Hæstiréttur íslands
Mál nr. 436/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Málskostnaður
|
|
Mánudaginn
18. ágúst 2014. |
|
Nr.
436/2014. |
Maron ehf. (Guðjón
Ármann Jónsson hrl.) gegn þrotabúi Perlufisks ehf. (Bjarni Lárusson hrl.) |
Kærumál. Málskostnaður.
Staðfestur var
úrskurður héraðsdóms þar sem mál þrotabús á hendur M ehf. var fellt niður og M
ehf. gert að greiða þrotabúinu málskostnað tilgreindrar fjárhæðar.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Eiríkur
Tómasson og Þorgeir Örlygsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. júní 2014 sem barst
réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness
3. júní 2014 þar sem mál varnaraðila á hendur sóknaraðila var fellt niður og
sóknaraðila gert að greiða varnaraðila 75.300 krónur í málskostnað. Kæruheimild
er í g. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991
um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms um málskostnað
varnaraðila til handa verði felldur úr gildi og sér úrskurðaður málskostnaður í
héraði úr hendi varnaraðila auk kærumálskostnaðar.
Varnaraðili krefst þess aðallega að sóknaraðili greiði sér málskostnað í
héraði að mati Hæstaréttar, til vara
staðfestingar hins kærða úrskurðar en að því frágengnu að málskostnaður verði
felldur niður. Í öllum tilvikum krefst hann kærumálskostnaðar.
Varnaraðili hefur ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti og kemur
aðalkrafa hans því ekki til álita við úrlausn málsins hér fyrir dómi.
Með vísan til síðari málsliðar 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 og
forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Sóknaraðili greiði varnaraðila kærumálskostnað eins og nánar greinir í
dómsorði en við ákvörðun hans er tekið tillit til dæmds kærumálskostnaðar í
samkynja málum aðila nr. 435/2014 og 437/2014.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sóknaraðili, Maron ehf., greiði varnaraðila, þrotabúi Perlufisks ehf.,
125.000 krónur í kærumálskostnað.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 3. júní 2014.
Mál þetta, sem tekið var
til úrskurðar 22. maí sl., er höfðað með þingfestingu réttarstefnu 19. febrúar
2014.
Stefnandi er þrotabú
Perlufisks ehf., kt. 661104-2440, Kirkjubraut 12,
Akranesi.
Stefndi er Maron ehf., kt. 460303-2140, Háseylu 16, Reykjanesbæ.
Dómkröfur stefnanda voru
þær að staðfest yrði kyrrsetningargerð sýslumannsins í Keflavík, sem fram hafi
farið að kröfu stefnanda í málinu nr. 034-2014-00003 hinn 30. janúar 2014 þar
sem kyrrsettar hafi verið vinnuvélarnar: Farmaco
saltsprautuvél, JF-0096 JCB fjölnotatæki, árgerð 1995, vnr.
278375, JL-6831 Linde lyftari, árgerð 2007, vnr. G1X336U50137 og LJ-6684 Caterpillar
lyftari, árgerð 2008, vnr. ETB8C51020.
Þá krafðist stefnandi
málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda og virðisaukaskatts af
málflutningsþóknun.
Af
hálfu stefnda var framangreindum kröfum stefnanda mótmælt og þá var þess
krafist að honum yrði tildæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda að mati
dómsins.
Með vísan til c-liðar 1. mgr. 105.
gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ber að fella mál þetta niður.
Málið var
þingfest 19. febrúar sl. og hefur síðan verið tekið fyrir alls fimm sinnum. Í
ljósi framangreinds, atvika málsins og þess að stefndi upplýsti ekki með
fullnægjandi hætti um málsatvik fyrr en skömmu áður en aðalmeðferð málsins
skyldi fara fram þykir rétt að stefndi greiði stefnanda 75.300 krónur í
málskostnað að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málskostnaðar er tekið
tillit til tildæmds málskostnaðar í samkynja málum aðila nr. E-163/2014 og
A-17/2014, sem varða sömu málsatvik og rekin voru samhliða þessu máli.
Ragnheiður
Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Málið er fellt niður.
Stefndi, Maron ehf.,
greiði stefnanda, þrotabúi Perlufisks ehf., 75.300 krónur í málskostnað.