Hæstiréttur íslands

Mál nr. 339/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Föstudaginn 4. júní 2010.

Nr. 339/2010.

Sýslumaðurinn á Selfossi

(Jónína Guðmundsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Christiane L. Bahner hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. maí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. júní sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 29. maí 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 8. júní 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi hans verði markaður skemmri tími og að kröfu um einangrun verði hafnað.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á að skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt og að varnaraðili þurfi sökum rannsóknarhagsmuna að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur, en 5. mgr. sömu lagagreinar stendur því ekki í vegi. Verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 29. maí 2010.

Lögreglustjórinn á Selfossi hefur gert þá kröfu að X kt. [...], með lögheimili að [...], Reykjavík, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. júní nk. kl. 16:00 á grundvelli a og c-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.  Lögreglustjóri krefst þess að kærði sæti einangrun fyrri tvær vikurnar af 4, sbr. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008  

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og að einangruninni verði jafnframt markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjóra með kröfunni kemur fram lögregla hafi haft afskipti af kærða í fyrradag, 27. maí 2010, þar sem hann var staddur að [...], en þar inni hafi fundist ýmiss varningur sem grunur hafi leikið á að væri þýfi. Kærði hafi verið handtekinn þess vegna ásamt þremur öðrum einstaklingum. Jafnframt hafi leikið grunur á að kærði ásamt mönnunum þremur væri viðriðinn þjófnað á hvítri pallbifreið af gerðin [...], mál lögreglu nr. [...], en bifreiðinni hafði verið stolið og fundist skammt frá [...].

Við nánari rannsókn hafi komið í ljós að tengja mætti ýmsa hluti sem fundust að [...] við innbrot í sumarhús í umdæmi lögreglunnar á Selfossi:

Samskonar bifreið og stolið var í máli [...] og samverkamaður kærða hafi játað að hafa stolið hafi sést skammt frá vettvangi í máli [...] þar sem brotist hafði verði inn í [...] aðfaranótt 27. maí sl.

Þann 2. apríl 2010 hafi verið tilkynnt um innbrot í sumarhús við [...] í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem stolið hafi verið Philips blandara, áfengi, hárþurrku og ruslafötu, mál lögreglu [...].

Að morgni fimmtudagsins 27. maí 2009 hafi verið tilkynnt um innbrot í sumarhús við [...] í landi Búrfells í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem búið var að brjóta rúðu í útidyrahurð og þaðan stolið hvítum 40“ Samsung sjónvarpsflatskjá, sjónvarpsflakkara, Makita hleðsluborvél og myndavél sem tengd var öryggiskerfi sumarhússins. Mál lögreglu nr. [...]. Á sama tíma var tilkynnt um innbrot í sumarhús að [...] og þaðan stolið flatskjá, mál lögreglu nr. [...].

Kærði var yfirheyrður af lögreglunni á Selfossi í gærkvöld þar sem hann neitaði aðild að málum þessum.  Hann hafi þó kvaðst vita að margir umræddra hluta fyndust heima hjá félaga sínum að [...].  Aðrir sakborningar hafi verið yfirheyrðir og hafi þeir borið um þátt kærða í brotunum.

Eftir að rannsókn málsins hafi leitt í ljós að hluti þeirra muna sem fundust við húsleit lögreglu höfuðborgarsvæðisins á [...] 27. maí 2010, og aftur í gær tengdust innbrotum í embætti lögreglunnar á Selfossi hafi einnig beinst grunur að kærða vegna fleiri innbrota sem framin hafa verið á svæðinu, samtals 33 mál, en útprentun úr dagbók lögreglu vegna þessarar mála fylgir kröfunni. Í öllum þessum málum hafi sömu aðferð verið beitt við innbrotin, þ.e. útidyrahurð spennt upp eða það reynt og gluggar verið brotnir og ýmsum verðmætum stolið, þó aðallega sjónvarpsflatskjám og raftækjum, og í einhverjum tilvikum unnar skemmdir á innanstokksmunum þegar verðmæta hefur verið leitað. Rannsókn þessara 33 mála sé enn í gangi og eftir eigi að yfirheyra kærða vegna þeirra en sterkur og rökstuddur grunur sé uppi um að kærði ásamt þeim aðilum sem hann nafngreindi í skýrslutöku hafi átt þátt aðild að umræddum málum. Megi meðal annars benda á að í máli [...] liggur fyrir upptaka úr öryggismyndavél þar sem þrír menn, hið minnsta, sjást koma á bifreið akandi að sumarhúsi við Álftavatn. Á upptökunni heyrist hvar rætt mennirnir ræða saman á ensku en það muni kærði og félagar hans gera þar sem tveir þeirra tala ekki íslensku.

Hjá lögreglunni í Borgarfirði og Dölum séu til rannsóknar 18 mál sem kærði og þrír félagar hans eru grunaðir um aðild að en þeir voru stöðvaðir  þann 13. maí sl. á Vesturlandsvegi við Hafnará í samskonar bifreið og áður hafið verið tilkynnt um vegna grunsamlegra mannaferða í sumarbústaðabyggð í Skorradal og innbrota í sumarhús á því svæði. Rannsókn þessara mála sé enn í gangi en um er að ræða samskonar verknaðaraðferð og í öllum þeim málum sem eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi.

Kærði hafi áður viðurkennt innbrot í 5 sumarhús í landi Sogsbakka, Grímsnes- og Grafningshreppi þann 14. apríl sl. þar sem mjög miklum verðmætum hafi stolið. Málin séu á lokastigi rannsóknar og muni verða ákært í þeim von bráðar. Þá séu jafnframt til meðferðar hjá Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fjögur mál á hendur kærða er varði meint brot gegn hegningarlögum.

Miðað við þann fjölda mála sem um ræði hjá kærða þá þyki það vera ljóst að verði kærði fundinn sekur fyrir ofangreind brot mun hann fá óskilorðsbundna fangelsisrefsingu.

Ljóst sé að kærði hafi verið mjög virkur í brotastarfsemi að undanförnu og í mikilli neyslu fíkniefna. Með vísan til þess og samfellds brotaferils kærða, sem hafi færst mjög í aukanna á síðustu dögum og vikum, er það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus.  Þá sé það jafnframt mat lögreglustjórans á Selfossi að rannsóknarhagsmunir þeirra mála sem kærði er grunaður um aðild að mæli eindregið með því að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og að honum verði gert að sæta einangrun í tvær vikur af þeim fjórum vikum sem krafist er, á grundvelli b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, þar sem rannsókn málanna er skammt á veg kominn og hætta er á að kærði muni geta torvelt henni hef hann sæti ekki einangrun.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a- og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Það er mat dómsins að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið þau afbrot sem vísað er til í kröfu lögreglustjóra og geta varðað hann fangelsisrefsingu ef sannast.  Er bent á það að  við húsleit í fyrradag, þar sem kærði var handtekinn,  fannst mikill fjöldi muna sem lögregla telur vera þýfi og hefur verið unnt að tengja við tiltekin innbrot.  Ekki er allt þýfi úr umræddum innbrotum komið fram.  Fyrir liggur að í brotum þessum hafa fleiri en einn staðið að verki. 

Samkvæmt framansögðu má fallast á það með lögreglustjóra að miklar líkur séu til þess að kærði muni torvelda rannsókn málanna haldi hann frelsi sínu óskertu, s.s. með því að koma undan munum og hafa áhrif á möguleg vitni og samseka, en af því hefur hann augljósa hagsmuni.  Jafnframt verður að fallast á að ætla megi að hann haldi brotastarfsemi sinni áfram haldi hann óskertu frelsi.  Kærði er grunaður um brot sem geta varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt ákvæðum 26. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þ. á m. 244. gr., 257. og 1. mgr. 259. gr. sömu laga.

Kærði er 16 ára gamall og skv. 5. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008 er ekki heimilt að úrskurða mann yngri en 18 ára til að sæta gæsluvarðhaldi nema að þar tilgreindum skilyrðum uppfylltum.  Hefur verið upplýst af hálfu lögreglustjóra og fulltrúa Barnaverndar Árborgar að eina vistunarúrræðið sem til greina kæmi, annað en gæsluvarðhald, sé vistun á Stuðlum.  Þar sé ekki laust pláss núna, en auk þess muni þar vera vistaður annar sakborningur í málinu, sem er yngri en kærði, en aðstæður á Stuðlum séu á þann veg að þar sé ekki unnt að tryggja að menn nái ekki að hafa samskipti.  Er fallist á það með lögreglustjóra að úrræði 1. mgr. 100. gr. laganna, sem og barnaverndarlaga, nægi ekki til að tryggja rannsóknarhagsmuni.

Ekki þykir vera sýnt fram á verði kærði sakfelldur fyrir öll þau brot sem hann er undir grun um að hafa framið muni það aðeins varða skilorðsbundinni fangelsisrefsingu.

Með tilliti til fjölda og umfangs þeirra mála sem lögregla hefur rökstuddan grun um að kærði eigi aðild að verður að fallast á kröfu lögreglustjóra um að kærði skuli sæta gæsluvarðhaldi.  Með hliðsjón af aldri hans og umfangi þeirra brota sem hann er grunaður um þykir hins vegar nægilegt að hann sæti gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 8. júní 2010 kl. 16.00.  Vegna rannsóknarhagsmuna er rétt að fallast á að kærði sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu sbr. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Ekkert liggur fyrir um það nú hvort laust pláss verður fyrir kærða á Stuðlum, sbr. 5. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þegar gæsluvarðhaldinu lýkur.  Eru því ekki efni til að gera kærða að sæta gæsluvarðhaldi eftir að rannsóknarhagsmunum lýkur, enda má ætla að vistun á Stuðlum myndi þjóna því markmiði sem að er stefnt með gæsluvarðhaldinu eftir að rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur fyrir hendi.

Með vísan til þessa og á grundvelli a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður því fallist á að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 8. júní 2010. kl. 16:00.  Kærði skal í gæsluvarðhaldinu sæta einangrun skv. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.