012, sem kveðinn var upp vegna gæsluvarðhaldskröfu á hendur kærða vegna framangreindra sakargifta, að kærði skyldi sæta einangrun skv. b-lið 99. gr. laga nr. 88/2008. Með vísan til þeirra raka sem fram koma í greinargerð lögreglustjóra um að hætta kunni að vera á að kærði reyni að hafa áhrif á vitni málsins, koma undan munum sem sönnunargildi hafi eða torvelda rannsókn málsins með öðrum hætti, sbr. a-lið 95. gr. laga nr. 88/2008, er fallist á að kærða verði gert að sæta einangrun í samræmi við ákv. b-liðs 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, eins og í úrskurðarorði greinir.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta einangrun, samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, á meðan á gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-49/2012 og dómi Hæstaréttar í máli nr. 81/2012, stendur, eða allt til 17. febrúar nk. kl. 16.