Hæstiréttur íslands
Mál nr. 294/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 3. júní 2009. |
|
Nr. 294/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. B. Snorrason, saksóknari) gegn X (Þorsteinn Einarsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. maí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. júní sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. maí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 9. júní 2009 kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að felldur verði úr gildi sá hluti úrskurðarins sem kveður á um að hann verði látinn vera í einrúmi meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili hefur á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sætt gæsluvarðhaldi frá 21. apríl 2009.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. maí 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 9. júní 2009 kl. 16:00. Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að 18. apríl 2009 hafi lögregla fengið upplýsingar um að seglskúta stefndi í átt til lands. Í tengslum við þessar upplýsingar hafi verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér. Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna á ferð um Djúpavog.
Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi. Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn hafi komið að landi. Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott. Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð og ökumaður bifreiðarinnar handtekinn. Í bifreiðinni hafi verið töskur sem inniheldu um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.
Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi. Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem hafi verið um borð í bátnum og hafi þeir síðar um kvöldið verið handteknir á bifreiðinni [...].
Landhelgisgæslan hafi hafið leit að skútunni og hafi skúta fundist á siglingu á hafinu á milli Íslands og Færeyja, á svæði sem hafi komið heim og saman við fyrri upplýsingar um staðsetningu skútunnar, tímasetningar, veður og fleira. Hafi Landhelgisgæslan gefið skútunni skipun um að stöðva, en hún ekki orðið við því. Hafi skútunni því verið fylgt eftir og er varðskipið Týr hafi komið að skútunni hafi sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra farið um borð í skútuna og handtekið þar þá þrjá menn sem voru um borð, þeirra á meðal X. Hafi skútan þá verið stödd á alþjóðlegu hafsvæði í efnahagslögsögu Færeyja og hafi færeyskum yfirvöldum verið gert viðvart um aðgerðirnar. Unnið sé að því að afla eins nákvæmra upplýsinga um siglingaleið skútunnar og unnt sé.
X hafi alfarið neitað sök vegna málsins.
Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð hafi verið. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Gagnaöflun sé í fullum gangi og hafi nú þegar verið sendar út réttarbeiðnir þar sem óskað sé eftir aðstoð erlendra yfirvalda við ýmsa þætti er snúi að rannsókninni. Þá liggi einnig fyrir mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir.
Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X, en talið sé að haldlögð fíkniefni hafi verið sótt í áðurgreinda skútu. Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi í málinu og hafi ekki verið haldlögð. Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varði kröfu um einangrun.
Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda geti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til grein. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b. lið 1. mgr. 99. gr. laganna.
Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 9. júní 2009 kl. 16:00.
Kærði skal látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.